Vísir - 14.12.1960, Blaðsíða 125
Ijúka, SamanlögS afkastageta Sogsvirkjananna
er 72 þús. kw. Önnur mesta raforkufram-
kvæmdin er virkjun Laxár nyrðra.
Með raforkuframkvæmdunum hefur skapazt
grundvöllur fyrir vísi að stóriðju og hafa tvö
slík fyrirtæki verið stofnuð á þessum áratug,
áburðarverksmiðjan i Gufunesi er tók til starfa
1953 og sementsverksmiðjan á Akranesi, er
tók til starfa 1958.
Kringum 1930 fór að vakna áhugi fyrir nýt-
ingu heita vatnsins. Hefur áður verið getið
um þróun gróðurhúsaræktunar. En skömmu
fyrir stríð voru hafnar framkvæmdir við
leiðslu hveravatns frá Reykjum í Mosfellssveit
til Reykjavíkur.. Árið 1943 var vatn frá veit-
unni leitt í hús í bænum. Síðan hefur hitaveita
Reykjavíkur smám saman fært út kviarnar
og nýtur nú um helmingur bæjarbúa heita
vatnsins.
Nokkrir kaupstaðir og kauptún utan Reykja-
víkur hafa einnig komið sér á fót hitaveitu,
svo sem Sauðárkrókur, Ólafsfjörður, Selfoss
og Hveragerði, og fleiri hafa slíkt i undir-
búningi, enda hafa hinir stórvirku jarðborar,
sem nýlega hafa verið fluttir til landsins,
aukið möguleikana á þessu sviði.
Verzlun og samgöngur 1910—60.
\'öxtur þéttbýlisins og aukin velmegun liafa
leitt til þess að þáttur verzlunar og viðskipta
1 þjóðarbúskapnum hefur aukizt. Samkvæmt
manntali 1950 höfðu 9,2% landsmanna fram-
færi sitt af verzlun 1950 eða meira en nam
þeim hluta þjóðarinnar er starfaði að verzlun
og samgöngum samanlagt 1910. Árið 1910
voru alls starfandi hér á landi 447 verzlanir,
voru það eingöngu smásöluverzlanir. Árið 1957
var tala verðlana 1870, þar af 304 heildverzl-
anir.
Á þessu 50 ára tímabili hefur átt sér stað
gjörbylting í samgöngumálum landsins. í byrj-
un þess áttu landsmenn engan verzlunarflota,
þannig að flutningar til og frá landinu voru
eingöngu í höndum erlendra skipafélaga, fyrst
og fremst danskra og norskra. Akfærir vegir
voru varla til og örfá vatnsföll liöfðu verið
brúuð.
Með stofnun Eimskipafélags íslánds árið
1914 var fyrsta stóra skrefið stigið í þá átt
að koma upp innlendum verzlunarflota. Hóf
félagið starfsemi árið eftir og hafði þá eignast
2 skip. Síðan hefur verzlunarfloti íslendinga
farið vaxandi, einkum þó eftir seinni heims-
styrjöldina.
Nú eiga íslendingar 6 farþegaskip, 20 vöru-
flutningaskip og 4 olíuskip, samtals 54739
lestir. Fullnægir floti þessi að mestu flutninga-
þörf til landsins. Jafnhliða bættum samgöngum
á sjó hafa orðið miklar umbætur livað snertir
samgöngur á landi. í byrjun aldarinnar var
varla um aðra vegi að ræða en troðna reið-
vegi. Nú er akvegasamband við flest byggðar-
lög landsins nema þau allra afskekktustu og
þar sem landslag gerir vegalagningu mjög
kostnaðarsama. Akfærir vegir nema nú alls
nálægt 11000 km, jjar af lagðir vegir 6600 km,
en ruddir vegir þannig að bílfærir séu, 4400 km.
Sú grein satngöngumálanna, sem verið hefur
þó í einna örastri þróun frá því er seinni
heimsstyrjöldinni lauk, eru flugmálin. Flug-
samgöngur innanlands hófust árið 1928, er
Flugfélag íslands var stofnað. Starfaði það um
4 ára skeið, en varð þá að hætta störfum um
sinn vegna fjárhagsörðugleika. Starfsemin
hófst þó að nýju eftir nokkur ár, og var þá
haldið uppi nokkrum flugsamgöngum innan-
lands með 3—4 flugvélum. Flugvallaskortur
hamlaði þó mjög slíkri starfsemi á þeim tíma.
Hinar miklu flugvallargerðir hér á striðsárun-
um bættu þó mjög úr í því efni, auk þess sem
hyggðir hafa verið nokkrir flugvellir siðan á
ýmsum stöðum á landinu. Nú eru hér starfandi
tvö flugfélög sem auk innanlandsflugs hafa
7 flugvélar í flutningum milli landa, bæði til
Evrópu og Ameríku.
Þróun verðlags og fjárhagsmálefna.
Eins og yfirlitið hér að framan um þróun
hinna ýmsu atvinnugreina ber með sér, hafa
Sisli c7. cZo/insen
Stofnsett 1899.
Firmað hefur verið brautryðjandi í margskonar fram-
förum og framkvæmdum, svo sem:
Þeir sem þurfa að kaupa fiskibát, vél til sjós eða lands,
hinar landskunnu Q RIGINAL- Q □ H N ER reiknivél-
ar, að ógleymdum varahlutum i
vélar þær, er firmað selur,
utanborðsmótora m. m
ættu að leita til
(ThcersTD
Sisli <3. SoRnsen
Túngötu 7. Símar 12747, 16647. Reykjavík.
189? hófst síldveiái sunnonlonds
í Vesf monnaeyjum.
1904 vor fyrst setfur mótor í fiskibot
í Vesfmannopyjum
1908 vor fyrsta vélfryshhúsiÓ byggf
t Vestmannaeyjum.
1913 uör fyrsto innlendfl fiskimjöhuerbmihfln byy&
í Vestmonnoeyjum.
1921 varu fyrstu olíupeymcrnir a hlandi byijtiVir
í Vestmonnoeyjum.
192? voru íoftskeytatceki fyrsbeHífiskibát
í Vestmannoeyjum.
Afmælisblað YlSIS
VlSIR 50 ÁRA
125