Vísir - 14.12.1960, Síða 121

Vísir - 14.12.1960, Síða 121
Olafur Björsson Þróun efnahagsmála ísland Á þeim 50 árum sem liðin eru frá þvi að dagblaðið Visir hóf göngu sina liefur orðið gjörbreyting i íslenzkum atvinnuháttum. Álirifa hinna miklu tæknilegu framfara, sem tóku að ryðja sér til rúms með hinni svonefndu iðn- byltingu i Englandi á seinni hluta 18. aldar tók ekki að gæta, hvað snerti islenzka fram- leiðsluhætti, fyrr en á seinni helmingi 19. ald- ar og þá raunar i smáum stil. Stofnun togara- útgerðar hér á landi upp úr aldamótunum 1900 var fyrsta stóra skrefið í þá átt að lands- menn tækju nútímatækni i þjónustu atvinnu- vega sinna. Þróunin var þó hægfara fyrstu tvo áratugi aldarinnar, enda olli fyrri heims- styrjöjdin og afleiðingar hennar nokkrum afturkipp. Á þriðja áratugnum urðu hinsvegar miklar framfarir en aftur dró úr þeim á fjórða tug aldarinnar af völdum heimskreppunnar miklu. Seinni heimsstyrjöldin olli að visu nokk- urri stöðnun í uppbyggingu atvinnuveganna, en hagstæð viðskiptakjör á styrjaldarárunum gerðu okkur kleift að safna nokkrum inn- stæðum í erlendum gjaldeyri, sem skópu grund- völl fyrir stórfelldum tæknilegum framförum á nær öllum sviðum atvinnulifsins að styrj- öldinni lokinni. Hefur sú þróun haldizt óslitið til þessa dags, þótt nokkrir afturkippir hafi komið um sinn vegna óhagstæðs verzlunar- árferðis og óheppilegrar fjármálaþróunar inn- anlands. Verða hér á eftir í stuttu máli raktir nokkrir mikilsverðustu þættir efnahagsþróunarinnar á þessu 50 ára skeiði. Fólksfjöldi og atvinnuskipting. Á því 50 ára timabili, sem hér er um að rseða hefur íbúafjöldi hér á iandi rúmlega tvöfaldast. Árið 1910 var ibúatalan 85 þús. manns, en í lok 1960 mun íbúatalan verða um 177 þús. Hefur fólksfjölgunin einkiim orðið ör síðan 1940, en frá þeim tima hefur hún numið um 2% á ári. Orsök hinnar miklu fólksfjölgun- ar er fyrst og fremst lægri dánartala en áður var, einkum minni ungbarnadauði. En jafnframt fólksfjölguninni hefur orðið mikil röskun á skiptingu fólksfjöldans milli landshluta og einkum skiptingunni. Árið 1910 bjó aðeins tæpur þriðjungur þjóð- arinnar i kaupstöðum og kauptúnum með 300 íbúum eða fleiri, en árið 1959 nálægt %. íbúatalo Reykjavíkur var árið 1910 11,6 þús. eða tæplega 15% af íbúatölu landsins, en árið 1959 71 þús. eða rúmlega 40%. Þessi mikli vöxtur þéttbýlisins á kostnað sveitanna hefur orðið samhliða þeirri þróun atvinnuskiptingarinnar, sem átt hefur sér stað á tímabilinu. Árið 1910 var landbúnaðurinn langstærsti atvinnuvegur þjóðarinnar, þannig að 57% liandsmanna höfðu þá framfæri sitt af honum, en 1950, sem er síðasta árið, sem upplýsingar liggja fyrir um atvinnuskiptingu, lifðu aðeins 19,9% þjóðarinnar af landbúnaði. Má þó telja víst, að sú tala hafi lækkað siðan. Þótt undarlegt kunni að virðast, hefur sá hluti þjóðarinnar, sem lifir af fiskveiðum, á sama tímabili lækkað úr 18,7% í 10,8% Skýr- ingin á þessu er að nokkru leyti sú, að full- i 1910-60 komnari skip og tæki hafa sparað mannafla við fiskveiðar, og að nokkru sú, að störf við fiskverkun, sem áður töldust til fiskveiða, teljast nú iðnaðarstörf. Þær atvinnugreinar, sem liinsvegar liafa verið i vexti á þessu tímabili, eru fyrst og fremst iðnaðurinn, en í öðru lagi verzlunin og störf við samgöngur. Hefur hundraðstala þeirra, sem vinna að iðnaði, hækkað úr 8,3% í 32,5% og þeirra, er stunda störf við verzlun og samgöngur úr 8,3% i 17,9%. Þær atvinnu- greinar, er einkum hafa verið í vexti á tíma- bilinu, eru að jafnaði staðsettar i kaupstöðum og stærri kauptúnum, þannig að náið samband er milli þeirra breytinga, sem orðið hafa á búsetu landsmanna og þróun atvinnuskipting- arinnar. Þróun landbúnaðarins. Um síðastliðin aldamót voru íslendingar bændaþjóð, þar sein meira en helmingur þjóð- arinnar iifði af þeim atvinnuvegi. En þótt landbúnaðurinn hafi siðan dregist svo saman, sem raun er á, bæði að því er snertir tölu þeirra, er við landbúnað starfa og i enn rikara mæli að þvi ei' snertir Jiann hluta þjoðarinnar, er stundar landbunaðarstörf, þa fer Jivi fjarri, að landbúnaðarframleiðslan liafi minnkað á þessu árabili. Aðalbúgreinar