Vísir - 27.05.1960, Qupperneq 9
V f S I R
íöstudagj n 27. maí 1960
J
r
9 skip rannsaka Islands-
Færeyjahrygginn í sumar.
Sex þjóðir leggja skip til rannsókna.
Um næstu mánaðamót hefj-
ast sameiginlegar hafrannsókn-
. ir 9 rannsóknaskipa frá 6 þjóð-
um á svæðinu á milli íslands
og Færeyja. Undirbúningur að
þessum leiðangri hefur nú stað
ið í rúmlega 3 ár. Áður höfðu
verið gerðar merktar rannsókn
ir á botnstraumum í norðan-
verðu Norður-Atlantshafi.
Bentu niðurstöður rannsókna
til þess, að slíkir botnsstraumar
myndu víða vera allsterkir,
einkum á hryggjunum milli ís-
lands og Færeyja og íslands og
Grænlands. Þessi niðurstaða
vakti mikla athygli, og kom
mörgum á óvart, því að al-
mennt hafði verið álitið, að
botnsstraumar væru veikir, sér-
staklega á miklu dýpi. Voru
menn áeinu máli um, að rennsl-
ið yfir áðurnefnda hryggimyndi
hafa mikil áhrif á ástand sjáv-
ar í djúplögum Atlantshafsins.
Einnig þótti sýnt, að sveiflur
í rennslinu gætu haft örlaga-
rík áhrif á ástand sjávar og
gróðurskilyrði á nálægum haf-
svæðum, þar sem víða eru ein-
hver bestu fiskimið í Norður-
Atlantshafi. Rannsóknir Breta
og Þjóðverja leiddu að því sterk
rök, að miklar djúpbylgjur
muni myndast, er hinn kaldi
Og eðlisþungi sjór Norðurhafs
streymir yfir neðansjávarhrygg
ina og steypist niður í Atlants-
hafsdjúpið. Slíkar djúpbylgjur
geta borist langa vegu um haf-
ið. Mæti þær fyrirstöðu, eins
og við landgrunnsbrúnir geta
þær valdið mikilli lóðréttri
blöndun, og séu þær nægilega
.öflugar jafnvel náð upp til yfir-
borðslaganna og endurnýjað
þau af næringarsöltum úr djúp-
lögum sjávar.
. S. 1. haust var ákveðið, að
hinar sameiginlegu rannsóknir
skyldu framkvæmdar í júni
mánuði n. k. Sjö þjóðir tjáðu
sig fúsar til þátítöku, þ. e. Dan-
ir með eitt skip, Norðmenn 2.
íslendingar 1, Englendingar 2,
Skotar 1, Rússar 1 og Þjóðverj-
ar 2.
■ Fiskideild Atvinnudeildar
Háskólans hefur leigt varðskip-
ið Maríu-Júlíu til rannsókna
af íslands hálfu. Hefur skipið
verið útbúið til þessa leiðangurs
eins vel og aðstæður hafa leyft.
Leiðangursstjóri verður Unn-
steinn Stefánsson, efnafræðing-
ur, en auk hans taka þátt í ieið-
angrinum frá Fiskideild þeir
Birgir Halldórsson, Heimir Þor-
leifsson og Sven Aage Malm-
berg. Skipstjóri á Maríu-Júlíu
verður Gunnar Ólafsson.
Lagt verður upp frá Reykja-
vík að kvöldi hins 25. mai og
haldið til Vestmannahafnar í,
Færeyjum til fundar við hin'
rannsóknarskipin. Munu þá
leiðangursstjórarnir bera sam-,
an róð sín, áður en rannsóknir
hefjast. Því næst leggja öll skip
in úr höfn, dreifa sér um svæðið
norðan Færeyja og hefja sam-
tímis athuganir sínar.
