Vísir - 14.12.1960, Síða 111
Nýbygging bankans við Lækjargötu verður væntanlega tekin í notkun síðari hluta næsta
árs, og verður fijrirkomulag hennar þannig: Á götuhæð verður bankasalur á mestum hluta
hæðarinnar, afgreiðsla innlána, sparisjóðs- hlaupareiknings og víxillána. Á annari hæð
verður bókhald og afgreiðsla ýmissa bankaviðskipta, skrifstofa bankastjórnarinnar og fund-
arherbergi bankaráðs. Á 3. 4. og 5. hæð verða skrifstofur annara stofnana, jxtr til j)arfir
bankans fyrir meira húsnæði liafa aukist. í kjallara verða bankahólf og geymslur.
„Mun þess væntanlega ekki langt að bíða,
að frumvarpið verði flutt á Alþingi, og lítt
skiljanlegt annað en það verði loks afgreitt
sem lög“.
í bankancfnd iðnaðarins áttu sæti: Þorsteinn
Sigurðsson, H. .1. Hólmjárn, Sveinn Guðmunds-
son og Páll S. Pálsson.
Vandamál iðnaðarins.
Sókninni fyrir framgangi málsins var haldið
ósleitilega áfram. 13. október var haldinn fjöl-
mennur fundur í FÍI og og ýmsar ályktanir
gerðar varðandi lielztu vandamál iðnaðarins
og samþykktar áskoranir til Alþingis og rikis-
(' stjórnar. Er í nóvemberhefti íslenzks iðnaðar
birt bréf félagsstjórnarinnar til rikisstjórnar-
innar með ítarlegri greinargerð, sem birt er
í sama blaði.
í bréfinu var látin í ljós ósk urn, að rikis-
stjórnin tæki vandamál iðnaðarins til fljótrar
- yfirvegunar og vinni að lausn þeirra og nefnir
fyrst þessara vandamála lánsfjárskort iðnað-
arins og var m. a. lagt til, að iðnaðarbanki
verði settur á stofn og honum tryggt nægilegt
fjármagn.
Sigur vannst.
Þegar desemberblað íslcnzks iðnaðar kom
út i desember hafði frumvarpið um iðnaðar-
banka „lokið pislargöngu sinni gegnum allar
þrjár umræður i neðri deild og aðra umræðu
i iðnaðarnefnd efri deildar — og sigur málsins
framundan, þrátt fyrir andmæli gömlu bank-
anna þriggja, bankamálanefndar og þingmanna
Framsóknarflokksins á Alþingi — “.
Miklum áfanga var náð, til viðurkenningar
á tilverurétti iðnaðarins, jjegar löggjafarvaldið
hefur að lokum gefið legfi sitt til að ])eir,
sem þennan atvinnuveg stunda, sem má telja
þriðjung þjóðarinnar, megi fá heimild til að
stofna banka íslenzkum iðnaði til styrktar".
Ilér hefur aðeins verið stiklað á nokkrum
helztu atriðum, en bankinn var — sem í upp
hafi var sagt — stofnaður með lögum nr.
113 1951, afgr. 29. des. það ár.
Fimm ára afmæli.
Hinn 25. júní 1958 varð bankinn fimm ára,
en fyrr i þeim mánuði, þetta ár hafði verið
haldinn aðalfundur hans. Samkvæmt skýrzlum
formanns bankaráðs, Kristjáns Jób. Kristjáns-
sonar, á þeim fundi, voru innstæður i spari-
sjóði í árslok 1957 Cl.4 millj. kr. og höfðu
aukist um 12.6 millj. á árinu. Innstæður á
hlaupareikningi námu 24.1 millj. kr. og höfðu
aukist um 1.4 millj. kr. Innstæðuaukningin
nam því alls um 14 millj. kr. 1957. (Um innlán
nú, sjá að framan).
Enn í leiguhúsnæði.
Bankinn er enn í leiguhúsnæði, en innan
tíðar verður þar mikil breyting á, er hann
flytur í eigið liús, sem mun henta hið bezta
þörfum stofnunarinnar. Það þurfti langa og
skelegga baráttu til að fá leyfi til að stofna
bankann, Þar varð að sigrast á mörgum erfið-
leikum, og þegar til kom, að ráðast í það
að byggja yfir bankann, sem frá upphafi liefur
búið við ófullnægjandi húsnæðisskilyrði, þótt
allt hafi bjargast furðanlega — komu enn
ýmsir erfiðleikar til sögunnar, en þeir verða
eigi hér raktir, en loks er leiðin var greið að
hefja verkið, var hafist handa af krafti, og
birtist með yfirliti þessu mynd af stórhýsi
bankans við Lækjargötu, og er augljóst að
þarna er byggt af stórhug fyrir framtíðina.
VERKS M li> JU H US
Gnangrut 6eZur
GEGN H/TA
06 KULDA
+20°
Þér fáið einangTunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár-
um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður
sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt
er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota-
legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað).
8TEOULL 11. F.
Lækjargötu . Hafnarfirði . Simi 50976.