Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.02.1978, Blaðsíða 6
6 tölvumAl inu yfir í miöstöðina, hve lengi veriö er aö leita aö ákveÖnum upplýsingum á diski og hve lengi verið er að flytja upplýsingarnar yfir í miðstööina á eftir og svo framvegis. Kaupandinn eöa réttara sagt notandinn hefur hins vegar ákveðin verkefni, sem hann notar til viömiöunar. Og þaö sem hann skiptir máli er, hversu lengi veriö er aö vinna verkefnið. Þessi tími er auðvitað háöur því, hve afkasta- mikill búnaöurinn er í einingum framleiðandans, en hann er líka háöur því, hvaöa aðferö notandinn valdi viö lausn verk- efnisins. Sem sagt, þetta er langt frá því að vera auðvelt mál. Og ég er alls ekki með þessu aö halda því fram, aÖ unnt sé að ætlast til þess af meðalnotanda aö hann setji sig inn í alla þessa hluti. En ég vil þó leggja á þaö áherslu, aö hann verður sóma síns vegna að gera sér nokkra grein fyrir því, hvernig hann ætlar aö taka búnaðinn út. Ef niðurstaðan verður sú, aö hann ákveður aö reiða sig algjörlega á söluaðilann, þá er úttektin þar meö afgreitt mál. í sumum tilfellum gefa söluaöilar notandanum þaö í skyn, aö verði verulegur misbrestur á úttekt hjá þeim, þá megi hann búast viö endurgreiðslu á gjaldi vegna viðhalds eöa leigu. En þaö er kaupandans aö fara fram á endurgreiðslu. Viöhaldssamningar Viöhaldssamningurinn er að mörgu leyti mun þýöingarmeiri en kaupsamningurinn sjálfur. Kassarnir meö búnaðinum munu skila sér fyrr eða síðar og innihald kassanna er þar aö auki tryggt. Þá mun einnig fyrr eða síðar takast aö koma búnaðinum saman og í gang, og ef í harðbakka slær, veröa fengnir til sérfræð- ingar frá framleiðanda. En hvaö tekur síöan viö? Þessi bún- aður er að því leyti ekkert frábrugðinn öðrum búnaöi, aö hann þarfnast viðhalds, bæöi þarf að fara yfir búnaöinn annað slagiö og ditta aö honum og eins veröur að gera fljótt og vel viö þær bilanir sem verða. Allt er þetta nauðsynlegt til að kaupandinn geti nýtt sér búnaðinn eins og til stéð. Þá veröur einnig aö hafa þaö hugfast, aö óski kaupandinn aö selja bún- aðinn, þá munu aö líkindum ekki verða margir kaupendurnir ef vitað er aö viöhaldsþjónustan er ekki upp á marga fiska. Grípi hann aftur á móti til þess örþrifaráðs aö selja búnaðinn úr landi, hefur hann tapað því, sem aöflutningsgjöldunum nemur meö meiru. Traust viðhaldsþjónusta er því forsenda þess aö búnaðurinn reynist eins og vonir stóöu til og einsaö hægt sé aö réttlæta þá fjárfestingu, sem ráðist var í. í hverju er svo viðhaldið fólgið og hvaö þarf til aö tryggja góða þjónustu á því sviði? Eiginlega má segja aö í megin- atriðum veröi að ætlast til hins sama af þeim aðila, sem tekur aö sér aö sjá um viðhald á búnaði og ætlast er til af þeim, sem flytja inn og selja bíla. Þessir aðilar þurfa að láta þjálfa sérstaklega þá starfsmenn, sem vinna viö viÖhald og viðgerðir, þeim er nauðsynlegt að hafa yfir aö ráöa sér- stökum tækjum og þurfa aö koma sér upp varahlutalager. Um- svifin veröa ennfremur aö vera slík, aö notandinn sé ekki til- neyddur aö bíöa lengi eftir aö komast aö. Og aö lokum, aö ekki sé lokað í nokkrar vikur á sumrin eins og tíökast hér á landi um einstaka bílaverkstæöi. Fljótt á litið viröist þetta vera fremur einfalt mál. En þegar á reynir, eru ýmis atriði sem gera þetta mun erfiðara viöfangs en ætla mætti. Sem dæmi má nefna, hversu markaður hér á landi er lítill. Til þess aö halda uppi þjónustu í líkingu viö þá, sem ég minntist^á rétt áðan, er nauðsynlegt aö selja verulegt magn af búnaði sömu tegundar. ÖÖru vísi væri tæplega hægt aö hugsa sér, að

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.