Vísir - 14.12.1960, Side 69
ÞROUN
SÍMANS
Gunnlaugur Briem.
Inngangur.
Um taugakerfi mannslíkamans eru merki
send um ótölulegan fjölda taugarása meS
flutningi rafmagns, og fyrir milligöngu augans
er tekið við raföldum (Ijósöldum) og þær
greindar eftir styrkleika þeirra og tíðni, en
þekking manna á lögmálum þessa taugakerfis
er þó enn mjög takmörkuð, og er óupplýst,
hvort það getur sent merki langt út fyrir
líkamann.
Á síðustu 100 árum hefur skapast nýtt tauga-
herfi, símakerfið eða fjarskiptakerfið, sem
fylgir yfirleitt kunnum lögmálum, sem gera
hleift að segja fyrir um hegðun þess og auð-
velt er að stjórna. Það getur flutt boð milli
manna með notkun rafmagns og hefur mikið
langdrægi, ekki aöeins um alla jörðina, heldur
og langt út fyrir hana. Þótt þetta kerfi sé um
margt ólikt hinu fyrrnefnda, kann framtíðin
að sýna, að þessi kerfi eiga meira sameigin-
legt en nú er vitað.
Hið nýja kerfi hefur ef til vill orðið til
vegna þarfa lífsins, líkt og svo margar aðrar
breytingar. Það hefur ásamt ýmsu öðru skap-
að aðstöðu til þess að fullnægja vaxandi kröf-
nm lífsins til meiri hraða í atvinnulífi og sam-
göngum, svo að unnt sé að veita sífjölgandi
mannkyni lífsnauðsynjar og batnandi lífsskil-
yrði, eins og nútíminn skilgreinir þau. Með
því að flytja vitneskju milli manna á hraðari
og fullkomnari hátt en áður, hefur sparast
ótrúlega mikill tími og örðugleikar, sem mátti
nota til aukinnar framleiðslu og samstarfs.
Eftirspurn eftir síma er mikil og notkun
hans vex hröðum skrefum. Nú eru um 150
miljónir símatalfæra i heiminum, en fyrir
15 árum voru þeir fimm sinnum færri.
Fyrir einni öld fóru öll boð milli Evrópu
og Ameríku fram í bréfum og með sendiboðum
með skipum og voru lengi á leiðinni. Fyrsti
varanlegi sæsiminn yfir Atlandshafið var lagð-
ur 1866 og flutti aðeins skeyti, en það leið
langur tími þar til almenningur gat talað þá
leið, og þá i gegnum radiósamband á lang-
bylgjum 1927, en síðar á stuttbylgjum. Það var
þó ófullkomið og mjög háð truflunum. Siðan
liðu 29 ár þar til talsambandið þessa leið varð
öruggt og fullnægjandi með tilkomu talsæ-
simans með neðansjávarmögnurum. Nú fara
yfir 3 miljónir samtala árlega yfir Atlants-
h' fið og fjölgar ört, en fyrir 15 árum fimmti
hluti þess.
Þróunin á íslandi.
Þróun þessara mála hér á landi, sem þessi
grcin á fyrst og fremst að fjalla um, hefur
verið lýst opinberlega áður, t. d. i Minningar-
riti Landssíma íslands (1926), i Þjóðhátíðar-
blaði \isis (1944) og í ýmsum blöðum og
timaritum 1956 i sambandi við 50 ára afmæli
landssímans. Hér verður því farið fljótt yfir
sögu og yfirlit yfir hana i aðalatriðum gefið
rneð eftirfarandi ártalaskrá um minnisverða
afanga og með línuritum, sem skýra sig sjálf.
Tímabilið fram að 1906 má telja til forsögu
simans hér á landi og má þar minnast eftir-
farandi ártala:
1854 Danska stjórnin veitir T. P. Shaffner
einkaleyfi til ritsímalinu yfir Færeyjar,
fsland og Grænland, í sambandi við
fyrirhugaðan sæsima þá leið milli Evr-
ópu og Ameriku.
1861 Fyrsta símamálafrumvarpið samþykkt á
Alþingi varðandi áðurnefnt einkaleyfi
Shaffners.
(Ekki varð úr framkvæmdum hjá .Shaffn-
er).
1889 Verzlun Ásgeirs Ásgeirssonar leggur tal-
sima milli verzlunarhúsa sinna á ísafirði.
1890 Telefónfélag Reykjavikur leggur talsíma-
línu milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
1891 Simalína var lögð milli ísafjarðar og
Hnífsdals fyrir atbeina sýslusjóðs.
1891 Samþykkt á Alþingi að leita samninga
við erlend ríki um fréttaþráð til íslands.
1895 Alþingi samþykkir að veita enskum
manni Mitchell einkaleyfi til þess að
leggja fréttaþráð frá Bretlandi til íslands.
(Ekkert varð úr framkvæmdum).
1902 Alþingi skipar nefnd til þess að athuga
um loftskeytasamband milli íslands og
annara landa.
