Vísir - 14.12.1960, Page 146

Vísir - 14.12.1960, Page 146
Ólafur L. Jónsson. „Viltu lána mér Vísi fram að helgi . . .?” Olafur L. Jónsson, sýningarstjóri, rifjar upp gamlar minningar. Eins og fram kemur hér, hefur Vísir leitazt við að hafa samband við ýmsa þá, sem unnu við blaðið á fyrstu mánuðum þess og árum. Hefur tekizt að hitta nokkra að máli, enda þótt þeir séu vafalaust í meirihluta, sem elcki hefur lánast að hafa upp á, og er skýr- ingin eðlilega sú, að það er erfitt að hafa sam- band við þá, sem tengdir eru svo löngu liðnum atburðum. Þó væntir Vísir þess, að þeir séu ekki margir, sem gengið liefur verið framhjá, og að þeir fyrtist ekki, þótt ekki hafi verið talað við þá, því að ekki er slíkt gert af ásettu ráði. ★ Einn fyrsti söludrengurinn, sem seldi Visi á götum bæjarins, var Ólafur L. Jónsson, sem nú hefur verið starfsmaður og sýningarstjóri í Nýja bió áratugum saman, vinsæll maður og vinmargur. Þegar Vísir ætlaði að fá hann til að rifja upp fyrsta samband sitt við blaðið, var Ólafur í fyrstu harla tregur til, en þó fór svo, að liann lét til leiðast að rifja upp fyrir sér sitt af hverju, sem gerðist i þá daga. — Manstu, Ólafur, hvernig veðrið var fyrsta daginn, þegar blaðið kom út og þú fórst að selja? — Ég var víst ekki við þetta fyrsta daginn, þótt ég muni nokkurn veginn, hvenær þetta nýja blað lióf göngu sína. En þegar ég gerðist söludrengur hjá Vísi, var veður leiðinlegt, hraglandi nokkur og þetta var kaldsamt starf. Það var enn kuldalegra að vera söludrengur þá en nú, jjvi að nú er byggðin í bænum allt öðru vísi. Húsin voru minni þá og það var Icngra bil á milli þeirra, svo að gjósturinn komst auðveldar á milli þeirra — það var færra, sem hindraði Iiann. En þá var ekki eins mikill hiti í húsunum inni og nú, svo að við vorum vanari kuldanum. — Og hvernig voru vinnuskilyrðin, ef svo má að orði komast? — Þau voru að flestu leyti lík því, sem nú er, og ])ó var hraðinn vitanlega ekki eins mikill og nú. Bæði útgefandi og sölustrákar töldu nægilegt, að hver tæki svona 20—30 blöð. Það var alveg undir hælinn lagt, livort maður seldi þessi blöð, því að þetta var tals- verður fjöldi, en maður tók það ekki nærri sér, þótt fáein blöð gengju af. Þá var blaðið selt á þrjá aura eintakið, og við fengum hvorki meira né minna en einn eyri á eintakið, og verða það að teljast góð sölulaun. En það var sjálfsagt að láta okkur liafa svona góðan „hlut“ i byrjun, þvi að ekki veitti af að vekja áhuga stráka, sem höfðu aldrei selt dagblað áður, því að um leið og sölustrákunum fjölg- aði, urðu fleiri bæjarbúar varir við blaðið. Það er því óhætt að segja, að hagsmunir okkar fóru að öllu leyti saman, útgefanda og strák- anna. —■ Þið urðuð samt fyrir einliverjum von- brigðum í upphafi, var það ekki? — Jú, við urðum þess nefnilega áskynja, að það var búið að bera blaðið á ýmsa staði í auglýsingarskyni, svo að salan varð ekki eins mikil og ella hefði mátt ætla. En það gat vitan- lega einnig verkað sem auglýsing gagnvart öðrum. — Mér er sagt, : ð