Vísir - 10.01.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 10.01.1962, Blaðsíða 2
2 V I S I R mdllxm Miðvikudagur 10. janúar 1962 Eru Mariiyn og Frank Sinatra Sterkur orðrómur hefir komið upp með það í HoIIy- wood, að Marilyn Monroe og Frank Sinatra séu nú orðin kærustupar og ætli að ganga í hjónaband innan skamms. Blaðamenn hafa spurt Marilyn hreint út, hvort þcssi orðrómur sé réttur. Hún hefir þá svarað: — Nei, við erum aðeins vinir. En þetta er gamalt svar hjá Marilyn, hún svaraði blaðamönnum nákvæmlega eins viku áður en hún gift- ist boltaleikskappanum Joe di Maggio og viku áður en hún giftist Arthur MiIIer. þau eru bæði heimsfræg — Marilyn og Frank. Enn. er mönnum í fersku minni allur sá harmleikur, þegar Marilyn og leikritahöfundur- inn Arthur Miller skildu. Það var sagt að orsök þess væri hinn fr'anski kvik- myndaleikari Yves Mon- tand, sem Marilyn væri orðin ástfangin í, en þegar til kom vildi hann ekkert hafa með hana að gera og flaug heim til konu sinnar og barna í Frakklandi. Allur þessi margbrotni harmleikur skapaðist kring- um kvikmyndina „The Mis- fits“ en það þýðir, þau sem „passa ekki saman", Arthur Miller hinn frægi leikritahöfundur hafði samið handritið að kvikmyndinni fyrir konu sína, en í mynd- inni léku þau Marilyn, hinn aldurhnigni ástarleikari Clark Gable og franski kvik- myndaleikarinn og söngvar- inn Yves Montand, Auk þess var Arthur Miller eigin- maður Marilyn viðstaddur til að fylgjast með upptök- unni og breyta handritinu, ef á þyrfti að halda. Mynda- takan fór fram í eyðimörk- inni í Arizona. Það má vissulega segja, að ekkert af þessu fólki hafi „passað saman'. ★ pyrst skulum við taka þau hjónin Marilyn og Art- hur. Sambúð þeirra var mjög slæm. Hjónaband þeirra var að leysast upp. Starfsmaður við upptökuna hefir sagt: Sambúð þeirra var öll Arthurs Millers meg- in. Það var hræðilegt hvern- ig hún gat komið fram við Arthur, — eins og norn, hvernig hún gat leikið þenn- an mann, sem er fremsti rit- höfundur okkar. Einu sinni kom Arthur að Marilyn, þar sem hún var öll í uppnámi, skjálfandi og grátandi. Arthur skundaði til hennar og svipur hans ^lýsti blíðu og huggun. Hann lagði hönd á skjálfandi herðar henni og mælti hughreyst- ingarorðum til hennar. Þá kipptist hún við eins og naðra og vatt sér illskulega frá honum, andlit hennar af- myndaðist og hún æpti æð- islega: — Snertu mig ekki, farðu burt, snertu mig ekki. Arthur hrökk frá henni, horfði ráðþrota á hana, sneri sér svo undan og lagði af stað í eina af sínum mörgu einmanalegu gönguferðum um nágrennið. Clark Gable stóð þar skammt frá, andlit hans endurspeglaði hrylling allra viðstaddra. Hann sneri einn- ig á burt frá Marilyn, þoldi þetta ekki lengur. ★ gambúð þeirra aðalleikar- anna, Marilyn og Clark Gable var heldur ekki sér- lega góð. Marilyn var enn ung og í fullu fjöri, Clark kominn yfir sextugt og varla fær um það lengur að berj- ast við slíkt tígrisdýr sem Marilyn er, full af kvenleg- um yndisþokka og ástríðum. Margir þeir senj^J^nnug- astir eru og vioétac|dir voru kvikmyndaupptöku á „The Misfits“ segja að Marilyn hafi átt sök á dauða Clark Gables. Hann var hjartveikur maður og þoldi ekki heitar ástríður. Hann dó af of háum blóðþrýstingi og hjartabilun. 1 Og e. t. v. var hinn franski kvikmyndaleikari Yves Mon- tand illi andinn í þessu öllu. Hann kom inn í spilið sem franskur heillandi ástmög- Mig langar til að faðma þig, sÖng Frank Sinatra með djúpri tilfinningu og þrá. þessi, sem var giftur Marilyn fyrir sex árum er enn fullur elsku og þrár til hennar. Hann var enn boðinn og bú- inn að gera allt fyrir hana, ekki sízt að giftast henpi, segir: „a&eins vinir en kunnugir segja að jrau séu ánetjuð ástinni. Frank Sinatra hefur reynzt ómögulegur eiginmaður. ur. En þegar til kom vildi hann aðeins eiga sína konu heima í Frakklandi. Allt fekk þetta ákaflega á Marilyn. Taugar hennar fóru algerlega úr lagi þegar hún skildi við Arthur Miller. Hún leitaði taugalækna og sálfræðinga og lá tvo mán- uði á taugaveiklunar-sjúkra- húsi. ★ þegar hún loksins kom út af sjúkrahúsinu tók fyrri eiginmaður hennar, kappinn Joe di Maggio á móti henni og var henni mjög góður. Það er enginn vafi á því að boltakappi enda kom sá orðrómur nú upp. En ekkert er víst fjær Marilyn en að giftast hin- um munnvíða og heimsku- lega boltakappa. Hún stakk af frá honum og vestur til Hollywood og síðan hófst hið mikla ástar- ævintýri hennar með Frank Sinatra. Þau hafa hegðað sér svo á almannafæri síð- ustu mánuði, að enginn vafi er talinn geta á því leikið, að þau séu ástfangin. Hitt veðja menn svo aftur um, hvort nokkur alvara verði í því. Bæði virðast þaú vera all laus á kostunum og mörg hjónabönd þeirra beggja hafa farið út um þúfur vegna skapofsa þeirra og sjálfs- elsku. í fyrstu ætluðu menn varla að trúa því að þau væru farin að vera saman Marilyn og Frank, því að þau hafa verið hatursmenn. 'pyrr á árum voru þau góðir kunningjar, en eftir að- förina frægu fyrir sex árum hefir Marilyn hatað Frank. Þetta var um það leyti sem hjónaband Marilyn og Joe Maggio boltakappa var að leysast upp, Þá var það eitt kvöld, sem Joe Maggio fekk engan annan en Frank Sin- atra til að koma með sér í leit að skírlífisbroti Mari- lynar. Grunaði Joe að hún væri að næturlagi með karl- manni er bjó í vissri íbúð- arblokk. Þangað komu þeir Joe og Frank að næturlagi, brutust inn, en þeir lentu í rangri íbúð hjá heiðarlegri ekkju, sem varð skelfingu lostin við Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.