Vísir - 14.12.1960, Page 69

Vísir - 14.12.1960, Page 69
ÞROUN SÍMANS Gunnlaugur Briem. Inngangur. Um taugakerfi mannslíkamans eru merki send um ótölulegan fjölda taugarása meS flutningi rafmagns, og fyrir milligöngu augans er tekið við raföldum (Ijósöldum) og þær greindar eftir styrkleika þeirra og tíðni, en þekking manna á lögmálum þessa taugakerfis er þó enn mjög takmörkuð, og er óupplýst, hvort það getur sent merki langt út fyrir líkamann. Á síðustu 100 árum hefur skapast nýtt tauga- herfi, símakerfið eða fjarskiptakerfið, sem fylgir yfirleitt kunnum lögmálum, sem gera hleift að segja fyrir um hegðun þess og auð- velt er að stjórna. Það getur flutt boð milli manna með notkun rafmagns og hefur mikið langdrægi, ekki aöeins um alla jörðina, heldur og langt út fyrir hana. Þótt þetta kerfi sé um margt ólikt hinu fyrrnefnda, kann framtíðin að sýna, að þessi kerfi eiga meira sameigin- legt en nú er vitað. Hið nýja kerfi hefur ef til vill orðið til vegna þarfa lífsins, líkt og svo margar aðrar breytingar. Það hefur ásamt ýmsu öðru skap- að aðstöðu til þess að fullnægja vaxandi kröf- nm lífsins til meiri hraða í atvinnulífi og sam- göngum, svo að unnt sé að veita sífjölgandi mannkyni lífsnauðsynjar og batnandi lífsskil- yrði, eins og nútíminn skilgreinir þau. Með því að flytja vitneskju milli manna á hraðari og fullkomnari hátt en áður, hefur sparast ótrúlega mikill tími og örðugleikar, sem mátti nota til aukinnar framleiðslu og samstarfs. Eftirspurn eftir síma er mikil og notkun hans vex hröðum skrefum. Nú eru um 150 miljónir símatalfæra i heiminum, en fyrir 15 árum voru þeir fimm sinnum færri. Fyrir einni öld fóru öll boð milli Evrópu og Ameríku fram í bréfum og með sendiboðum með skipum og voru lengi á leiðinni. Fyrsti varanlegi sæsiminn yfir Atlandshafið var lagð- ur 1866 og flutti aðeins skeyti, en það leið langur tími þar til almenningur gat talað þá leið, og þá i gegnum radiósamband á lang- bylgjum 1927, en síðar á stuttbylgjum. Það var þó ófullkomið og mjög háð truflunum. Siðan liðu 29 ár þar til talsambandið þessa leið varð öruggt og fullnægjandi með tilkomu talsæ- simans með neðansjávarmögnurum. Nú fara yfir 3 miljónir samtala árlega yfir Atlants- h' fið og fjölgar ört, en fyrir 15 árum fimmti hluti þess. Þróunin á íslandi. Þróun þessara mála hér á landi, sem þessi grcin á fyrst og fremst að fjalla um, hefur verið lýst opinberlega áður, t. d. i Minningar- riti Landssíma íslands (1926), i Þjóðhátíðar- blaði \isis (1944) og í ýmsum blöðum og timaritum 1956 i sambandi við 50 ára afmæli landssímans. Hér verður því farið fljótt yfir sögu og yfirlit yfir hana i aðalatriðum gefið rneð eftirfarandi ártalaskrá um minnisverða afanga og með línuritum, sem skýra sig sjálf. Tímabilið fram að 1906 má telja til forsögu simans hér á landi og má þar minnast eftir- farandi ártala: 1854 Danska stjórnin veitir T. P. Shaffner einkaleyfi til ritsímalinu yfir Færeyjar, fsland og Grænland, í sambandi við fyrirhugaðan sæsima þá leið milli Evr- ópu og Ameriku. 1861 Fyrsta símamálafrumvarpið samþykkt á Alþingi varðandi áðurnefnt einkaleyfi Shaffners. (Ekki varð úr framkvæmdum hjá .Shaffn- er). 1889 Verzlun Ásgeirs Ásgeirssonar leggur tal- sima milli verzlunarhúsa sinna á ísafirði. 1890 Telefónfélag Reykjavikur leggur talsíma- línu milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. 1891 Simalína var lögð milli ísafjarðar og Hnífsdals fyrir atbeina sýslusjóðs. 1891 Samþykkt á Alþingi að leita samninga við erlend ríki um fréttaþráð til íslands. 1895 Alþingi samþykkir að veita enskum manni Mitchell einkaleyfi til þess að leggja fréttaþráð frá Bretlandi til íslands. (Ekkert varð úr framkvæmdum). 