1904 Talsímahlutafélag Reykjavíkur stofnað,
og opnaði það símstöð í Reykjavik með
15 notendum.
1905 Marconifélagið hefur tilraunir í Reykja-
vík með viðtöku á loftskeytum frá Bret-
landi.
Hin eiginlega þróun símans hér á landi
hefst þó fyrst eftir að landið hafði eignast
sinn fyrsta ráðherra og sérstök simalög voru
sett. Hún hefur siðan verið óslitin, en þó
nokkuð ójöfn eins og i öðrum löndum í sam-
ræmi við vaxandi kröfur atvinnulífs og ein-
staklinga og samfara framförum i símatækni
og fjárhagsgetu.
Meðal merkra áfanga má nefna þessa:
1905 Ný simalög taka gildi.
Samningar eru staðfestir við Mikla Norr-
æna Ritsímafélagið um lagningu sæsíma
til íslands (Seyðisfjarðar), einkaleyfi til
símskeytareksturs um hann, og um fram-
lag þessa félags til lagningar símalínu
frá Seyðisfirði til Reykjavikur.
1906 Talsímasamband opnað milli Reykjavik-
ur og Seyðisfjarðar.
Ritsímasamband opnað milli Reykjavikur
og útlanda.
Landssími íslands stofnaður. Símalagn-
ingar hefjast siðan viða um land og
halda óslitið áfram.
1911 Sæsimi milli Vestmannaeyja og lands
lagður af sérstöku hlutafélagi.
1915 Stofnað félag símamanna.
Loftskeytastöðvar settar upp i 2 skipum
Eimskipafélags íslands.
1918 Loftskeytastöðin í Reykjavik tekur til
starfa.
1927 Lög um einkasíma i sveitum gefin út.
1929 Landið girt með símalínum.
1930 Útvarpsstöð sett upp í Reykjavík.
Fyrsti fjölsími og fjarriti koma til lands-
ins og tilraunir gerðar með þessi tæki
meðal annars fjölsíma milli Reykjavíkur
og Þingvalla.
1932 Föstu fjölsímasambandi komið á milli
Reykjavíkur og Hrútafjarðar.
Sjálfvirkar símstöðvar settar upp í
Reykjavík og Hafnarfirði með sjálfvirku
sambandi þar á milli.
1934 Landið girt með fjölsímasambandi.
Landssíminn hefur smiði bátatalstöðva
og leigir þær út.
1935 Stuttbylgjutalsamband og varaskeytasam-
band opnað milli Reykjavíkur og London
og Kaupmannahafnar.
Gefin út lög um sameiginlega yfirstjórn
póst- og símamála.
1938 Talsamband opnað milli skipa og síma-
notenda í landi.
1939 23-línu jarðsími lagður yfir Holtavörðu-
heiði sem uppliaf að langlinujarðsíma
norður i land, en hann var síðan fram-
lengdur alla leiðina milli Reykjavikur
og Hrútafjarðar.
1943 Landið girt í annað sinn með fjölsimum.
3-rása fjölsíma var komið á sunnanlands
milli Reykjavíkur og Reyðarfjarðar.
Lagning langlínujarðsíma hefst á Aust-
fjörðum með jarðsíma frá Seyðisfirði
til Reyðarfjarðar.
1946 Stuttbylgju tal- og skeytasamband opnað
milli Reykjavikur og New York.
Landssiminn tekur upp flugfjarskipta-
rekstur við erlendar flugvallastöðvar
og flugvélar.
Sjálfvirka stöðin í Reykjavik stækkuð
um /1500 nr.
1948 Sjálfvirka stöðin í Reykjavík stækkuð
um 2000 nr.
1950 Sjálfvirk simstöð sett upp á Akureyri
(1000 nr.) Landssíminn tekur við rekstri
Lóranstöðvarinnar á Reynisfjalli.
1951 Últrastuttbylgjusambandi komið á milli
Selfoss og Vestmannaeyja (9 talrásir).
1952 Biðtímalaus afgreiðsla tekin upp milli
Reykjavíkur og ýmsra stöðva á suðvestur-
landi (sjálfvirkt símasamband milli not-
enda í Reykjavík (og Hafnarfirði) og
afgreiðslufólks á hinum stöðvunum).
Sjálfvirka stöðin i Reykjavík stækkuð
um 1000 nr.
1955 Mikrobylgju-fjölsími (24 talrásir) settur
upp milli Reykjavikur og Keflavikur.
1956 Á 50 ára afmæli Landssimans voru hafnar
umræður við erlenda aðila um nýtt og
betra simasamband milli íslands og ann-
ara landa, sem siðar leiddu til samninga
um lagningu talsíma með neðansjávar-
mögnurum (1961—1962).
1957 Sjálfvirka stöðin í Reykjavik stæklcuð
um 60% (úr 10.000 i 16.000 nr.). Tekin
Afmælisblað VÍSIS
VÍSIR 50 ÁRA
69