íslendinga liafa sem kunnugt er frá aldaöðti verið nautpeningsrækt og sauð- fjárrækt. En þrátt fyrir fólksfækkunina í sveitum landsins hefur nautpeningseign lands- manna um það bil tvöfaidast á umræddu tíma- bili en sauðfjáreignin aukist um nær 50%. Aukning landbúnaðarframleiðslunnar er þó meiri að tiltölu en aukningu bústofnsins nem- ur, þar sem betri fóðrun og hirðing búpenings leiðir til aukningar þeirra afurða, er hann gefur af sér, þannig mun kýrnyt nú t. d. um 50% meiri en fyrir 50 árum. Heyfengur á ræktuðu landi hefur á þessu tímabili 5—6-faldast, þannig að enda þótt útheysfengur sé nú aðeins helmingur á við Jiað, sem þá var, er um stórkostlega afraksturs- aukningu að ræða á þvi sviði. Landbúnaðarframleiðslan hefur þannig auk- izt verulega þrátt fyrir fólksfækkunina i sveit- unum, og er slíkt árangur þeirra miklu fram- fara, sem orðið hafa i landbúnaðinum á þessu timabili, sökum aukinna ræktunarframkvæmda, betri hirðingar og fóðrunar búfjár og síðast en ekki sízt vélvæðingar landbúnaðarins. Jarða- bætur i sináum stil hófust þegar á seinni hluta 18. aldar, en öll framþróun i þelm Ólafur Björnsson. efnum var þó mjög liægfara til loka 19. aldar- innar og raunar fram á 3. tug þessarar aldar. Milli 1880—90 voru stofnaðir 4 búnaðar- skólar hér á landi, sinn i hverjum lands- fjórðungi, og hefur starfsemi þeirra síðan haft ómetanlega þýðingu fyrir menntun bænda- efna og annað er til framfara mátti horfa fyrir landbúnaðinn. Um siðustu aldamót var Búnaða/félag íslands stofnað og skömmu siðar Ræktunarsjóður íslands. Hafa báðar Jiessar stofnanir ásamt bændaskólunum verið mikil lyftistöng framfara i iandbúnaðinum. Þröng- ur fjárhagur bænda var þó enn Þrándur í Götu meiri háttar átaka i búnaðarframkvæmd- unum, þótt nokkrir styrkir befðu að visu verið veittir öðru hverju í þessu skyni af hálfu Jiess opinbera allt frá þvi á ofanverðri 18. öld, að ríkissjóður Dana tók að veita nokkur verðlaun Jseim bændum er fram úr sköruðu um athafnir á sviði jarðabóta. Með jarðræktarlögunum frá 1923 voru fram- lög hins opinbera til jarðabóta hinsvegar mjög aukin, jafnframt þvi að fastari skipan var komið á slikar styrkveitingar en áður. Fóru jarðabótaframkvæmdirnar mjög i vöxt eftir setningu jarðræktarlaganna, Jiannig að tala unninna dagsverka að jarðabótum óx úr 102 þús. að meðaltali árin 1921—23 i 494 þús. árin 1925—30. Árin 1931—35 nam sú tala 638 þús. Árið 1936 voru sett ný jarðræktarlög, sem höfðu i för með sér nokkra hækluin fram- laga i þessu skyni frá Jiví sem áður var, jafn- framt þvi að sú breyting var gerð á fyrir- komulagi styrkjanna að Jieir voru framvegis miðaðir við afköst en eigi tölu dagsverka, svo sem áður hafði verið. Þrátt fyrir hækkun styrkja til jarðafcóta samkvæmt hinum nýju jarðræktarlögum jukust jarðabótaframkvæmdir þó ekki á næstu árum fram að heimstyrjöldinni síðari. Hefur það áfall, sem landbúnaðurinn varð fyrir um þetta leyti vegna sauðfjársjúkdómanna, er um Jiað leyti bárust til iandsins, óefað valdið hér mestu. Á seinni beimsstyrjaldarárunum varð verulegur samdráttur i jarðabótaframkvæmdum vegna örðugleika af.völdum styrjaldarinnar, Jsótt hag- ur bænda færi að öðru leyti batnandi á þvi tímabili, sökum hagstæðara afurðaverðs. Eftir seinni heimsstyrjöldina hófst hinsvegar mesta framfaraskeið, sem orðið hefur á skömm- um tima í sögu islenzks landbúnaðar. Hefur það 15 ára timabil, sem siðan er liðið, ein- kennzt af þeirri öru þróun vélvæðingar í iandbúnaðinum, sem siðan hefur átt sér stað. Vélvæðingin hefur gert það kleift að auka framleiðsluafköst 'í landbúnaðinum, enda þótt veruleg fólksfækkun hafi þar átt sér stað. Jafnframt hefur sökum vélvæðingarinnar, verið unnt að auka mjög ræktunarframkvæmdirnar. Má þar til nefna árangur þann, er náðst hefur með þvi að taka i notkun hinar stórvirku skurðgröfur. Árangur þessarar Jiróunar er sá, að nú fer mestöll heyöfiun bænda fram á ræktuðu landi. Fyrir 50 árum var heyfengur landsmanna um 1% millj. hesta, þar af þriðjungur, eða um Vi millj. hesta, töðufengur. Árið 1957 var hey- Afmælisblað VÍSIS VlSIR 50 ÁRA 121
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.