Vísir - 14.12.1960, Page 62

Vísir - 14.12.1960, Page 62
nær sú tækni verulegri útbreiðslu um sinn, olli því þá mest skortur á rafurmagni, það var óvíða fyrir hendi. Ilræktun í gróðurhúsum festir nú rætur, fyrsta gróðurhúsið er byggt 1924, en árið 1940 erii gróðurhús talin vera um 77 000 fermetrar. Garðyrkjuskólinn er stofnaður 1936, Grænmet- isverzlun ríkisins 1936, Áburðarsala rikisins 1929. Bæði urðu þessi verzlunarfyrirtæki bændum að miklu liði, en þó sérstaklega Á- burðarsalan, án tilbúins áburðar var hin gukna ræktun óhugsandi. Atvinnudeild liáskólans er stofnuð 1929 og búnaðardeild hennar, sem virkur aðili við framvinduna i búnaði. Til- raunabúið á Sámstöðum er stofnað 1927, sem arftaki Gróðrarstöðvarinnar gömlu i Reykja- vík, sem þar hafði starfað við litla landkosti allt frá 1899. Á Sámstöðum hefir nú verið ræktáð korn í áratugi með svo góðum árangri að það ætti sannarlega að nægja til þess að sýna og sanna bændum i lágsveitunum á Suð- vesturlandi hvað til þeirra friðar heyrir í því máli. Það lifnar nokkuð yfir sandgræðslu og skóg- rækt á þessu tímabili, en þó ekki að ráði fyrr en í lok þess og um og eftir 1940. Árið 1939 er fjárveiting til sandgræðslu enn eigi nema kr. 37 000 og til skóggræðslu kr. 38 800, það er álíka mikið i hvorn stað eins og þá kostaði að byggja sæmilegt einbýlishús i Reykjavik, eða vart svo mikið. Þegar mikið er gert og meira stendur til, fer aldrei hjá því að mistök verða á einu eður öðru, bæði frá hendi þeirra sem stjórna fram- sókninni, og hjá þeim sem að henni vinna á eigin görðum. Svo varð og á tímabili þessu. Mörg smærri mistök eru ekki þess verð að þeirra sé minnst. En það áttu sér einnig stað mistök sem drógu þann dilk á eftir sér, að þau eru enn ógleymd og verða lengi. Hinn misheppnaði innflutningur minka, holdanauta og karakúlfjársins er svartur blett- ur í búnaðarsögu þessa tímabils. VI. Loks er timabilið 1940—1960. Þessi ár eru svo nærri oss öllum að ætla mætti að þar mætti fara fljótt yfir sögu, ungir sem eldri viti full deili á þvi sem skeð hefir á sviði búnaðar á þessum árum. Samt er eigi svo, breytingarnar i búskapnum hafa verið svo örar og byltinga- kenndar á þessum 20 árum, að þeir sem eru nu innan við fermingu verða að kynnast sumu af þvi sem var venjulegt fyrir tuttugu árum sem fornmenjum i gamla bænum i Glaumbæ eða á annan hátt. í fyrra bað norskur áhuga- maður mig að reyna að útvega fornmenjasafni einu, sem hann hefir afskipti af, islenzkan reiðing albúinn með klyfbera og gjörðum. Hann sagðist hafa snúið sér til mjög merkra aðila á íslandi með þessa málaleitun sína, en án árangurs, svörin voru á þá leið að það væri lítt hugsandi að komast yfir slíka hluti framar. Mér brá er ég heyrði þetta, mest við það að mér skyldi ekki vera þetta ljóst, hafði mér sézt yfir ár af ævi minni? Það eru ekki mörg ár siðan ég síðast tók mynd af heybandslest, það er ekki langt síðan ég sá um 20 klyfbera í röð á skemmuvegg austur í Holtum, og nú eru þessi tæki orðin vandfengnir safnmunir. Það er sannarlega ekki að undrast þótt börnin, sem sitja nú á skólabekkjum, viti fátt um það sem var á æskudögum feðra þeirra og mæðra. Tímabilið 1940—1960 er, að þvi er tekur til ræktunar og búskapar í sveitum landsins, að minu mati fyrst og fremst timabil hinna stóru tæknitaka, timabil heimilistraktoranna, skurð- gröfunnar og jarðýtunnar — og tilbúna áburð- arins. Skal nú stiklað á stóru. Áður var sagt frá sláttutraktorunum á Set- bergi, Korpúlfsstöðum og Jódísarstöðum 1927 —34. Annars eru traktorarnir sem komnir eru í not fyrir striðið félagseign og notaðir mest til að vinna land til ræktunar. Árin 1940 og 41 eru dauð ár, striðið truflar. Árin 1942—44 mjatlast samt inn nokkrir hjólatraktorar til sömu nota, alls 40 vélar af gerðinni Internati- onal W-4. En það sem er mest um vert er, að árið 1944 hefst hjá Búnaðardeild SÍS inn- flutningur minni fjórlijólatraktora til heimilis- nota, að stærð og búnaði voru þeir mest mið- aðir við heyskajjarstörfin, en minna við venju- lega nýræktarvinnu. Þetta ár koma aðeins 13 slikir traktorar, en þeir dreifast nokkuð um landið, i Húnaþing, Eyjafjörð, N.