Vísir - 04.09.1961, Qupperneq 9
Manuaagur i. sepremoer i»oi
flBIB
9
-- .. - ■■ 1■ ................
Kristindómur o§ kommúnismi eru andstæður.
Rætt við sr. Árna Pálsson,
nývígðan til IVIiklaholts-
prestakalls
Hér áður fyrr var það
allalgengt, að prestssyn-
ir tækju viS af feSrum
sínum í sama prestakall-
inu. Á þessari öld hefur
þetta aS miklu leyti lagzt
niSur, en nú hefur ungur
guSfræSingur veriS
vígSur ' til prestakalls,
sem aS vísu ekki faSir
hans, heldur afi þjónaSi.
Þessi ungi prestur heitir
Árni Pálsson og er dóttur-
sonur eins af frægustu prest-
um hérlendis, að minnsta
kosti á seinni tímum, séra
Árna Þórarinssonar, sem
þjónaði Miklaholtspresta-
kalli á Snæfellsnesi í 48 ár,
og sagðist hafa verið hjá
„vondu fólki“, en vildi þó
hvergi vera nema þar.
í tilefni af vígslu séra
Árna Pálssonar fór ég til
hans nú í vikunni og rabbaði
við hann alllanga stund.
— Hvenær tókst þú guð-
fræðipróf?
— Ég tók guðfræðipróf
1954, en hef síðan kennt við
Gagnfræðaskólann við Lind-
argötu hér í bænum og kon-
an mín, Rósa Björk Þor-
björnsdóttir, hefur einnig
kennt á gagnfræðastigi, eft-
ir að hún lauk B.A. prófi frá
háskólanum og hefur hún
kennt unglingum, sem af
ýmsum ástæðum hafa dregizt
aftur úr í námi.
— Hvers vegna sækja ung-
ir prestar um sveitapresta-
köll nú til dags?
— Ja, hvað mig snertir, þá
kann ég vel við mig í sveit,
en afi minn var þarna prcst-
ur í 48 ár og bæði var ég hjá
honum, þegar ég var barn,
og eins var ég þarna í vega-
vinnu, sem unglingur. Af
þessum ástæðum langaði mig
feiknmikið til þess að fá
þetta prestakall, þegar það
. losnaði. Ég þekki velflest
sóknarbörnin að minnsta
kosti af afspurn. Svo er
þarna mjög góður aðbúnað-
ur, miðað við það, sem gerist
á prestssetrum, hús yfir
bæði menn og skepnur, en
eins og kunnugt' er hefur
mjög viljað bresta á það á
mörgum prestssetrum og
prestar jafnvel hrökklast úr
brauðunum fyrir þær sakir.
— Ég er nú ókunnur
þarna, en hvar er prestssetr-
ið?
— Sóknin heitir Miklaholts
_y
prestakall, eins og þú veizt,
en prestssetrið er í Söðuls-
holti. Afi bjó á sinni eignar-
jörð, Stóra Hrauni, en áður
var prestssetrið í Miklaholti.
Söðulsholt er nokkuð góð
jörð, þar er rimlafjárhús
fyrir 240 ær, en jörðin ber
töluvert meira af skepnum.
Ég ætla mér að hafa þarna
kindur og hesta. Ég hef allt-
af haft gaman af hestum.
Kýr verð ég engar með, að
minnsta kosti ekki fyrst um
sinn, þarna er ekkert raf-
magn nema frál jósamótorum
og þess vegna óhægt um vik
að hafa mjólkurframleiðslu.
— Þú átt börn, er það ekki,
og hvað segja þau við því
að flytja upp í sveit?
Séra Árni Pálsson.
— Ég á tvo syni, annar 7
ára, sem heitir Þorbjörn
Hlynur og hinn 4 ára, sem
heitir Þórólfur og þeir eru
báðir mjög hrifnir, enda eru
þeir á bezta aldri að flytja
upp í sveit, konan 'er einnig
ánægð og hún hefur sótt um
kennsluna í sveitinni.
