Tölvumál - 01.05.1978, Blaðsíða 1

Tölvumál - 01.05.1978, Blaðsíða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag fslands, Reykjavxk Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm. Oddur Benediktsson Grétar Snær Hjartarson 5.tbl. 3.árg. maí 1978 Öll réttindi áskilin FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur verður í Norræna HÚsinu þpiðjudaginn 16. maí 1978 og hefst kl. 14.30. Á fundinum flytur Þorvaröur Jónsson, yfirverkfræÖingur hjá Posti og síma, erindi sem hann nefnir: Modem og gagnasendingar um símakerfiö. Fjarvinnsla í ýmsum myndum hefur aukist talsvert nú hin sföari árin. Gildi fjarvinnslu, hraöi og öryggi, er mjög svo háö afkastagetu og gæöum sxmakerfisins. Um þessi mál gefst mönnum kostur á aö fræöast á fundinum. Aé venju veröur fundarmönnum boÖið upp á kaffisopa í kaffistofu hússins, í fundarhléi eða fundarlok. Stj órnin APRÍLFUNDURINN Á^félagsfundinum, sem haldinn var í Norræna Húsinu 18. apríl síöastliöinn, var fjallað um míkrófilmutækni. Sýnd var^litskyggnuserían "Micrographics Today and Tomorrow". Var þar á ljósan hátt sýnt hvernig míkrófilmutækni má beita a ýmsum sviðum þjoðlífsins til hagræöis og sparnaðar. Þróun þessarar tækni er oröin mikil og fjölbreytileg. COM eöa Computer Output Microfilm, er ein grein þessarar þróunar sem náö hefur mikilli útbreiöslu nú hin síðari árin. Jakob Sigurösson,forstöðumaöur, rakti sögu COM-tækninnar hérlendis. Flugleiöir riðu á vaöið, með því aö senda tölvu- úttak á segulböndum utan til míkrófilmunar á svonefnd míkró- fiche. í framhaldi af því hafa svo nokkrar stærri tölvu- stofnanir hérlendis, sameinast um að fá slíkan búnaö hingað til landsins. Er nú framleiðsla á míkrófiche eftir tölvu- úttaki fyrir nokkru hafin á vegum þessara aðila Stefán Ingólfsson, verkfræöingur, flutti erindi um öryggis- hlið þessarar tækni og ræddi einnig um kostnað í því sam- bandi.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.