1902 Alþingi skipar nefnd til þess að athuga um loftskeytasamband milli íslands og annara landa. 1904 Talsímahlutafélag Reykjavíkur stofnað, og opnaði það símstöð í Reykjavik með 15 notendum. 1905 Marconifélagið hefur tilraunir í Reykja- vík með viðtöku á loftskeytum frá Bret- landi. Hin eiginlega þróun símans hér á landi hefst þó fyrst eftir að landið hafði eignast sinn fyrsta ráðherra og sérstök simalög voru sett. Hún hefur siðan verið óslitin, en þó nokkuð ójöfn eins og i öðrum löndum í sam- ræmi við vaxandi kröfur atvinnulífs og ein- staklinga og samfara framförum i símatækni og fjárhagsgetu. Meðal merkra áfanga má nefna þessa: 1905 Ný simalög taka gildi. Samningar eru staðfestir við Mikla Norr- æna Ritsímafélagið um lagningu sæsíma til íslands (Seyðisfjarðar), einkaleyfi til símskeytareksturs um hann, og um fram- lag þessa félags til lagningar símalínu frá Seyðisfirði til Reykjavikur. 1906 Talsímasamband opnað milli Reykjavik- ur og Seyðisfjarðar. Ritsímasamband opnað milli Reykjavikur og útlanda. Landssími íslands stofnaður. Símalagn- ingar hefjast siðan viða um land og halda óslitið áfram. 1911 Sæsimi milli Vestmannaeyja og lands lagður af sérstöku hlutafélagi. 1915 Stofnað félag símamanna. Loftskeytastöðvar settar upp i 2 skipum Eimskipafélags íslands. 1918 Loftskeytastöðin í Reykjavik tekur til starfa. 1927 Lög um einkasíma i sveitum gefin út. 1929 Landið girt með símalínum. 1930 Útvarpsstöð sett upp í Reykjavík. Fyrsti fjölsími og fjarriti koma til lands- ins og tilraunir gerðar með þessi tæki meðal annars fjölsíma milli Reykjavíkur og Þingvalla. 1932 Föstu fjölsímasambandi komið á milli Reykjavíkur og Hrútafjarðar. Sjálfvirkar símstöðvar settar upp í Reykjavík og Hafnarfirði með sjálfvirku sambandi þar á milli. 1934 Landið girt með fjölsímasambandi. Landssíminn hefur smiði bátatalstöðva og leigir þær út. 1935 Stuttbylgjutalsamband og varaskeytasam- band opnað milli Reykjavíkur og London og Kaupmannahafnar. Gefin út lög um sameiginlega yfirstjórn póst- og símamála. 1938 Talsamband opnað milli skipa og síma- notenda í landi. 1939 23-línu jarðsími lagður yfir Holtavörðu- heiði sem uppliaf að langlinujarðsíma norður i land, en hann var síðan fram- lengdur alla leiðina milli Reykjavikur og Hrútafjarðar. 1943 Landið girt í annað sinn með fjölsimum. 3-rása fjölsíma var komið á sunnanlands milli Reykjavíkur og Reyðarfjarðar. Lagning langlínujarðsíma hefst á Aust- fjörðum með jarðsíma frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar. 1946 Stuttbylgju tal- og skeytasamband opnað milli Reykjavikur og New York. Landssiminn tekur upp flugfjarskipta- rekstur við erlendar flugvallastöðvar og flugvélar. Sjálfvirka stöðin í Reykjavik stækkuð um /1500 nr. 1948 Sjálfvirka stöðin í Reykjavík stækkuð um 2000 nr. 1950 Sjálfvirk simstöð sett upp á Akureyri (1000 nr.) Landssíminn tekur við rekstri Lóranstöðvarinnar á Reynisfjalli. 1951 Últrastuttbylgjusambandi komið á milli Selfoss og Vestmannaeyja (9 talrásir). 1952 Biðtímalaus afgreiðsla tekin upp milli Reykjavíkur og ýmsra stöðva á suðvestur- landi (sjálfvirkt símasamband milli not- enda í Reykjavík (og Hafnarfirði) og afgreiðslufólks á hinum stöðvunum). Sjálfvirka stöðin i Reykjavík stækkuð um 1000 nr. 1955 Mikrobylgju-fjölsími (24 talrásir) settur upp milli Reykjavikur og Keflavikur. 1956 Á 50 ára afmæli Landssimans voru hafnar umræður við erlenda aðila um nýtt og betra simasamband milli íslands og ann- ara landa, sem siðar leiddu til samninga um lagningu talsíma með neðansjávar- mögnurum (1961—1962). 1957 Sjálfvirka stöðin í Reykjavik stæklcuð um 60% (úr 10.000 i 16.000 nr.). Tekin Afmælisblað VÍSIS VÍSIR 50 ÁRA 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.