Tölvumál - 01.02.1981, Blaðsíða 1

Tölvumál - 01.02.1981, Blaðsíða 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag Islands Pósthólf 681,121 Reykjavík Höfundum efnis áskilin öll réttindi Ritnefnd: Óttar Kjartansson, ábm. 2. tölublað, 6. árgangur Grétar Snær Hjartarson Sigurjón Pétursson Febrúar 1981 FÉLAGSFUNDUR UM VERKEFNISSTJÓRN (PROJECT MAMAGEMENT) Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar i Norræna húsinu þriðjudaginn 24. febrúar 1981, kl. 14.30. Á fundinum mun Björgvin B. Schram, forstöðumaður kerfis- deildar Sambandsins, flytja erindi er hann nefnir: Verkefnisstjórn (project management) í erindinu mun Björgvin ræða um þaó hvernig staðið er að verkefnisstjórn, hverjir vinna að verkefni og hvert ábyrgðar- svið þeirra er. Einnig mun hann lýsa þvi hvernig skipta má verkefni i áfanga og hvert inntak i hvern áfanga er. Verkefnisstjórn á sviði kerfishönnunar hefur ekki áóur verið tekin sérstaklega til meóferðar á félagsfundi i Skýrslutæknifélaginu. Raunar má fullyrða, að verkefnis- stjórn hefur yfirleitt ekki til þessa verið gefinn sá gaumur hérlendis, sem verðugt væri. Erindi Björgvins höfðar til allra þeirra, sem með framleiðslu tölvukerfa hafa aó gera eða slikri framleiðslu tengjast á einhvern hátt. Á eftir erindinu veröa umræður og mun Björgvin þá leitast við að svara spurningum fundarmanna, sem fram kunna aó verða bornar. Boðió verður upp á kaffisopa i fundarhléi. Stjórnin. AÐALFUNDUR 1981 Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins verður haldinn fimmtu- daginn 19. mars 1981 i Norræna húsinu og hefst hann kl. 14.30. Á dagskrá verða venjuleg aöalfundarstörf. Ör stjórn ganga að þessu sinni formaður, ritari og meóstjórnandi. Auk þess varamenn i stjórn, sem kjörnir eru til eins árs i senn. Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar stjórninni eigi sióar en þremur dögum fyrir fundinn. Aðalfundurinn verður nánar boðaóur i Tölvumálum, nokkrum dögum fyrir fundinn. Stjórnin

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.