Vísir - 04.09.1961, Side 16
visir
Mánudagur 4. septeinbcr
300 tonn
af karfa.
í MORGUN komu tveir togar
ar af veiðum hér á heimamið-
um, með um 150 tonn af karfa
hvor, eftir 12 daga úthald. Var
annar togaranna Askur en hinn
Þorsteinn Ingólfsson.
Fréttastofa Islands rá
Á fundi í Blaðamanna-
félagi Islands í gær var
samþykkt að félagiS
skyldi beita sér fyrir stofn-
un Fréttastofu Islands og
mun félagiS hefja athug-
anir á starfsgrundvelli
slíkrár fréttastofu á næst-
unm.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum um þetta mál og
hafði Jón Magnússon, frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins framsögu
í málinu. Hann benti á það,
hve óviðunandi það ástand
væri í fréttaöflun utan af landi,
að hvert einasta blað hefði
sinn eigin fréttaritara í hverju
plássi. Yrði það mikill sparnað-
ur og léttir við blaðaútgáfu, að
ein fréttastofa annaðist öflun
frétta fyrir öll blöðin. Þá taldi
hann og að það myndi verða
hagkvæmara að erlendar frétt-
ir bærust til landsins gegnum
eina fréttastofu, sem annaðist
þýðingu á þeim og dreifði þeim
til allra blaðanna, og í því fólg
inn mikill vinnusparnaður.
Stálu frá stúlkunni til að
borga nætursvall.
TVEIR piltar 17 og 18 ára, er
voru að skemmta sér aðfara-
nótt laugardagsins með tveim
ungum stúlkum annarri úr
Hafnarfirði, gerðust sekir um
það að stela frá þeirri hafn-
firzku 3100 krónum. Þetta gerð
ist aðfaranótt laugardagsins.
Ungu stúlkurnar og vinir
þeirra tveir, höfðu ekið þá nótt
framundir morgun í leigubíl og
haft áfengi um hönd í bílnum
og notuðu þeir peningana í
6-manna
nefndin.
í gærdag, á sunnudaginn,
sat sexmannanefndin svonefnda
á fundi mikinn part úr degin-
um, til að ræða um væntanlegt
verðlag á landbúnaðarafurð-
um.
í sumar sögðu bændur upp
verðlagsgrundvellinum.
Hækkanir þær er urðu á land
búnaðarvörum í sumar, og
komu í kjölfar verkfallanna,
voru í beinu sambandi við þær
bækkanir er urðu á mjólkur-
vinnslu og dreifingu hennar og
öðru er þar fellur undir.
Bændur eiga eftir að fá sínar
hækkanir, sem samsvara eiga
þeim hækkunum er verkamenn
fengu er verkfallinu lauk. Með-
al þess sem fjallað verður nú
um er endanlegt verð á kinda-
kjöti nú í ár. Verð það sem nú
er í gildi, er miðað við verð á
sumarslátruðu og er það jafnan
nokkuð hærra en hið endanlega
haustverð. Vitað er að kjöt
mun hækka allverulega frá því
sem það var 1 fyrra.
★ Abstraktmálverk, sem hengt
var af misgáningi öfugt,
fékk fyrstu verðlaun á list-
sýningu í Sydney í Ástraiíu
í sl. viku.
þetta nætursvall.
Piltarnir voru handteknir
um helgina. Þeir töldu stúlk-
una hafa gleymt veski sínu. En
við frekari yfirheyrslur kom í
Ijós að þeim hafði verið ljóst,
að vinkona þeirra átti veskið.
Þeir höfðu farið að karpa um
veskið og yfirráðin yfir pen-
ingunum, og rifnaði veskið þá
í sviptingum sem um það varð
milli þeirra.
Leigubíllinn sem þeir höfðu
skemmt sér í um nóttina kost-
aði 1700—1800 krónur. Til á-
fengiskaupa af sama bílstjóra
töldu piltarnir sig hafa eytt
hundruðum króna. Er þeir
voru handteknir voru þeir með
500 kr. eftir af þýfinu-
Ennfremur taldi hann að það
myndi verða verkefni slíkrar
fréttastofu að dreifa opinber-
um tilkynningum frá ríkis-
stjórn og ýmsum stofnunum og
því líklegt að ríkisvaldið myndi
vilja hlaupa undir bagga við
stofnun Fréttastofu.
Var að lokum samþykkt að
fela stjórn Blaðamannafélags-
ins að hefja byrjunarathuganir
á málinu.
„My Fair Lady
sýnd í vetur.
