Vísir - 14.12.1960, Side 125

Vísir - 14.12.1960, Side 125
Ijúka, SamanlögS afkastageta Sogsvirkjananna er 72 þús. kw. Önnur mesta raforkufram- kvæmdin er virkjun Laxár nyrðra. Með raforkuframkvæmdunum hefur skapazt grundvöllur fyrir vísi að stóriðju og hafa tvö slík fyrirtæki verið stofnuð á þessum áratug, áburðarverksmiðjan i Gufunesi er tók til starfa 1953 og sementsverksmiðjan á Akranesi, er tók til starfa 1958. Kringum 1930 fór að vakna áhugi fyrir nýt- ingu heita vatnsins. Hefur áður verið getið um þróun gróðurhúsaræktunar. En skömmu fyrir stríð voru hafnar framkvæmdir við leiðslu hveravatns frá Reykjum í Mosfellssveit til Reykjavíkur.. Árið 1943 var vatn frá veit- unni leitt í hús í bænum. Síðan hefur hitaveita Reykjavíkur smám saman fært út kviarnar og nýtur nú um helmingur bæjarbúa heita vatnsins. Nokkrir kaupstaðir og kauptún utan Reykja- víkur hafa einnig komið sér á fót hitaveitu, svo sem Sauðárkrókur, Ólafsfjörður, Selfoss og Hveragerði, og fleiri hafa slíkt i undir- búningi, enda hafa hinir stórvirku jarðborar, sem nýlega hafa verið fluttir til landsins, aukið möguleikana á þessu sviði. Verzlun og samgöngur 1910—60. \'öxtur þéttbýlisins og aukin velmegun liafa leitt til þess að þáttur verzlunar og viðskipta 1 þjóðarbúskapnum hefur aukizt. Samkvæmt manntali 1950 höfðu 9,2% landsmanna fram- færi sitt af verzlun 1950 eða meira en nam þeim hluta þjóðarinnar er starfaði að verzlun og samgöngum samanlagt 1910. Árið 1910 voru alls starfandi hér á landi 447 verzlanir, voru það eingöngu smásöluverzlanir. Árið 1957 var tala verðlana 1870, þar af 304 heildverzl- anir. Á þessu 50 ára tímabili hefur átt sér stað gjörbylting í samgöngumálum landsins. í byrj- un þess áttu landsmenn engan verzlunarflota, þannig að flutningar til og frá landinu voru eingöngu í höndum erlendra skipafélaga, fyrst og fremst danskra og norskra. Akfærir vegir voru varla til og örfá vatnsföll liöfðu verið brúuð. Með stofnun Eimskipafélags íslánds árið 1914 var fyrsta stóra skrefið stigið í þá átt að koma upp innlendum verzlunarflota. Hóf félagið starfsemi árið eftir og hafði þá eignast 2 skip. Síðan hefur verzlunarfloti íslendinga farið vaxandi, einkum þó eftir seinni heims- styrjöldina. Nú eiga íslendingar 6 farþegaskip, 20 vöru- flutningaskip og 4 olíuskip, samtals 54739 lestir. Fullnægir floti þessi að mestu flutninga- þörf til landsins. Jafnhliða bættum samgöngum á sjó hafa orðið miklar umbætur livað snertir samgöngur á landi. í byrjun aldarinnar var varla um aðra vegi að ræða en troðna reið- vegi. Nú er akvegasamband við flest byggðar- lög landsins nema þau allra afskekktustu og þar sem landslag gerir vegalagningu mjög kostnaðarsama. Akfærir vegir nema nú alls nálægt 11000 km, jjar af lagðir vegir 6600 km, en ruddir vegir þannig að bílfærir séu, 4400 km. Sú grein satngöngumálanna, sem verið hefur þó í einna örastri þróun frá því er seinni heimsstyrjöldinni lauk, eru flugmálin. Flug- samgöngur innanlands hófust árið 1928, er Flugfélag íslands var stofnað. Starfaði það um 4 ára skeið, en varð þá að hætta störfum um sinn vegna fjárhagsörðugleika. Starfsemin hófst þó að nýju eftir nokkur ár, og var þá haldið uppi nokkrum flugsamgöngum innan- lands með 3—4 flugvélum. Flugvallaskortur hamlaði þó mjög slíkri starfsemi á þeim tíma. Hinar miklu flugvallargerðir hér á striðsárun- um bættu þó mjög úr í því efni, auk þess sem hyggðir hafa verið nokkrir flugvellir siðan á ýmsum stöðum á landinu. Nú eru hér starfandi tvö flugfélög sem auk innanlandsflugs hafa 7 flugvélar í flutningum milli landa, bæði til Evrópu og Ameríku. Þróun verðlags og fjárhagsmálefna. Eins og yfirlitið hér að framan um þróun hinna ýmsu atvinnugreina ber með sér, hafa Sisli c7. cZo/insen Stofnsett 1899. Firmað hefur verið brautryðjandi í margskonar fram- förum og framkvæmdum, svo sem: Þeir sem þurfa að kaupa fiskibát, vél til sjós eða lands, hinar landskunnu Q RIGINAL- Q □ H N ER reiknivél- ar, að ógleymdum varahlutum i vélar þær, er firmað selur, utanborðsmótora m. m ættu að leita til (ThcersTD Sisli <3. SoRnsen Túngötu 7. Símar 12747, 16647. Reykjavík. 189? hófst síldveiái sunnonlonds í Vesf monnaeyjum. 1904 vor fyrst setfur mótor í fiskibot í Vesfmannopyjum 1908 vor fyrsta vélfryshhúsiÓ byggf t Vestmannaeyjum. 1913 uör fyrsto innlendfl fiskimjöhuerbmihfln byy& í Vestmonnoeyjum. 1921 varu fyrstu olíupeymcrnir a hlandi byijtiVir í Vestmonnoeyjum. 192? voru íoftskeytatceki fyrsbeHífiskibát í Vestmannoeyjum. Afmælisblað YlSIS VlSIR 50 ÁRA 125
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.