Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 3

Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 3
TÖLVUMÁL 3 Dr. Jón Þor Þórhallsson: SAMNINGAR UM KAUP OG LEIGU A VÉL- OG HUGBÓNAÐI (Framsöguerindi á félagsfundi Skýrslutæknifélagsins 24. janúar 1978) Góöir félagar. Eins og þiö sjálfsagt vitié, þá er ég ekki lögfræðingur. Því fór ekki hjá því, aö ég yröi gr'ipinn nokkurri minni- máttarkennd, sem ér er raunar ekki laus viö enn, þegar komiö var aö máli viö mig og ég beðinn að flytja framsöguerindi um kaup og leigu á vél- og hugbúnaði. AÖ vísu hef ég skrifað undir allmarga slíka samninga, sem oft hafa veriö staðlaðir samningar gerðir af lögfræðingum söluaðila og þá stundum með viðbótum eða breytingum samkvæmt ósk minni. En fram yfir þaö hef ég lítið annað fram aö færa á þessu sviöi en ef til vill nokkrar ábendingar um atriði, sem að mínum dómi skipta meginmáli og samkomulag þarf aö nást um, áður en gengið er frá samningum. Þaö sem reynslan hefur kennt mér um samninga, er snerta kaup og leigu á búnaði, er aðallega tvennt: 1. Flestir söluaðilar fást til að víkja eitthvað frá sínum stöðluöu samningum, ef samkeppnin er nógu hörð eöa ef þeir sjá sér nógan hag x sölunni. 2. Samningsformið sjálft skiptir í reynd mun minna máli en hugarfar þaö, er býr aö baki gerð samnings frá hendi söluaðila og kaupanda. Langflestum þessarra samninga má skipta í einhvern eftir- talinna flokka: 1. Kaupsamninga 2. ViÖhaldssamninga 3. Leigusamninga Þar sem flestir leigusamningar eru ekki einungis um leigu á búnaðinum heldur ná einnig til viðhalds hans , mun ég láta nægja aö ræða einvörðungu tvo fyrstu flokkana, þaö er aö segja kaupsamninga og viöhaldssamninga. Kaupsamningar I því sambandi langar mig til aö benda á þrjú atriði, sem aö mínum dómi skipta meginmáli, en það eru: Verö, afhend- ingartími og úttekt á búnaðinum. Verðiö er ef til vill þaÖ einfaldasta af þessu þrennu. Þaö er fastákveðið í beinhörðum peningum. Ekki er þó alltaf íslenska krónan notuð til viðmiöunar, heldur eru flest þau verðtilboö, sem ég hef séÖ hér á landi miðuð viö bandaríkja- dollara eöa aöra erlenda mynt. En þetta hefur óhjákvæmilega

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.