Vísir - 14.12.1960, Blaðsíða 103
launuð, eins og nú á sér oftsinnis stað. Stað-
reynd er, að margir kennarar koma aldrei
til kennslustarfa, heldur snúa sér þegar að
loknu prófi að öðrum störfum. Aðrir kenna
aðeins fá ár og hætta þá kennslustörfum.
Arið 1940 útskrifuðust t. d. úr Kennara-
skólanum 42 kennarar, en 10 árum siðar er
aðeins 31 þeirra í kennslustarfi.
Má ætla af framangreindu, að ýmsar aðrar
starfsgreinar geti boðið kennurum betri launa-
kjör en þeir hafa við kennslustörf.
Eftirfarandi tafla sýnir tölu kennara við
barna- og gagnfræðaskóla Reykjavikur.
Skóhir og skólabyggingar.
Miðbæjarskólinn, sem lengi var kallaður
Barnaskólinn í Reykjavik, er elzti barnaskóli
bæjarins. Húsið var vígt 4. okt. 1898 við mikla
viðhöfn, og var skólinn settur um leið.
Þar liélt Mortein Hansen skólastjóri ræðu
þar sem hann ræðir almennt um nauðsyn þess
að reisa þetta nýja skólahús, en meginþáttur
ræðu hans fjallaði um hlýðnina, hvernig börn-
in ættu að lilýða og hvers vegna. Þessum
þætti beindi hann til nemendanna.
Þótt þetta hús væri reist af stórhug, var það
orðið of lítið 1907, og var þá byggð við húsið
norðurálma, sem tekin var í notkun i árs-
byrjun 1908. Síðan er skólinn að mestu ó-
breyttur að öðru en þvi, að fyrir nokkrum
árum var byggt ofan á leikfimisalinn og gert
þar húsnæði fyrir heilbrigðiseftirlit. En fjölg-
un barna i bænum ör, þrengslin í skólanum
taka að segja til sin. Ráðamönnum skólans
er ljóst hvert stefnir, og á fundi bæjarstjórnar
Reykjavíkur 1916 flytur Sigurður Jónsson yfir-
kennari, (síðar skólastjóri), sem þá var bæjar-
fulltrúi, svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórn
felur skólanefndinni að taka til sérstakrar
yfirvegunar nauðsyn og möguleika þess að
byggja á næsta ári nýtt barnaskólahús fyrir
bæinn, eða viðbót við núverandi skólahús.“
Þessi tillaga var send skólanefnd, sem vísaði
henni til umsagnar skólastjóra. Um haustið
samþykkti skólanefndin að fækka kennslu-
stundum í deildunum vegna þrengsla, en leggur
til, að byggt verði nýtt skólahús i Austurbæn-
um. Á næstu árum er byggingarmálið oft til
umræðu, árið 1920 liggur fyrir fjárveiting
til undirbúnings málinu, staður valinn við
Barónstíg og ýmis undirbúningur hafinn. Það
er þó ekki fyrr en 1923, að fenginn er húsa-
nieistari — Sigurður Guðmundsson -— til þess
að teikna skólann. Árið eftir leggur hann fram
frumdrætti að skólaliúsinu, og samþykkt er að
veita á árinu 1925 kr. 300 þús. til byggingar
skólans, sem áætlað er, að muni geta kostað
allt að 1 milj. króna.
Ekkert verður þó úr framkvæmdum, en skóla-
nefndin gerir 6. nóv. ályktun um það, að
nauðsynlegt sé, að skólinn taki til starfa liaust-
ið 1927, enda er þá Barnaskólinn yfirfullur og
kennt er í leiguhúsnæði.
Leikfimissalur Miðbæjarskólans 1960.
Árið 1929 var unnið að því að fullgera 8
stofur, og hófst kennsla 9. nóv. það ár i 7
stofum.
Haustið 1930 er Austurbæjarskólinn að
niestu fullbyggður og tók þá til starfa. Voru
t*á liðin 14 ár, frá því að tillaga Sigurðar
Jónssonar kom fram.
Liður nú styttra á milli nýrra skólabygginga,
°g ganga þó framkvæmdir hægt.
Byggður er barnaskóli i Laugarnesi 1935,
Laugarnesskólinn, reyndar aðeins með 2 stof-
um auk Heimavistarinnar, en 1944 var aðal-
skólahúsið tekið í notkun, sem er með um 20
stofum. Árið 1936 er stofnaður nýr skóli i
Skildingarnesi, sem var i leiguhúsnæði, þangað
til Melaskólinn var byggður, en þar hófst
kennsla 1946, þótt byggingin væri ekki full-
gerð fyrr en nokkrum árum síðar.
Um og eftir 1940 fjölgar ört í bænum.
Aukast þá þrengsli mjög, og er þrísett og jafn-
vel fjórsett í skólastofur. Haustið 1952 tekur
Langholtsskólinn til starfa, 'Eskihliffarskóli og
Háagerffisskóli árið 1954, en þeir skólar eru
byggðir sem leikskólar og verða teknir til
leikskólastarfsemi, þegar þeirra er ekki lengur
þörf til barnaskólahalds, sem verður von
bráðar.
