Vísir - 27.05.1960, Síða 7
Föstudaginn 27. maí 1960
V f S I R
7
F.ins og skýrt hefur verið frá, mun Landsbankinn senn opna
litibú á Laugavegi 15. Hér sést aðsetrið, en ekki hefur verið
dregið frá gluggum ennþá, því að opnað verður fyrst á morgun.
Mesti fjöidamorðingi sög-
unnar í haldi í ísrael.
Me5ábyrgur höfubleiðtogum nazista um
fjöldamorð 6-8 milljóna Gyðinga.
Það vakti heimsathygli í s.l. *
viku, er kunnugt varð að Adolf
Eichmann, sem sakaður er um
að hafa skipulagt útrýmingu
Gyðinga í Þýzkalandi á stríðs-
tímanum, 6—8 inilljóna manna,
hefði verið handtekinn og væri
i haldi í Israel og yrði Ieiddur
þar fyrir rétt.
Gyðingar hafa litið á þennan
fyrrverandi ofursta í Gestapo,
leynilögreglu nazista, sem erki-
óvin sinn, „þjóðarfjanda nr. 1“.
Kunnugt er, að Gyðingar hafa
leitað hans allt frá stríðslokum
— í 15 ár — og þeir verið að
staðaldri á hælum hans, er
hann flýði land úr landi undan
þeim. Loks náðu þeir honum og
fluttu til Israel, en með hverj-
um hætti hefur ekki verið látið
uppskátt. En nú er hann í isra-
elsku fangelsi og öflugur vörð-
ur hafður um hann. Seinustu
fregnir herma, að hann hafi
sagt, að vel sé með sig farið, og
hann muni segja allt af létta —
og er ætlun manna, að við vænt-
anleg réttarhöld, sem kunna að
dragast til hausts, muni margt
í ljós koma, sem áður var
myrkri hulið.
Það var David Ben Gurion
forsætisráðherra Israels, sem
tilkynnti handtöku Eichmanns
á aukafundi á þingi, og gullu við
fagnaðaróp þingheims að lok-
inni yfirlýsingu hans:
„Mér ber að tilkynna þing-
inu. að starfsmenn israelsku
öryggisþjónustunnar fundu
fyrir nekkru einn af helztu
glæpamönnum nazistastyrj-
aldarinnar, Adalf Eiclimann,
senr ásarnt höfuðleiðtogum
nazista bera ábyrgð á því,
sem þeir kölluðu „lokalausn
Gyðingamálsins“, nefnilega
útrýmingu 6 milljón Gyðinga
í Evrópu — og er hann nú í
haldi í Israel og verður bráð-
Iega leiddur fyrir rétt á
grundvelli Iaga um réttar-
höld yfir nazistum og starfs-
liði þeirra“. i
ihlöss af sápu, te, kaffi og feiti,
[og meðan .þær samningaumleit-
anir fóru fram hélt Eichmann
áfram að senda Gyðingá í gas-
klefana. Bandamenn höfnuðu
að lokum boðinu.
Aldraður þingmaður í Israel
hneig í ómegin af geðshræringu
eftir að yfirlýsingu Ben Gur-
i
ions. Kona hans og börn höfðu
látið lífið í gasklefunum.
j Eichmann fær tvo lögfræð-
inga, sem verjendur, annan
irsraelskan hinn þýzkan.
j Verði hann sekur fundinn
biður hans líflátsdómur, sem í!
Israel ber að fullnægja með
hengingu. Til þessa hefur eng-
um slíkum dómi verið fullnægt
þar í landi. Enginn hefur fengist
til að taka að sér böðulsstarfið.
j Seinustu fregnir herma, að
Argentínustjórn hafi fyrirskip-
að rannsókn út af fregnum um,
að Eichmann hafi verið hand-
tekinn þar í landi.
Israelsstjórn hefur sem fyrr
var getið ekkert látið uppskátt
um það. Hún segir, að Banda-
ríkjamenn hafi handtekið Eich-
mann 1945 og hafi hann sloppið
úr fangabúðum eftir 18 mánuði,
en getað leynt hver hann var.
1950 hafi hann flúið frá Þýzka-
landi, en Isralelsstjórn segir
ekkert um, hvert hann hafi far-
ið. — Alkunna er að margir
fyrrverandi Getsapomenn og
nazistar leituðu til Argentinu
þar sem þeir áttu sér hælis von
undir verndarvæng Perons ein-
ræðisherra.
