Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 4

Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 4
4 tölvumAl í för meÖ sér, að kaupandinn tekur á sig þá hættu aö eiga ekki fyrir búnaöinum, ef gengi sígur verulega eöa aÖflutn- ingsgjöld hækka stórum frá því aö pantað er og þangaÖ til búnaðurinn er afhentur. Þá þarf einnig aö taka tillit til hvar búnaðurinn veröur afhentur. Ýmist er verðið miðaÖ viö afhendingu í erlendri höfn eöa þaö miðast við aö búnaðinum sé skilað inn á gólf til kaupanda. Mismunurinn getur þvi veriö fólginn í flutningskostnaöi, vátryggingu og aðflutn- ingsgjöldum. En hvort sem afhending búnaöar miöast viö erlenda höfn eöa ekki, þá kemst hann fyrr eöa síðar til kaupanda. þá er eftir aö setja hann upp og prófa hann. Stundum er uppsetning og prófun búnaðar innifalin í verðinu, en stundum hvorugt. Þegar svo hagar til er uppsetningar- kostnaöurinn yfirleitt ákveöinn hundraðshluti af kaupverði. Afhendingartími er afar mikilvægt atriði x samkomulagi milli kaupanda og söluaðila. Hann er einskonar mælikvaröi á þörf kaupanda fyrir búnaðinn og getu söluaöila til aö afhenda hann. Venjulega er þörfin meiri en getan. Þó eru til undantekningar frá þessu. Aöalatriðið er samt aö sölu- aöilinn afhendi búnaðinn á þeim tíma, sem hann lofaði. En þaö hefur sýnt sig þau þrjú ár sem ég hef haft tækifæri til að fylgjast meö þessum málum hér á landi, aö efndirnar hafa reynst mörgum erfiðar. BÚnaöur, sem ég hef átt aö fá, hefur verið afhentur hálfum mánuöi til þremur mánuðum seinna en lofaö haföi verið. Má þaö heita furðulegt, sérstaklega þegar þess er gætt aö framleiðendur tölvubúnaöar hafa fyrir löngu tekið upp aðferöir Henry Fords sáluga og nota óspart færi- bandið. Þeir gera áætlanir um framleiösluna langt fram í tímann og nógan ættu þeir aö eiga búnaöinn til aö fylgjast með áætlununum. Enda standast þessar áætlanir yfirleitt. En hvaö er það þá, sem veldur aö búnaður er afhentur allt að þremur mánuöum seinna en ætlast var til? ÁstæÖurnar til þess geta verið margskonar en mig langar til aö minnast hér á tvær ástæöur, sem aö mínu mati mega teljast oeðlilegar. í fyrsta lagi er þaö reynsluleysi söluaöila, sem oftast ma skoða sem byrjunarörðugleika og honum tekst að yfirstíga um^ síðir. 1 öðru lagi er þaö sú tilhneiging kaupanda aö líta á björtustu vonir söluaöila, sem loforö um afhendingu, og sem eflaust má setja í samband viö þá áráttu okkar íslendinga aö viö megum lítiö vera aö því að bíöa eftir afgreiöslu á sama hátt og aðrir viöskiptavinir framleiöenda, þvi við viljum fá allt strax. Ein meginorsök þessa bráðlætis okkar er eflaust sú, aö mjög getur reynst erfitt aö afla fjármagns hér á landi og eins hversu ótryggt það fjármagn er gagnvart erlendri mynt, þá loks þaö er fengið. Afleiöingin veröur sú, aö koma þarf þessu fjármagni sem allra fyrst í lóg, og því þarf aö afhenda búnaöinn sem allra fyrst. Þar viö bætist svo tröllatrú okkar íslending-a á vélum og öllu tengdu vélum. Er mér ekki grunlaust um, aö við reynum stundum að leysa vandamál dagsins í dag með tækni mopgundagsins. Nú eru miklar líkur á því, aö fleirum en okkur lítist vel á tiltekinn búnaö. Svo sérstæðar eru óskir okkar nú ekki, að hjá okkur gildi allt önnur lögmál en annarsstaðar í heiminum. En hin mikla þörf okkar fyrir búnaðinn svo fljótt sem auðið er gerir það aö verkum, aö viö megum helst ekki vera að því að bíða eftir því aö röðin komi aö okkur x biöröð framleið- endanna. Þaö er því nokkuö freistandi fyrir söluaðila aö lofa svolítið upp í ermina á sér til aö eiga auöveldara með sölu. Nú er því ekki þannig fariö aö söluaðilinn geti lítið

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.