í desember 1955 var hafin bygging Breiða-
gerðisskólans, en smiði hans verður lokið á
næsta ári. Hófst kennsla i fyrsta áfanga hans
haustið 1956.
Árið 1957, í maí, var hafin bygging skóla-
húss við Réttarholtsveg -— Réttarholtsskóli, —
og var fyrsti áfanginn, 8 kennslustofur, tekinn
i notkun í nóv. um haustið. Er nú verið að
byggja 2. áfanga þess skóla, og verður honum
lokið næsta haust. Sama vor (1957) var hafin
bygging Hagaskóta við Hagatorg, og 8 kennslu-
stofur teknar í notkun í jan. 1958. Þar er nú
verið að byrja á byggingu 2. áfanga, sem er
mikil bygging, og verður hluti af henni tekinn
í notkun næsta haust.
Á árinu 1957 var einnig liafin bygging skóla-
húss við Gnoðavog — Vogaskóli —, og var
fyrsti áfanginn, 8 kennslustofur, tekinn í notk-
un í desember 1958. Haustið 1959 var hafin
kennsla í kjallara í nýjum áfanga skólans, og
um þessar mundir er sá áfangi að verða full-
byggður, mun kennsla hefjast þar í haust.
Verður þá kennt alls í 22 stofum, og eru þá
sérstofur taldar með.
Árið 1959 er byrjað á byggingu skólahúss
við Hamrahlíð — Hlíðaskóli — og hófst
kennsla þar um síðustu áramót. Bygging ann-
ars áfanga er þegar hafin, og verða 16 kennslu-
stofur fullgerðar haustið 1961.
Mun þá Eskihlíðarskólinn verða tekinn fyrir
leikskólastarfsemi.
Haustið 1959 hófst bygging skólahúss við
Laugalæk — Laugalækjarskóli —, og verður
kennt þar í vetur.
Eftir er að geta byggingu hins fyrsta gagn-
fræðaskólahúss í Reykjavík, — Gagnfræða-
skóla Austurbæjar —, sem var tekinn i notkun
liaustið 1948.
Nokkrir einkaskólar, sem hafa börn á fræðslu-
skyldualdri, starfa í bænum. Landakotsskóli
hefur starfað síðan árið 1896. Kennir hann til
barnaprófs. Skóli fsaks Jónssonar hefur starf-
að í aldarþriðjung. Eru þar árlega mörg 7 og
8 ára börn. Skóli S.D.A. tók til starfa árið 1943,
en nemendur jafnan innan við 20. í æfinga-
deildum Kennaraskólans eru árlega um 50 börn.
Haustið 1928 tók til starfa Ungmennaskólinn
í Reykjavík skv. lögum um bráðabirgða- ung-
mennafræðslu í Reykjavik frá 7. mai s. á. Þau
lög voru numin úr gildi með með lögum frá
19. maí 1930 um gagnfræðaskóla. Nefndist
skólinn eftir það Gagnfræðaskólinn í Reykja-
vik. Var hann til húsa á ýmsum stöðum í bæn-
um unz hann flutti’st í hið nýreista skólahús
árið 1948. Ári seinna var nafni hans breytt, og
heitir hann siðan Gagnfræðaskóli Ansturbœjar.
Sama ár og Ungmennaskólinn i Reykjavik
tók til starfa, stofnuðu nokkrir einslaklingar
í bænum gagnfræðaskóla, sem þeir nefndu
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga. Var hann þá
sniðinn eftir gagnfræðadeild Menntaskólans
og próf jafngild úr báðum. Siðan 1948 hefur
hann heitið Gagnfræffaskóli Vesturbæjar. Hann
er nú í Ieiguhúsnæði á Hringbraut 121.
Þegar fræðsluskylda var lengd og tveir efstu
bekkir hennar fluttir yfir á gagnfræðastigið,
þurfti að fjölga gagnfræðaskólum í bænum.
Veturinn 1948—49 störfuðu 1. bekkjardeildir
við alla barnaskólana og haustið 1949 tóku
tveir nýir gagnfræðaskólar til starfa, gagn-
fræðaskólarnir við Hringbraut og Lindargötu.
Unglingadeildir störfuðu eftir sem áður við
Miðbæjar- og Laugarnesskóla og starfa enn.
Gagnfræðaskólinn við Hringbraut fluttist
haustið 1958 í Hagaskóla og breytti þá um
nafn. Gagnfræðaskólinn við Lindargötu hefur
alla tíð verið i húsinu við Lindargötu 51. Þessir
skólar hafa nú báðir gagnfræðadeildir.
Árið 1956 tók til starfa gagnfræðaskóli við
Réttarholtsveg — Réttarholtsskóli —, með 1.
og 2. bekk, og árið eftir voru unglingadeildir
settar á stofn undir stjórn Langholtsskóla. Þær
fluttust í Vogaskóla, er hann tólc til starfa
liaustið 1958.
Landspróf miðskóla var fyrst eftir gildis-
töku fræðslulaganna tekið við gagnfræðaskóla
Austur- og Vesturbæjar. Haustið 1955 var stofn-
aður gagnfræðaskóli í Vonarstræti 1, sem ein-
ungis býr undir þetta próf. Starfar hann enn,
Afmælisblað VlSIS
VÍSIR 50 ÁRA
103