Hinn frægi ameríski söng-
leikur „My Fair Lady“
verður á leikskrá Þjóðleik-
hússins á leikárinu, sem er
að hefjast.
Ekki verður það fyrr en
með vorinu, sem við fáum
að sjá og heyra á fjölum
Þjóðleikhússins þenna söng-
leik sem farið hefur sigur-
för víða um lönd misserum
saman. Það verður líka að
hafa sinn aðdraganda, eins
og það, að leikurinn verður
fluttur með íslenzkum texta.
Datt í sjóinn.
í fyrrinótt datt stúlka í höfn-
ina en varð bjargað.
Óhapp þetta vildi tii við
landga.ng úr skipi hér í Reykja
víkurhöfn. Datt stúlkan niður
milli skips og hafnargarðsins.
Einn skipverja stakk sér í sjó-
inn eftir henni og gat haidið
henni uppi unz lögreglan kom
til hjálpar og fékk bjargað báð-
um á þurrt. Ekki var þess get-
ið að þeim skötuhjúum hafi
orðið meint af volkinu.
Tveir menn hafa tekið það
erfiða verk að sér að þýða
Icikinn á íslenzku, þeir Eg-
ill Bjarnason og Ragnar Jó-
hanncsson. Ragnar þýðir
óbundna málið, en Egill
Ijóðin.
Söngleikur þessi er, sem
kunnugt er, byggður á leik-
ritinu Pygmalion eftir Bern-
ard Shavv, en Lerner samdi
textann að „My Fair Lady“
og Loewe músikina. Höfuð-
persónan í sögunni og leikn-
um talar Lundúnamállýzku,
sem er illþýðanleg á aðvar
tungxu-, og því hefur það
vafizt fyrir öðrum þjóðum,
hvort flytja beri leikinn á
frummálinu eða leitast við
að flytja hann yfir á aðra
tungu, og síðari kosturinn
liefur verið valinn hér.
Hvernig tekst það?
Venus frá Míló er nafn sem
allir þekkja. — Venus frá
Reykjum er líka þekkt nafn, —
meðal hestamanna og hér er
liún blessuð með folaldið sitt.
Myndin var tekin af þeim um
daginn skammt frá Reykjum í
Mosfellssveit, en Venus kastaði
í júlímánuði, Venus tók í fyrra
glæsileg verðlaun á hesta-
mannamóti í Borgarfirði,er hún
var talin fallegasta hryssan
á Vesturlandi. Litla folaldið á
mikilli ættgöfgi að fagna. Lang
amma þess var Drottning, kapp
reiðahestur sem var ósigrandi á
skeiðvellinum í eina tíð. Faðir
þess er Nökkvi frá Hólmi.
Ætlaði að
hljóðfæri
flytja stolin
í stolnum bíl.
Snemma á sunnudagsmorg-
uninn var bíl stolið inn við
Nóatún. Eftir nokkurn eltinga-
leik tókst að hafa hendur í
I hári þjófsins. Kom í ljós, með-
| an verið var að leita hans, að
! innbrot hafði verið framið í
skemmtistaðinn Röðul og þar
fyrir utan fundust nokkur
hljóðfæri tilheyrandi hljóm-
j sveit Röðuls.
Það var um klukkan 7 á
sunnudagsmorguninn að maður
nokkur er heima á skammt frá
Röðh, varð þess var að verið
var að stela bílnum hans. —
Hann hringdi í lögregluna og
hraðaði sér. Var hann komdnn
að bílnum er þjófnum tókst að
koma honum í gang og ók
hann á brott.
Nærri því um leið og lög-
reglan kom að Röðli kom þjóf-
urinn á bílnum akandi þar að
Er hann sá lögregluna stökk
hann út úr bílnum og tókst
honurn að fela sig.
Á meðan verið var að leita
hafði þvottakonan á Röðli
komið til að starfa. Allt var
þar á tjá og tundri, m.a. vín-
skápar á barnum sprengdir
upp.. Út á götu undir glugga
á Röðli fundust harmonika,
gítar. segulband og míkrafónn.
Höfðu þessi hljóðfæri verið
látin síga í bandi niður.
Eftir nokkra leit í námunda
við Röðul fannst maður. Fund-
ust við leit á honum munir
frá Röðli. Viðurkenndi maður-
inn að hafa framið innbrotið,
stolið áfengi og hljóðfærunum.
Hafi hann stolið bíl í því skyni
að flytja hinn stolnu hljóð'-
hljóðfæri í honum.
Vaxandi
vestan átt.
Allhvass síðd.
Léttskýjað.