— Hvernig er starfj sveita-
prests háttað nú á dögum?
Það hlýtur að hafa breytzt
mikið frá því, sem áður var?
— Það hefur það eðlilega
gert. Það er gert ráð fyrir, að
prestar húsvitji alla bæi í
sókninni á tveimur árum.
En presturinn hefur miklu
verri skilyrði nú til þess að
fylgjast með guðrækni fólks-
ins á þessum tímum, þegar
hin gamla heimiiistrúrækni
hefur að langmestu leyti
lagzt niður. Áður voru hús-
lestrar lesnir og þegar prest-
urinn húsvitjaði, þá las
hann gjarna lesturinn. Nú
eiga prestar miklu erfiðara
um vik að komast að fólkinu,
ef svo mætti segja.
Annars hugsa ég mér gott
til að hafa áhrif á börnin i
sókninni. Skólinn í Eyja-
hreppi er staðsettur á prests-
setrinu og þess vegna er hægt
um vik að hafa náið sam-
band við börnin. Auk þess er
félagsheimili í öllum 3 hrepp
unum, Kolbeinsstaðahreppi,
Eyjahreppi og Miklaholts-
hreppí og í sambandi við það
gefast manni einnig tæki-
færi. Starfsskilyrði er þarna
sem sagt mjög góð.
♦
— Hvað finnst þér um fyr-
irkomulag prestskosninga,
eins og það er nú?
— Það er algerlega óvið-
unandi, eins og nú er. Þarna
blandast svo margt inn í,
sem ekki kemur í rauninni
málinu við, eins og t. d. póli-
tík. Ég hef tvisvar sinnum
verið frambjóðandi í þannig
prestskosningum, að það var
beinlínis dásamlegt að falla
miðað við að ná kosningu,
vegna þess hve mikill hluti
kjósendanna voru fyrirfram
á móti prestinum vegna
hinnar hörðu kosningabar-
áttu. Skömmu eftir að ég
lauk guðfræðiprófi bauð ég
mig fram í tveimur presta-
köllum, á Mosfelli og á
SMH&'ðWÁ Váðum presta-
köllunum voru mjög margir
umsækjendur. Á Mosfelli
voru 5 umsækjendur og á
Siglufirði 6. í kosningunum
fékk ég meira að segja að
heyra það upp í opið geðið
á mér, að ég væri nú þess-
háttar maður, sem ekki væri
óhætt að mæta á dimmri
götu í myrkri. Það kom nú
líklega til af því, að ég var
einn af þessum 30, sem voru
dæmdir fyrir þátttöku í ó-
eirðunum 30. marz 1949, sem
spunnust út af innöngu ís-
lands í NATO.
— Varstu þá kommúnisti?
— Ég veit ekki hvað skal
segja. Hefur kommúnista-
stimpillinn hér á landi ekki
alltaf verið notaður til að
knésetja andstæðinga? Ég
hef alltaf haft mikla samúð
með verkamönnum og launa-
stéttunum yfirleitt, og faðir
minn var enda verkamaður,
svo að það er ekki nema eðli-
legt.
— Eru kommúnismi og
kristindómur samrýmanleg-
ir?
— Ja, við prestarnir verð-
um náttúrlega ekki síður að
hugsa um kommúnistana en
aðra, megum og getum ekki
gert á því neinn greinarmun
hvaða stjórnmálaskoðun
fólk hefur, vilji það Guðs
boðun. En það hlýtur hver
maður að sjá, að þarna eru
hreinar línur og þetta tvennt
er í eðlj sínu al«jörlega and-
staétt hvort öðru, ef trúa má
orðum forystumanna heims-
kommúnismans. Sannur
kommúnisti trúir ekki á Guð.
— Hvað finnst þér þá um
deiluna milil séra Gunnars
Árnasonar og Morgunblaðs-
ins?
