Tölvumál - 01.12.1986, Page 8

Tölvumál - 01.12.1986, Page 8
Þá eru ótalin laun þeirra þúsunda, sem nota þessi tæki daglega i sínu starfi. Miðað við þessi umsvif er eðlilegt að sú spurning vakni hvort umfjöllun um upplýsingatækni og tölvumál sé i einhverju samræmi við þessa starfsemi. Sölumenn og tölvumenn hafa til þessa ráðið umfjölluninni um þennan málaflokk. Það er löngu timabært að fleiri aðilar komi inn i þá umræðu. TÖLVUMÁL hafa lagt á sig talsvert erfiði til að koma af stað skynsamlegri og öfgalausri umfjöllun um upplýsingamál. Undir þá tilraun hafa menn tekið mjög treglega. En það kemur nýr dagur eftir þennan og brátt hefst nýtt ár. Ef til vill verða menn viljugri við ritstörfin með hækkandi sól. Fyrir hönd ritnefndar TÖLVUMÁLA óska ég öllum lesendum blaðsins gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Stefán Ingólfsson 6

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.