þú hafir eiginlega verið einskonar upphafsmaður að því, að Visir fór að leita eftir áskrifendum. Hvað kanntu að segja mér um það? — Þetta vildi þannig til, að ég hafði lagt leið mína suður Laufásveginn, sem var vitan- lega fjarri því að vera eins Iangur og nú. Ég kom við í mjólkur- og brauðbúðinni hjá lienni Helgn Jónsdóttur á Laufásvegi 37 og fékk mér vínarbrauð til að hressa mig. Þá kom þar inn kona, sem ég þekkti ekki, og þegar hún sá að ég var með Vísi, sagði liún við mig: „Drengur- inn vildi vist ekki lána mér einn Vísi fram að helgi, þegar maðurinn minn fær útborgað.“ Þá kostaði Vísir þrjá aura, eins og ég var bú- inn að segja, og þótt aurarnir væru ekki marg- ir, voru þeir mun verðmætari en nú gerist Það var þvi eiginlega nokkuð mikilvæg á- kvörðun, sem ég varð að taka þarna, hvort ég ætti að lána konunni lieila þrjá aura, en ég afréð að láta kylfu ráða kasti og gera þetta. — Og hvernig fóru þessi viðskipti? — Það stóð ekki á því, að konan stæði við loforð sitt, enda ráðvendni talin sjálfsagðari þá en nú, eða svo hefur mönnum talizt. En þetta varð upphaf þess, að ég spurði Einar Framhald á bls. 150. Hann gekk um bæinnog spurði menn almælfra tíðinda. Fyrsti fréttaritari Vísis var Magnús Gíslason rithöfundur. Magnús Gíslason rithöfundur og skáld var fyrsti fréttaritari Vísis. Hann er fæddur að Helgadal i Mosfellssveit, en fluttist til Reykja- víkur tvitugur að aldri. Hann býr nú í Grjóta- götu 14. Magnús er landskunnur fyrir bækur sinar og ljóðagerð m. a. fyrir Ijóðið: „Nú rikir kyrrð i djúpum dal“, sem lifir á vörum þjóðarinnar. Fyrsta bók, sem hann gaf út (ásamt Jens Sæmundssyni) er Morgunljómi, sem kom út 1906. Síðan hefur hver bókin rekið aðra og má þar nefna Rúnir, Ábyrgðina, Ljóðmæli, Söngur — kvæði — stökur, Kver um Káinn, Sagnakver og tímaritið Gest. Magnús stendur nú á áttræðu. — Ég hefi líklega verið fyrsti fréttaritari Vísis, sagði Magnús þegar blaðamaður Vísis átti tal við hann í sumar. — Komuð þér að blaðinu strax og það var stofnað? — Það held ég að hafi ekki verið, en mjög fljótlega samt. — Og gerðust þér þá blaðamaður? — Verkskiptingin hefur vist verið eitthvað öðruvisi þá en nú. Ég vann jöfnum höndum við Magnús Gíslason. afgreiðslu blaðsins og afhenti strákunum blað- ið þegar það kom út á daginn, sem við frétta- öflun og auglýsingasöfnun. — Hvernig fóruð þér að við að afla frétta í blaðið? -— Ég tók mér gönguferðir um bæinn, talaði við þá sem ég hitti og þekkti og spurði þá almæltra tíðinda. Svo labbaði ég flesta morgna niður að höfn að hyggja að skipakomum. Þá þóttu það mikil tíðindi hvert skipti, sem skip bar að landi. Ég sat á bæjarstjórnarfundum, hlustaði þar á umræður og sagði frá þeim i blaðinu. Það var stundum liarka í umræðunum, sennilega ekki siður en nú. Glæpa- og lögreglu- fréttir voru nær óþekktar í bæjarlífinu. Þó skeði sá atburður í Reykjavík haustið 1913, sem þótti óhugnanlegur mjög, en þá byrlaði kona 146 VÍSIR 50 ÁRA Afmælisblað VÍSIS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.