Póiverjar —
Frh. ai 1. síðu.
Bandaríkin og Eisenhower for-
seta, en Cabot Lodge svaraði
með því m. a. að ræða njósnir
og njósnaaðferðir Rússa, til þess
að sýna ófyrirleitni þeirra í
þessum eínum, lagði hann á
borðið fyrir framan sig stórt,
útskorið líkan af bandaríska
gamminum, og var gripurinn
gjöf frá Rússum, ætlaður til
þess að hanga yfir borði banda-
riska ambassadorsins í Moskvu,
— en innan í gripnum hafði
verið komið fyrir míkrófón.
Umræðum verður haldið á-
fram í dag.
Adolf Eicmann, múgmorð-
inginn alræmdi, sem Israels-
stjórn hefur nú tekizt að hand-
sama. Hann verður sennilega
ekki leiddur fyrir rétt fyrr en i
september.
Eichmann er 54 ára. Hann
var aðalráðunautur Hitlers um
Gyðingamál. Það er sagt, að
hann hafi stungið upp á því við
Hitler, að tortíma Gyðingum í
gasklefunum. Hann hefur verið
kallaður mesti fjöldamorðingi
sögunnar. í flestum söguritum
Gyðinga er hann kallaður hinn
blóðþyrstasti allra nazistaleið-
toga.
Hann var varam. Himmlers
og yfirmaður „Gyðinga-tor-
tímingadeildar Gestapo“. Og
hann bar því ábyrgð á þeim
glæp, sem Sir William Chur-
cliill kallaði „ef til vill mesta
og hroðalegasta glæp í allri
sögu heimsins“.
Árið 1944 átti Eichmann í
samningum við Joel Brand,
Gyðingaleiðtoga, .sem starfaði
með leynd i Budapest, um að
afhenda bandamönnum 1 mill-
jón Gyðinga, gégn því að banda-
menn létu af hendi 10.000 bíl-
IMóhammeð
við stjórn.
Móhammeð konungur V. í
Marokko hefur tekið stjórn
landsins í sínar hendur og skip-
að ríkisarfann varaforsæíisráð-
herra.
Um aðra ráðherra er enn ekki
kunnugt. Stjórnin baðst lausnar
nú í vikunni.
I Ákveðið hefur verið að stofna
til nýrra kosninga. Meðal mála
sem efst eru á baugi eru burt-
flutningur alls erlends herliðs
úr landinu. Samið hefur verið
við Bandaríkjámenn, en Frakk-
ar og Spánverjar tregir til sam-
komulags.
Ilaft er eftir sovézkum
miðstjórnarmanni, sem ný-
lega var í París: „Við verj-
um árlega milljónum til
efnahagsaðstoðar án þess að
fá neitt í staðinn. Lítið á
Egyptaland, Irak, Guineu.“
Eyþór leikur spænska dansa, en þær Anna María Jóhannsdóttir,
Sigrún Ragnarsdóttir og Sigurbjörg Svcinsdóttir dansa
ikil aðsókn
að laufinu.
Hin vinsæla revía „Eitt lauf“,
hefur nú verið sýnd fyrir fullu
húsi 22 sinnum, 05f ekkert er
farið að bera á því að aðsókn
sé í rénum.
í kvöld verður 22. sýning, og
er ekki ao efa að þeir, sem ekki
hafa lagt leið sina í Sjáifstæð-
ishúsið ennþá, fari að hugsa sér
til hreyfings áður en hætta
verður á að starfsfólk revíunn-
ar fari að tínast í sumarfrí.
Svo sem stendur í leikskránni'
er þetta í tveim geimum eftir
ýmsa,“ en leikstjóri er „gunnar:
h. eyjólfsson“. — Leikstjóm
Gunnars þarf vart að kynna
Reykvíkingum, en þess utan,
spilar hann töluverða rullu á
sviðinu og tekst að vonum.
Þarna gefst músíkölsku fólkí
fyrirtaks tækifæri til að hlýða
á einn mesta viýturwo r,»ckar
okkar íslendinga leika á guitarl
— Eyþór Þorláksson, sem leik-
ur spænska dansa.
Karlmannafötin
frá AL.
I. FL. EFNI.
NÝJUSTU SNIÐ.
Sparið yður
tíma og ómak.
Lcitið strax til
okkar.
Andersen & Lauth h.f.
Vesturgðtu 17,
Laugaveg 39.
Sími 10510.