Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 2
2
tölvumAl
janOarfundurinn
Um 40 manns sóttu félagsfundinn í Norræna HÚsinu 24. janúar
síðastliöinn.
Formaðurinn, dr. Oddur Benediktsson setti fundinn. Hann fór
í upphafi nokkrum orðum um greinargerð þá um drög að íslenzkum
stöðlum fyrir kódun og lyklaborð, sem birtist í síðasta tölu-
blaði Tölvumála. Hann hvatti menn eindregið til að kynna sér
efni tillagnanna og taka þátt í afgreiðslu þeirra á febrúar-
fundinum.
Aðalefni fundarins var annars að fjalla um kaup og sölu á
vél- og hugbúnaði. Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri flutti
framsöguerindi um málið og átti hann athygli manna óskipta.
Hann hefur góðfúslega leyft birtingu erindisins hér í Tölvu-
málum.
Síðan settust að hringborðsumræðum um efnið, undir stjórn
Halldórs Friðgeirssonar, verkfræðings, þeir Elías Davíðsson,
kerfisfræðingur, Frosti Bergsson, deildarstjóri og framsögu-
maðurinn, dr. Jón Þór Þórhallsson. Hringborðsmenn höfðu hver
sinn inngang, en síðan leiddi Halldór umræðurnar með spurn-
ingum sem hann lagði fyrir hringborðsmenn. Einnig komu fram
spurningar frá fundarmönnum öðrum.
Er leið að lokum fundarins bar Elías Davíðsson fram tillögu
til ályktunar svohljóðandi:
"Félagsfundur Skýrslutæknifélagsins fer þess á leit
við stjórn félagsins, að hún beiti sér fyrir gerð
staðlaðra samninga um kaup og leigu á vélbúnaði, hug-
búnaði og annarri tölvuþjónustu, svo og fyrir kynningu
þessara samninga innan félagsins.
Með þessari ályktun vill fundurinn ekki tjá sig um
efnisinnihald eða markmið væntanlegra samninga, heldur
lýsa vilja sínum um að slíkir samningar verði samdir
á vegum félagsins."
Tillagan var rædd og síðan borin undir atkvæði fundarins sem
samþykkti hana og hefur stjórnin þar með þetta mál til með-
ferðar.