Leiðarlínur flestra skipanna
liggja samsíða í stefnu frá suð-
austri til norðvesturs. Þegar
komið er norður undir íslenzka
landgrunnið, snúa skipin við
og halda til baka eftir línum,
sem liggja samsíða fyrri leiðar-
línunum í 10—15 sjómilna fjar-
lægð frá þeim. Á þessari leið
verða gerðar athuganir á 8—9
sjómílna millibili. Mælt verður
hitastig og sýnishorn til efna-
greininga tekin á mismunandi
dýpi frá yfirborði til botns. Þétt I
astar verða mælingarnar gerð-
ar í sjávarlaginu næst botni,1
en þar mun aðalrennslið yfir,
hrygginn eiga sér stað. Jafn-'
framt verða gerðar almennar
veðurathuganir og mælingar á
gegnsæi sjávarins. Þegar skip-
in hafa lokið þessari fyrstu
yfirferð , munu þau hittast aft-
ur í Vestmannahöfn og leið-
angursmenn bera saman gögn
sín. Verður þá tekin ákvörðun
um það, hvort ástæða sé til að
breyta áætluninni. Að því búnu
láta skipin aftur úr höfn og
endurtaka fyrri rannsóknir.
Því næst fer hvert skip á til-
tekinn stað á hryggnum, þar
sem það heldur kyrru fyrir í
2 sólarhringa og mælir straum
eða endurtekur mæhngar á hita
stigi og seltu á klukkutíma
fresti. Loks verður svo farin
þriðja yfirferðin fram og aftur
eftir hryggnum og mælingar því
næst endurteknar í annað sinn
á hinum föstu stöðvum. Rann-
sóknunum lýkur hinn 18. júní.
Með þessum umfangsmiklu
og þéttu mælingum gera menn
sér vonir um að geta
með sæmilegri nákvæmni ta.-,.
! víðáttu og mrgn hins ka<da
jbotnsjávar, ser streymii ;fir
, hry-gginn, straumhraðan a vrrs
um stöðum os -veiglur í rennsl-
^inu. Hversu • el tekst til um
þennan leið'e** •»* sjálf-
sögðu að verulegu leiti undir
veðrinu komið. En gangi allt
samkvæmt áætlun, er full á-
stæða til að gera sér vonir um
mikilsverðar niðurstöður. Hér
er um að ræða einstæðan og
sögulegan rannsóknarleiðangur,
því að þess munu engin dæmi,
að svo mörg skip vinni samtím-
is að rannsóknum á takmörk-
uðu svæði.
LeíklSstarskólinn úi-
útskrífar 10 nemenóur.
Síðastaliðinn mánudag var
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
sagt upp. Prófin hafa staðið yfir
undanfarna daga og fóru þau
fram að þessu sinn á leiksviði
Þjóðleikhússins og er það í
fyrsta skipti, sem nemendur
hafa fengið að gangast undir
próf þar í gerfum, búningiun
og með annan tilheyrandi út-
búnað. Að þessu sinni gengu 10
íeiknemar undir próf og stóð-
ust þeir allir prófið. Hæstu eink
unn hlaut Jóhanna Norðfjörð
en hinir leiknemarnir voru
Brynja Benediksdóttir, Bjami
Steingrímsson, Kristján Jóns-
son, Eyvindur Erlendsson, Vil-
borg Sveinbjarnardóttir, Svan-
dís Jónsdóttir, Sigurlín Óskars-
dóttir, Helga Löve og Þóra Eyja
lín Gísladóttir.
Skólastjóri skólans, Guðlaug-
ur Rósinkranz Þjóðleikhús-
stjóri gat þess í skólaslitaræðu
að þetta væri níunda árið, sem
skólinn starfaði og hefðu nú
útskrifast 40 leiknemar frá
Leikhstarskóla Þjóðleikhússins.
Skóhnn er miðaður við það að
nemendur geti stundað atvinnu
sína með náminu og verður skól
inn rekinn með sama sniði í
framtíðinni. Skólastjóri sagði
ennfremur, að þótt allir nem-
endur hefðu nú staðist loka-
prófið, þá væri annað og meira
próf, sem biði þeirra, og reynsl-
an ein myndi skera úr því hvort
þau stæðust það. Að lokum
þakkaði skólastjóri kennurum
og nemendum gott samstarf
á siðastliðnum 2 árum.