-Þingeyjar- sýslu, V.-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyjar, Árnessýslu (Þingvallasveit), Gullbringusýslu og Kjósarsýslu. Þetta var næg kynning, beiðnir um slikar vélar til heimilisnota fóru að berast. Það leyndi sér ekki að hér vorum vér á réttri leið, sem sýsluðum við þennan innflutning. Snemma árs 1945 fór ég vestur um liaf á veg- um Nýbyggingarráðs, til þess að greiða fyrir innflutningi búvéla, sérstaklega traktora, en þá var mjög erfitt að fá slikar vélar afgreiddar til íslands, „réttur" íslendinga til þess að fá traktora var sama og enginn, samkvæmt þeim reglum sem settar höfðu verið i Bandarikjunum um þá hluti. Þetta tókst betur en á liorfðist. Ég fékk handa Búnaðardeild SÍS 199 hjóla- traktora og 7 beltatralctora með ýtubúnaði (jarðýtur). Þetta var sá mesti og djarfasti inn- flutningur búvéla sem nokkru sinni hafði átt sér stað. Af þessu voru 174 traktorar af gerð- inni Farmall A, 16—18 ha. vélar, allar með viðtengdum sláttuvélum. Það tekur þvi naum- ast að nefna það að árið áður, 1944, sendi þá- verandi landbúnaðarráðherra sérstakan erind- reka vestur til þess að kaupa álitlegar búvélar til reynslu. Hann keypti meðal annars 2 Far- mall-vélar, önnur var nákvæmlega samskonar eins og þær 174 sem ég fékk handa SÍS, en hin var lítið eitt stærri. Þessar tvær vélar ráðuneytisins komu til landsins vorið 1945 samtímis vélunum, sem ég samdi um kaup á. Heildarinnflutningur traktora þetta ár varð þannig 201 hjólatraktor og 7 jarðýtur, en um þær ræði ég síðar. Farmall A vélarnar dreifðust nú um landið, fóru í allar sýslur nema Norður-Múlasýslu. Hve stórir hlutir þetta voru i raun og veru og hvernig bændur tóku þessari nýbreytni, má sjá af því að i árslok 1945, er ég lét af störfum sem framkvæmdastjóri Búnaðardeild- ar SÍS, voru komnar til deildarinnar beiðnir um á sjöunda liundrað Farmall A traktora með sláttuvélum, til afgreiðslu næsta vor. En þá fékk deildin raunar ekki nema 200 vélar, hinsvegar bætti lítið eitt úr, að þá fluttu önn- ur fyrirtæki einnig inn nokkra traktora af svipaðri stærð, alls 39 vélar. Sem dæmi þess hvernig Farmall A traktorunum var tekið sumarið 1945 vil ég geta þess, að einn traktor fór í Þykkvabæinn i Rangárvallas. Hann var ekki nema nýtekinn i notkun er okkur bárust beiðnir um 13 traktora úr byggðarlaginu. Svo heldur skriðan áfram, á árunum 1942 —59 eru alls fluttir inn um 5 200 hjólatraktorar, mest 1955 727 traktorar, minnst 1950 21 trakt- or. -Hve mjög traktornotkunin grípur inn i heyskapinn sést best á þvi að í árslok 1958 eru bændur búnir að kaupa um 4 755 traktor- sláttuvélar, um 2 150 múgavélar traktordregnar, o. s. frv., og i fyrra og í ár hefir drjúgum bæzt við, enda eru vélarnar sem fyrst voru keyptar auðvitað farnar að ganga úr sér. Tala heyvinnuvéla segir heldur ekki alla sögu, si- fellt koma nýjar og betri vélar til sögunnar, og á það meðal annars mjög við um múga- vélarnar sem nú þykja hinar allra nauðsyn- legustu vélar við heyskapinn. Hin síðustu ár hafa Ferguson traktorarnir verið efstir á skrá um innflutning, að þvi er til tölunnar kemur. Hin stærri gerð þeirra, svo og innflutningur viðameiri traktora ann- arra t. d. Fordson, er i samræmi við þær stað- reyndir, að nú eru allmargir bændur farnir að komast upp á að vinna mikið að nýrækt og cndurræktun túna með eigin vélakosti, í stað þess að fá allt slikt unnið i umferða- vinnu, svo sem viða lengi var. Til þess þurfa þeir stærri og sterkari traktora heldur en þá sem áður voru mest keyptir. Er þetta gleði- leg þróun. Þeim bændum fjölgar einnig, er ekki komast af með minna en tvo traktora á búi, og þá hentar vel að hafa annan minni til sláttar og minni verka, en hinn stærri til jarðvinnslu og þungadráttar. VII. Þó