— Ég hefði nú búizt við,
að ritdeilan mundi verða
miklu frjórri,en hún hefir að
mestu leyti verið deila um
keisarans skegg og á Morg-
unblaðið óneitanlega mesta
sök á því. Ég hef lesið sumt
í bókum Stanley Jones, sem
séra Gunnar vitnar í. Þær
eru mjög vel skrifaðar, en
mér finnst sumar þær niður-
stöður, sem hann kemst að
vera dálítið vafasamar, þótt
margt sé rétt og satt.
í sambandj við þetta finnst
mér mega geta þess, að við
Vesturlandamenn, -sem
kristnir erum berum meiri
ábyrgð en ef til vill aðrir,
vegna þess að við erum
kristnir og það er hörmulegt
til þess að vita, þegar strang-
kristin þjóð, eins og t. d.
Portúgalar hafa alla tíð ver-
ið, skuli gera sig seka um
slík hryðjuverk, eins og þeir
hafa gert í Angola, og banda-
menn þeirra virðast eftir
þögninni að dæma ánægðir.
t
— Hvernig finnst þér um
kirkjuna hugsað hér á landi
og hvers vegna er hún í þeim
öldudal, sem flestir viður-
kenna, að hún er í?
— Það er alltof lítið gert
fyrir kirkjuna af hálfu hins
opinbera. Á Norðuröndum
hafa jafnvel heyrzt þær
raddir, að stjórnvöldin vinni
gegn henni, vegna þess að
þau vilji ekki, að hún sé
sterk. Mér virðist sífellt
halla á kirkjuna einnig hér.
Það eru margar ástæður,
sem þar koma tii greina. Ein
er sú, að hin veraldlegu yf-
irvöld hafa ekki gert sér
grein fyrir því, að kirkjan
þarf líka að taka tillit til
þeirra breytinga, sem orðið
hafa. Prestamir geta ekki
unnið sitt starf fyrir kirkj-
una, nema að hafa til þess
skilyrði. f því sambandi má
benda á tvö dæmi, annað
smávægilegt, en hitt stórt.
Hvers vegna er ekki prestun-
um og kirkjunni falin að
einhverju leyti stjórn félags-
heimilanna? Með því móti
mundi tvennt mjög mikilv.
vinnast. Prestarnir kæmust
í betra samband við unga
fólkið og ekki síður hitt, að
þá mundi að miklu leyti
mega hindra það, að félags-
hei'milin verði að þeim svall-
stöðum, sem þau nú víða eru.
Þetta er mál, sem vandlega
ætti að athuga og hrinda í
framkvæmd. Hitt atriðið er
kannski smávægilegt, en
samt táknrænl fyrir virð-
ingarskort valdhafanna fyrir
trúboðinu. Núna fá læknar,
sýslumenn og ljósmæður
gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi fyrir bíl með einhverju
vissu árabili, en ekki prest-
ar. Það virðist vera skoðun
stjórnarvalda, að þeir eigi að
ferðast fótgangandi eða ríð-
andi, eins og þeir hafa gert
um aldaraðir. Þetta verður
að breytast, prestarnir geta
ekki gengt hlutverki sínu í
dag, nema að hafa starfsskil-
yrði á við aðra embættis-
menn. Menn verða að gera
sér grein fyrir því, að ef
Páll postuli hefði verið uppi
í dag, þá hefði hann ekki
ferðast fótgangandi, hann
hefði áreiðanlega ferðast
með þotum.
— Úr því, að þú minnist á
postulann Pál, hvað finnst
þér þá um kvenpresta, það
hefur nú einmitt verið vitn-
að í Korinthubréfið af þeim,
sem eru á móti því að konur
verði vígðar.
— Mér finnst sjálfsagt að
konur fái vígslu. Konur eiga
t. d. mikið betra um mór-
alskar prédikanir en karl-
Frh. á 10. síðu.