Vísir - 14.12.1960, Side 137
Sementsverksmiðjan er stærsta iðnaðarfyrirtæki landsmanna.
ullarvinnsla þ. á m. dúkar gólfteppi, prjón-
lesvörur o. fl., skinnasútun og alls konar skó-
iðnaður. Einnig stóraukin vinnsla kjötafurða
m. a. til niðursuðu.
Af verksmiðjuiðnaði, sem vinnur úr erlend-
um hráefnum, er málmiðnaðurinn þýðingar-
mestur og hafa í þessum iðnaði orðið risa-
vaxnar framfarir. Fyrstu stálskipin hafa þegar
verið smíðuð og fyrsta dieselvélin. Hefur þessi
grein lagt fram mikilvægan skerf til fiskiðn-
oðarins með smíði véla í frystihús og sildar-
og fiskimjölsverksmiðjur. Aðrar greinar í þess-
um flokki auk þeirra, sem áður eru taldar,
hafa einnig bætt vélakost sinn og aukið fram-
leiðsiumöguleikana. Má þar nefna skófram-
leiðslu, fatnaðarframleiðslu, ýmis konar um-
búðaframleiðslu, en þarfir fiskiðnaðarins og
annars verksmiðjuiðnaðar kröfðust hagkvæmra
og ódýrra umbúða, raftækjaframleiðsla, fram-
leiðsla á byggingarefni þ. á m. úr vikri til
einangrunar og úr hraungrýti, veiðarfærafram-
leiðslu, málningarframleiðslu og framleiðslu á
ýmsum snyrti- og hreinlætisvörum.
Þá ber liér að nefna raforkuframleiðsluna,
sem er undirstaða margra hinna þýðingar-
mestu iðnaðargreina. Með Efrafallsvirkjuninni
nýju hafa verið virkjuð 105602 kw vatnsafls
i vatnsaflsstöðvum og er ísland meðal fremstu
ianda í Evrópu um rafmagnsneyzlu á ibúa.
Þrátt fyrir allar þessar framfarir hefur iðn-
aðurinn á ýmsan hátt orðið afskiptur um
fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera. Ósann-
gjörn skattalög liafa komið í veg fyrir myndun
stærri fyrirtækja í einkaeign, iðnaðurinn hefur
verið afskiptur með lánsfé og skortur á erlend-
um gjaldeyri til vélakaupa og hráefnaöflunar
komið þyngra niður á ýmsum iðnaðargreinum
en eðlilegt var. Einnig hafa hömlur á fjárfest-
ingu verið iðnaðinum mikill fjötur um fót. Þó
má fullyrða, að augu almennings og stjórnar-
valda opnist æ meira fyrir gildi iðnaðarins
fyrir þjóðarbúskapinn.
Járniðnaðurinn er ein þýðingarmesta iðn-
greinin.
Merki um þetta er bygging áburðarverk-
smiðjunnar og sementsverksmiðjunnar, sem
liáðar eru byggðar fyrir atbeina ríkisvaldsins
°g að mestu leyti í eigu ríkisins, m. a. vegna
tess að einkaframtakið í landinu hafði eigi
yfir að ráða fjármagni til þess að ráðast í
tessar framkvæmdir á eigin spýtur, en erlend-
lr lánsmöguleikar einokaðir af ríkinu með
löggjöf.
Var bygging áburðarverksmiðjunnar fyrsta
atak til stóriðnaðar, sem byggt vgr á einum
•nikilvægasta þætti náttúruauðæfa landsins,
0rku fallvatnanna, en með þeirri ákvörðun
Var haft i huga að verksmiðjan gæti verið
stoð fyrir elzta og öldum saman helzta at-
vinnuveginn.
Einn þeirra erfiðleika, sem íslenzka þjóðin
varð að berjast við frá upphafi, var skortur
á hentugu byggingarefni í landinu sjálfu. Það
var því eðlilegt að næsta stórframkvæmdin
á sviði verksmiðjuiðnaðar væri einmitt bygg-
ing sementsverksmiðju. Á verksmiðjan eftir að
verða mikil lyftistöng fyrir ýmsar verklegar
framkvæmdir í landinu.
