Vísir - 14.12.1960, Side 101

Vísir - 14.12.1960, Side 101
Melaskólinn 2. að skrifa læsilega og hreinlega snarhönd. 3. fjórar höfuðgreinar reiknings með heilum tölum og brotum og geta notað þær til þess að leysa úr auðveldum dæmum, sem koma fyrir i daglegu lífi, meðal annars til þess að -reikna flatarmál og rúmmál einföld- ustu hluta; það skal og vera leikið í þvi að reikna með lágum tölum í huganum.“ í nýju fræðslulögunum svokölluðu frá 1946 er sagt, hvers krafizt er til barnaprófs, en það próf er tekið ári fyrr en gamla fullnaðar- prófið, þ. e. árið, sem barnið verður 13 ára. Til barnaprófs er krafizt: „1. Að geta lesið móðurmálið skýrt og áheyri- lega með gallalitlum framburði og sagt munnlega frá þvi, sem lesið er. Að geta gert skriflega, nokkurn veginn ritvillu- og mállýtalausa grein fyrir kunnugu efni. Að geta leyst sæmilega úr réttritunarverkefni, þar sem fyrir koma dæmi um helztu undir- stöðureglur íslenzkrar réttritunar. Að kunna utanbókar nokkur íslenzk kvæði, einkum ættjarðarljóð og söguljóð, geta greint frá efni þeirra með; eigin orðum og vita nokkur deili á höfundum þeirra. 2. Að skrifa læsilega og hreinlega rithönd. 3. Að kunna fjórar höfuðgreinar reiknings með heilum tölum og að sýna nokkurra leikni í því að beita þeirri kunnáttu til úrlausnar einföldum dæmum, sem koma fyrir i daglegu lifi, m. a. til að reikna út óbrotið flatarmál. Um prófkröfur í öðrum lögboðnum námsgreinum skulu sett ákvæði i prófreglugerð jafnframt ákvæðum um, hvernig meta skuli í einkunnum lágmarks- kröfur til að standast próf.“ Eins og sést á þessum samanburði, eru kröfur nú i liöfuðgreinum að heita má þær sömu og fyrir 50 árum, en nemendur skulu hafa náð þeirri kunnáttu ári fyrr nú en þá. Þess her þó að gæta, að þá var skólaskylda í Reykjavík 4 ár, en er nú 6 ár til barnaprófs. Árlegur skólatími mun vera svipaður. Nú í haust verður lögð fram ný námsskrá, sam- ræmd fyrir allt skyldunámið. Þó að fræðsluskylda árið 1910 væri aðeins 4 ár. voru 8 bekkir í barnaskólanum, og mörg börn byrjuðu 8, 7, og fáein 6 ára í skólanum. Af 809 börnum í Barnaskóla Reykjavíkur skólaárið 1910—’ll voru 97 9 ára hörn, 61 8 ára, 20 7 ára og 3 6 ára börn. Vikulegur stundafjöldi 1910 í Barnaskóla Reykjavíkur var í 1. hekk 20 stundir, 2. b. 24, 3. b. 26, 4. b. 24, 5. b. 28, 6. b. 26, 7. b. 29 og 8. b. 29 stundir eða alls 206 vikustundir auk leikfimi og matreiðslu stúlkna. Nú eru vikustundir 8 skyldunámsáranna þessar. í barnaskólunum i 7 ára bekk 18, 8 ára b. 21, 9 ára b. 24, 10 ára b. 27, 11 ára b. 30 og 12 ára b. 32 stundir, og i unglinga- deildunum viðast 32 st. i 1. b. og 35 st. í 2. b., verða þetta samtals 219 vikustundir, en sé leik- fimi dregin frá, verða vikustundirnar 202 eða 4 færri en 1910. Iiver kennslustund hefur stytzt úr 50 mín. í 40 i barnaskólunum og 45 í ungl. og gagnfræðaskólum. Það er fróðlegt að sjá, hv.ernig skipting milli námsgreina befur breitzt. Tölurnar bér að neðan eru samanlagður slundafjöldi á viku i námsgreinum, í fyrsta dálki í öllum bekkjum 1910, í 2. dálki í 6 bekkjum barnaskólans og i 3. dálki í barnaskólum og unglingadeildum samtals 1960. Stundafjöldi 8 fyrstu skólaárin. Námsgrein 1910 1960 til barna- prófs 1960 alls til ungl- ingaprófs. fslenzka 39 49 61 Skrift 23 16 18 Reikningur 35 30 40 Lesgreinar 52 20 34 Átthagafr. 