Tölvumál - 01.01.1977, Qupperneq 2
Vafalaust hefur þaö komiö mörgum fundargesta á óvart,
hve tölvustarfsemi Flugleiöa er umfangsmikil.
Hér í Reykjavík starfrækir félagiö tölvudeild, kerfis-
fræöi- og forritunardeild og gagnaskráningu.
1 tölvudeildinni er notuö tölva af gerðinni IBM 370/125,
meö öflugum búnaÖi. AÖ auki er þar svo lítil tölva,
Burroughs L 2000. GagnaskráningarkerfiÖ er fyrst og
fremst svonefnt "key to disk" af gerðinni CMC 5. Auk
þess gatarar, IBM 129.-
1 New York reka Flugleiðir litla tölvudeild, sem annast
bókhald, uppgjör við söluaðila o.fl. Þar er vélbúnaður-
inn IBM System 3, model 10.
Loks eru svo Flugleiðir aöili aö merkilegu fjarvinnslu-
kerfi, sem nefnt er GABRIEL. Aöilar aö þe'ssu sama kerfi
eru mörg önnur flugfélög og þau ekki öll af minni sortinni.
MiðstöÖ kerfisins er í Atlanda í Bandaríkjunum, en þaö
tengist síöan aöalskrifstofunni hér í Reykjavík og
söluskrifstofum vítt og breitt í Bandaríkjunum og Evrópu.
Beinir starfsmenn tölvudeildanna eru um 15 talsins. Gagna-
skráningatæki eru alls 29, þar af eru CMC-stöðvarnar 24.
Góður rómur var gerður aö erindum flutningsmanna og svöruöu
þeir spurningum fundargesta að lokum. Aö endingu voru svo
málin rædd nánar yfir góðum kaffibolla, í boöi félagsins.
INNHEIMTA FÚLAGSGJALDA
Gjaldkerinn hefur beöiö TÖLVUMÁL
aö "skjóta" því aö félagsmönnum,
að nú hafa verið sendir út gíró-
seðlar v/innheimtu félagsgjalda
fyrir áriö 1976.
Þar sem innheimtan er í seinna
lagi á ferðinni, er þaö ákaflega
vel þegið, að menn greiði gjöldin
hiö fyrsta.
Raunar skal þaö tekið skýrt fram og
þakkað margfaldlega, aö nú þegar hafa
margir (flestir) gert góÖ skil á gjöldunum. En svona litlir
reikningar, eins og gíróseðlarnir frá félaginu eru, geta jú
auöveldlega grafist innan um önnur stærri skjöl á borðs-
horninu og gleymst þar.
FÚLAGATALIÐ
Gert var ráö fyrir, aö félagatal Skýrslutæknifélagsins, yrði
birt nú í þessu tölublaði TÖLVUMÁLA.
Nú þykir ritnefndinni hentugra aö geyma þaö til næsta blaðs,
og vonar aö þaö komi hvergi að sök, en biður velvirðingar
á drættinum.