VERKEFNIN FRAMUNDAN.
Undanfarin ár hefur verið mikið rætt og
ritað um nauðsyn þess að gera atvinnulif
þjóðarinnar fjölbreyttara og efnahagsafkomuna
þar með öruggari, og hefur þá einkum verið
litið til aukins verksmiðjuiðnaðar. Ekki skal
hér rætt um framtiðarmöguleika þeirra greina
verksmiðjuiðnaðar, sem fyrir eru, en aðeins
vikið nokkrum orðum að því, sem oft er kall-
að stóriðnaður á íslandi.
Þegar um stóriðnað verður að ræða hér á
landi, mun hann fyrst og fremst byggjast á
þeim orkumöguleikum, sem fyrir eru í land-
inu, þ. e. vatnsafli og varmaorku. Áætianir hafa
verið gerðar um virkjunarmöguleika vatns-
aflsins og eru hagkvæmir virkjunarmöguleikar
taldir yfir 20.000 millj. kwst. á ári, en tækni-
lega séð mun vera hægt að virkja talsvert
meira. Nú hefur einungis verið virkjað vatns-
afl, sem nemur 2V<—3% þessárar orku. Ein-
hver stærsti iðnaður, sem rætt hefur verið um
að setja hér upp til hagnýtingar vatnsorkunnar,
er aluminiumframleiðsla, en einnig hafa verið
gerðar athuganir í sambandi við ýmsan raf-
magnsfrekan efnaiðnað.
Um jarðhitann er erfiðara að áætla en vatns-
orkuna. Hefur þó verið komizt að þeirri niður-
stöðu, að ef jarðhitinn væri notaður til upp-
hitunar, sé hann allt að þvi eins mikill og
vatnsorkan. En gufuna má einnig nota til
rafmagnsframleiðslu og sem hitaorku í ýmis
konar efnaiðnaði. Þar hefur verið bent á ýmsa
notkunarmöguleika, m. a. framleiðslu á þungu
vatni. Þá inniheldur gufan ýmsar lofttegundir,
sem liafa mikla þýðingu í efnaiðnaði, þar sem
töluvert magn fæst af þeim.
Áður en hafizt verður handa um liagnýtingu
náttúruauðæfa landsins til stóriðnaðar, verðum
við að gera okkur Ijóst, að verulegt átak á
þessu sviði verður ekki gert nema með aðstoð
erlends fjármagns og þarf að vinda bráðan
bug að þvi að setja löggjöf, sem gerir það
kleift, að erlent einkafjármagn fáist til fram-
kvæmda hér og atvinnuuppbyggingar.
Sá verksmiðjuiðnaður, sem nú er hér og
þeir iðnaðarmöguleikar, sem bundnir eru við
virkjun fallvatna og hagnýtinu á jarðgufu gefa
okkur ástæðu til þess að ætla og vona að
Island geti orðið hlutgengur aðili í efnahags-
samstarfi hinnar frjálsu Vestur-Evrópu vegna
iðnaðarframleiðslu, sem byggjast mundi á
náttúruauðæfum landsins. En hvort sem þær
vonir rætast eða ekki er verksmiðjuiðnaðurinn
i dag orðinn einn af máttarstólpum þjóð-
félagsins og á eflingu þessa framtíðaratvinnu-
vegar veltur að miklu leyti hvort hægt verður
að halda uppi núverandi lífskjörum í landinu
og bæta þau.
Ei ÖFUM sérlega gott úr-
val af karlmannaföt-
um og karlmannafataefnum
í nýtízku munstrum, þar á
meðal Regnbogamunstur.
★ I
H A N N A R T - snið.
★
Últíma h.f.
Afmælisblað VÍSIS
VÍSIR 50 ÁRA
137