Tölvumál - 01.02.1981, Síða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands
Pósthólf 681,121 Reykjavík
Höfundum efnis áskilin öll réttindi
Ritnefnd:
Óttar Kjartansson, ábm. 2. tölublað, 6. árgangur
Grétar Snær Hjartarson
Sigurjón Pétursson Febrúar 1981
FÉLAGSFUNDUR UM VERKEFNISSTJÓRN (PROJECT MAMAGEMENT)
Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar i Norræna
húsinu þriðjudaginn 24. febrúar 1981, kl. 14.30.
Á fundinum mun Björgvin B. Schram, forstöðumaður kerfis-
deildar Sambandsins, flytja erindi er hann nefnir:
Verkefnisstjórn (project management)
í erindinu mun Björgvin ræða um þaó hvernig staðið er að
verkefnisstjórn, hverjir vinna að verkefni og hvert ábyrgðar-
svið þeirra er. Einnig mun hann lýsa þvi hvernig skipta
má verkefni i áfanga og hvert inntak i hvern áfanga er.
Verkefnisstjórn á sviði kerfishönnunar hefur ekki áóur
verið tekin sérstaklega til meóferðar á félagsfundi i
Skýrslutæknifélaginu. Raunar má fullyrða, að verkefnis-
stjórn hefur yfirleitt ekki til þessa verið gefinn sá
gaumur hérlendis, sem verðugt væri. Erindi Björgvins höfðar
til allra þeirra, sem með framleiðslu tölvukerfa hafa aó
gera eða slikri framleiðslu tengjast á einhvern hátt.
Á eftir erindinu veröa umræður og mun Björgvin þá leitast
við að svara spurningum fundarmanna, sem fram kunna aó
verða bornar.
Boðió verður upp á kaffisopa i fundarhléi.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR 1981
Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins verður haldinn fimmtu-
daginn 19. mars 1981 i Norræna húsinu og hefst hann kl. 14.30.
Á dagskrá verða venjuleg aöalfundarstörf. Ör stjórn ganga
að þessu sinni formaður, ritari og meóstjórnandi. Auk þess
varamenn i stjórn, sem kjörnir eru til eins árs i senn.
Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar stjórninni eigi sióar
en þremur dögum fyrir fundinn.
Aðalfundurinn verður nánar boðaóur i Tölvumálum, nokkrum
dögum fyrir fundinn.
Stjórnin