5 5 Danska 14 8 Enska 8 5 Söngur 8 5 5 Teikning 11 6 10 Handavinna 16 10 16 Samtals 206 141 202 Að auki var matreiðsla fyrir stúlkur 1910 í 3 bekkjum, en er nú i tveimur. Á þesu sést, að þáu börn, sem sátu i öllum 8 bekkjum skólans 1910 fengu að stundafjölda lieldur meiri kennslu en nem. fá nú á skóla- skylduárunum. Hins ber þó að gæta, að það voru aðeins fá börn, sem sátu í öllum bekkj- unum. Aðeins lítill hluti sat i 8. bekk. Vorið 1911 voru rúml. 160 börn í 3. og 4. b., rúml. 130 i 5. b., 69 i 6. b., 45 í 7. b. og aðeins 18 í 8. bekk. í bekkina var ekki raðað eftir aldri, í flestum voru börn úr 4—5 aldursflokkum og 14 ára neinendur luku skólanámi úr 4.—7. bekk. Það er liægt að bera saman stundafjölda, lengd námstíma og annað slíkt, en aðalatriðið, sjálft skólastarfið og árangur þess er bins vegar erfitt að vega og meta og því lítt ger- legt að bera saman tvö tíinabil livað það snertir. Það er sýnilegt, að mikil breyting befur á þess- um 50 árum orðið á dreifingu stundafjöldans milli námsgreina. Ilelztu breytingarnar eru í ís- lenzku, sem hefur mun fleiri stundir nú en þá, og i svokölluðum lesgreinum, þ. e. kristin- fræði, landafræði, náttúrufræði og sögu, en þar er stundafjöldinn nú aðeins % af því, sem hann var þá samtals, í öllum bekkjum. Árangur námsins hefur allan timann verið mældur með prófum, en prófum er löngum fátt sameiginlegt nema nafnið, og þau eru þvi óliæf til samanburðar. Undantekning frá þvi er þó fullnaðar- (barna-) próf í lestri, sem liefur verið með sama sniði og einkunnagjöf farið eftir sömu reglum frá 1930. Getur því verið fróðlegt að líta á nokkrar einkunnir í lestri frá þessum árum. Lestrareinkunnir 9 og 12 ára barna. 12 ára 9 ára Eink. Eink. Eink. Eink. Eink. Eink. Ár. 8-10 5-8 0-5 8-10 5-8 0-5 % % % °/o % % 1958 74.34 23.73 1.93 27.25 52.07 20.68 1953 74.97 22.90 2.13 41.48 45.52 13.00 1944 61.52 32.12 6.36 18.83 40.89 34.28 1936 61.73 31.03 7.24 22.00 42.70 35.30 Tölurnar frá 1936 eru af öllu landinu, frá hinum árunum aðeins úr Reykjavik. Á þessum einkunnum sést, að um almenna framför i lestri er að ræða á þessu timabili, en enn þarf að auka þar við. Hitt er einnig mikils virði, að réttritun skólabarna er nú almennt betri en nokkru sinni fyrr. Flámæli var orðið hér ískyggilega algengt, en kennar- ar skáru upp herör gegn þvi með þeim árangri, að það er nú að mestu horfið. Á síðustu fimmtíu árum hafa kennsluhættir furðu lítið breytzt. Lexíunám og yfirheyrsla hefur allan timann verið ríkjandi kennslu- aðferð. Margir kennarar hafa þó breytt til og komið með nýjungar, gert nemendur að Afmælisblað YÍSIS VÍSIR 50 ÁRA 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.