að átök véla við ræktunina á árunum í kringum 1930 og á fjórða tug aldarinnar væru góð, var eitt sem mjög amaði að, tafði ganginn og olli oft lakari árangri en gott var. Hið sama kom raunar mjög í Ijós á þúfnabana- árunum. — Það stóð á framræslunni. Öll fram- ræsla til túnræktar var unnin með handafli, þó að tekist hefði að grafa aðalskurði Skeiða- áveitunnar og Flóaáveitunnar með stórvirkri gröfu og sömuleiðis mikla skurði í Staðar- og Vikurmýrum i Skagafirði, i Safamýri og í Arnarbælisforum i ölfusi með stórri flotgröfu, var sá hnútur óleystur að fá vélar til þess að leysa handaflið af liólmi við framræslu til túnræktar. Stórvirki höfðu verið unnin við framræslu með handafli, við Skeiðaáveituna, Flóaáveit- una í Vífilsstaðamýrinni og við framræslu á Korpúlfsstöðum. Vaskir menn unnu á þessum stöðum mest í ákvæðisvinnu. Á tímabili var grafið mjög mikið af hnausaræsum, sérstak- lega vil ég nefna Kristófer Grímsson, héraðs- ráðunaut, sem um skeið vann manna mest og skipulegast að slíkri framræslu, með flokk manna bæði á ræktunarlöndum við Reykjavík og á Korpúlfsstöðum. En málið var ekki leyst með þessu. Senn var ljóst að vinnuafl fékkst ekki, og var of dýrt, til þess að ræsa fram ræktunarlönd svo um munaði, og aðrar rækt- ræktunaraðgerðir lcröfðust, en úrræði voru ekki fundin, Á ferð minni um Bandaríkin og Kanada 1939 sá ég í fyrsta sinn unnið að framræslu (og vegagerð) með skurðgröfu með dragskóflu, (Dragline Excavator). Ég sannfærðist þá um að slíkar vélar væru fyllilega nothæfar til framræslu heima, sérstaklega við að ræsa fram „venjulegar“ mýrar til túnræktar, að opnum skurðum. Slik notkun véla af þess- ari gerð var þá enn eigi tíðkuð á Norðurlönd- um. Þar urðum við íslendingar brautryðjendur. Fyrir árslok 1939 var fengið tilboð i ameríska skurðgröfu með dragskóflu, en allt strandaði á vöntun gjaldeyris og þeim truflunum er stríðið olli. Málið leystist eigi fyrr en 1941, þá skorar fjárveitingarnefnd Alþingis á rikis- stjórnina „að reynt verði til þrautar að festa kaup á einni skurðgröfu til landþurrkunar“. Að baki þessarar tillögu stóðu aðgerðir Bún- aðarþings i málinu, og orðalag hennar vitnar á skemmtilegan hátt um hug manna og þörf á framkvæmd. Keyptar voru 2 vélar frá Eng- landi, þær komu til landsins vorið 1942 og tóku til starfa, önnur i Staðarbyggðarmýrum í Eyjafirði, hin í Garðaflóa við Akranes. Vinn- an í Garðaflóa skar úr um nothæfi vélanna við framræslu til túnræktar. Svo þarf ekki að rekja þá sögu, hún er öllum kunn. í Bún- aðarskýrslum árin 1955— 57. sem eru nýlega komnar út segir svo: „Árin 1942—51 voru grafnir með skurð- gröfum skurðir, er voru alls 2 383 138 lengdar- m. og 8 362 848 rúmm., árin 1952—54 2 179 414 lengdarm. og 8 924 182 rúmm., og loks árin 1955—57 2 583 460 lengdarm. og 11 476 825 rúmm. Alls liöfðu þannig verið grafnir í árs- lok 1957 skurðgröfuskurðir, er voru 7 Í46 012 lengdarmetrar og 28 763 855 rnmmetrar“. Ég býst við að það séu tiltölulega fáir menn, aðrir en þeir sem liafa með þessar fram- kvæmdir að gera, sem gera sér grein fyrir því hver risaframkvæmd þetta er, — 7146 kilómetrar af opnum skurðum sem yfirleitt eru þriggja metra breiðir og tveggja metra djúpir. Ef bætt er við þvi sem grafið hefir verið tvö síðustu árin 1 889 305 lengdarm. og 8 177 765 rúmm. er lengd skurðanna álíka og nemur siglingaleiðinni til New York og heim aftur. Þetta hófst með gröfunum tveimur 1942, en hin siðustu ár hafa um 50 gröfur verið að verki. Að þetta hefir verið hægt og framkvæmd byggist að mjög verulegu leyti á aðstoð rikisins. Árið 1942 — sama árið og framkvæmdirnar hófust — fól þáverandi landbúnaðarráðherra Ólafur Thors oss i Verkfæranefad „að semja nýjar og ákveðnar reglur um notkun þeirra skurðgrafa er rikið á.“ „Reglurnar" sömdum vér sem breyting á jarðræktarlögunum. Tillögurnar voru sam- 62 VÍSIR 50 ÁRA Afmælisblað VÍSIS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.