Tölvumál - 01.03.1978, Blaðsíða 1

Tölvumál - 01.03.1978, Blaðsíða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands, Reykjavík 3.tbl. 3.árg. mars 1978 Öll réttindi áskilin Ritnefnd: óttar Kjartansson, ábm. Oddur Benediktsson Grétar Snær Hjartarson AÐALFUNDUR 1978 Aöalfundur Skýrslutæknifélags íslands verÖur í Norræna Húsinu þriðjudaginn 14. mars 1978 og hefst kl. 17. Fundarstjóri verður Klemens Tryggvason, hagstofustjóri. Dagskrá: 1. Formaður flytur skýrslu félagsstjórnar. 2. Gjaldkeri leggur fram endurskoöaöa reikninga. 3. Stjórnarkjör. Úr stjórn eiga aö ganga varafor- maöur, féhirðir og skjalavörður ásamt varamönnum. 4. Kjör endurskoöenda. 5. Ákveöin félagsgjöld. 6. Önnur mál, sem upp kunna aö veröa borin. Tillögur um stjórnarkjör þarf aö senda stjórninni eigi síöar en þremur dögum fyrir aöalfundinn. í tilefni af tíu ára afmæli félagsins er ætlunin að breyta út af venjubundinni kaffidrykkju í fundarlok. Þess í staö lyftum viö cherryglasi. Stj órnin STAÐLARNIR OG FEBRÚARFUNDURINN Á félagsfundi Skýrslutæknifélags íslands, sem haldinn var í Norræna Húsinu 23. maí 1977 flutti Jóhann Gunnarsson erindi sem nefndist: Um letur og lyklaborð. í umræðunum aö loknu erindinu^kom í ljós aö ýmsir félagsmenn sýndu áhuga á aö taka^þátt í starfi vinnuhóps á sviöi stöðlunar lyklaborðs og táknun íslenzks leturs í tölvum. Stjórn félagsins gekkst fyrir aö slíkur vinnuhópur komst á laggirnar og var fyrsti fundurinn haldinn 15. júní 1977. Á fundi 4. október var ákveðið að skipta starfinu niöur á þrjá vinnuhópa: 1. EBCDIC-kódun. Forsvarsmaður Oddur Benediktsson, 2. 7-bita kódun. Forsvarsmaöur Frosti Bergsson, 3. Lyklaborö. Forsvarsmaöur Auðun Sæmundsson.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.