Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands, Reykjavík
Ritnefnd: ðttar Kjartansson, ábm.
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson
2.tbl. 3.árg. febrúar 1978
Öll réttindi áskilin
FÉLAGSFUNDUR
Félagsfundur verður í Norræna Husinu þriðjudaginn
14. febrúar 1978 og hefst kl. 14.30.
Á fundinum veröa tekin til umfjöllunar drög aö íslenzkum
stöölum fyrir 7-bita kéda, 8-bita EBCDIC kóda og gagna-
skráningarborð.
Félagsmönnum er bent á grein um máliö í síöasta tölublaði
Tölvumála. Skráning og notkun allra séríslenzku stafanna
er veigamikið atriði í tölvuvinnslum. Tillögurnar sem fyrir
liggja gera ráö fyrir möguleika á notkun allra séríslenzku
stafanna, en ekki aðeins stafanna Ð, Þ, Æ, Ö, Á og É eins
og algengt hefur veriö. Tillögurnar fela í sér breytingar
frá algengustu tilhögunum er nu tíðkast. Því er áríðandi
að félagsmenn kynni sér þær vel og taki þátt í afgreiðslu
málsins.
Að venju mun fundarmönnum verða boðið upp á kaffiveitingar
í kaffistofu Norræna Hússins, í fundarhléi eða fundarlok.
Stj órnin
AÐALFUNDUR 1978
Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins verður haldinn þriðjudagirm
14. marz 1978 og hefst hann kl. 14.30. Dagskrá verður samkvæmt
félagssamþykkt.
Úr stjórn eiga aö þessu sinni að ganga varaformaöur, féhirðir
og skjalavöröur. Auk þeirra skal á fundinum kjósa tvo vara-
menn í stjórn og endurskoðendur. Tillögur um stjórnarmenn
þurfa aö berast stjórninni eigi síðar en þremur dögum fyrir
fundinn.
Minnt skal á að félagssamþykkt Skýrslutæknifélagsins er að
finna í Tölvumálum, 2. tbl. l.árg. desember 1976.
Aðalfundurinn verður kynntur nánar í Tölvumálum skömmu fyrir
fundinn.
Stj órnin
nc\