Kennarar við skólann eru
leikararnir Haraldur Björnsson,
Róbert Arnfinnsson, Klemenz
Jónsson, Baldvin Halldórsson, j
Inga Þórðardóttir, prófessor j
Steingrímur J. Þorsteinsson, |
dr. Símon Jóhann Ágútsson,
Kristinn Hallsson óperusöngv-
UJIASÓKNÖM
i
um sumardvöl á vegum Reykjavíkurdeildar
Rauða Kross íslands
í sumar, að Laugarási og Silungapolli, verður veitt móttaka
í skrifstofu Rauða Kross íslands, Thorvaldsstræti 6, dag-
ana 30 og 31. maí frá 9—12 og 13—18.
Tekin verða meðan rúm leyfir, börn sem fædd eru á
timabilinu 1/1 1953 til 25/6 1956.
Vegna mikillar aðsóknar verða aðrir aldursílokkar ekkl
teknir.
Stjórn Reykjavíkurdeildar Rauða Kross íslands.
FULLTRUASTAÐA
Fulltrúi óskast til starfa í skrifstofu skipulagsstjóra
Reykjavikurbæjar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi stúdentsmenntun og
þekkingu og reynslu í tæknilegum störfum.
Laun samkvæmt launasamþykkt Reykjavíkurbæjar.
Nánari upplýsingar í skrifstofu skipulagsstjóra, Skúia-
túni 2.
Umsóknir skulu hafa borizt eigi síðar en 5. júní n.k.
Skipulagsstjóri Reykjavíkurbæjar. !
AðaifuMeÍMf*
Neytendasamtakanna, verður haldinn laugardaginn 28. maí
1960 í V.R., Vonarstræti 4 og hefst kl. 2,30 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. !
Stjórnin. i
Alþýðukórinn heldur af-
mælissamsöng í kvöld.
Söngfélag verkalýðsfélag-
anna í Reykja\dk, sem nú hefur
fengið nafnið Alþýðukórimi,
heldur afmælissöng í kvöld í
tilefni af 10 ára afmæli sinu.
Stjórnandj kórsins er dr.
Hallgrímur Helgason tónskáld,
en einsöngvarar að þessu sinni
eru Guðrún Tómasdóttir, Einar
ari, Erik Bidsted balletmeistará
og Haraldur Adolfsson, hár-
kollugerðarmaður.
Sturluson og Hjálmar Kjart>
ansson, en strokhljómsveit Sin»
fóníuhljómsveitar ísl. annast
undirleik. Á söngskránni er
Messa G-dúr eftir Franz Schu-
bert ,svo og ýms íslenzk lög.
Tónleikarnir verða í Austur«
bæjarbíó og hefjast kl. 19.15.
Aðgöngumiðar eru seldir £
Bókabúðum KRON og Sigfúsar
Eymundssonar, og þar geta
styrktarfélagar einnig vitjaði
miða sinna.
„Sjúkrahös sorganna"
Lourdes tekur vi5 200 þús. manns árlega.
Bandarískur kardínáli, Cus-
Iting, búsettur í Boston, hefur
tilkynnt, að hann ætli persónu-
lega að gefa 100 þús. dollara til
sjúkrahússins í LOURDES í
Frakklandi.
Samtimis skoraði hann á
rómversk-kaþólska menn í
Bandaríkjunum að hjálpa sér
að safna 50.000 dollurum til
viðbótar. í „Sjúkrahúsi sorg-
anna“ (Hospital of Sorrows) í
Lourdes er tekið á móti 200.000
pílagrímum, sem árlega koma
þangað, til þess að leita sér
lækninga.
Cushing ætlar hínn 8. maí
næstkomandi að leggja upp í
ferðalag til Lourdes með um
100 börn, líkamlega og andlega
veikluð. Hann greiðir allan
kostnaðinn og hefur áður farið
þangað með slíkan leiðangur.
Danir hafa fyrir skemmstu breikkað brúna yfir Limafjörð hjá Friðrikshöfn vegna aukinnar
uniferðar. Fjorar bifreiðir g;ta ekið um brúna samhliða.