Tölvumál - 01.04.1978, Blaðsíða 1
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm.
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson
4.tbl. 3.árg. apríl 1978
Öll réttindi áskilin
FÉLAGSFUNDUR
Félagsfundur veröur í Norræna Husinu þriÖjudaginn
18. apríl 1978 og hefst kl. 14.30.
Kynnt verður á fundinum míkrófilmutækni i tengslum við
tölvuvinnslu og tölvuúttak. Efni á fundinum veröur
meöal annars eftirfarandi:
1. Litskyggnusería meö ensku tali sem nefnist
"Micrographics Today and Tomorrow".
2. Jakob Sigurðsson, forstöðumaður, flytur
erindi sem hann nefnir "COM-tasknin" .
3. Helgi V. Jónsson, lögfræðingur, flytur erindi
sem hann nefnir "Notkun míkrófiche í tengslum
við bókhald".
Þessu til viðbótar munu á fundinum fleiri aðilar segja
frá reynslunni hérlendis af míkrófilmutækninni, og
gert er ráð fyrir umræðum um málið.
Að^venju verður boðið upp á kaffiveitingar í fundar-
hléi eða fundarlok.
Stj órnin
BREYTTIR FUNDARDAGAR
Vakin er athygli félagsmanna á því, að dagsetning apríl-
fundarins er færð til um eina viku frá því sem kynnt var
í starfsáætlun síðastliðið haust, í októberblaðinu.
Dagsetning maífundarins færist einnig til frá því sem
áætlað^var, eða til 15. maí. Maífundurinn verður kynntur
nánar í næsta blaði.
Stj órnin