Tölvumál - 01.12.1986, Qupperneq 20
stefna breytti kostnaðarhlutföllum í rekstri,
lækkaði launakostnað en hækkaði fjármagnskostnað
og afskriftir. Með timanum hefur þetta hækkað
fastakostnað margra fyrirtækja mikið. Vaxta-
hækkanir eftir 1980 hafa siðan hækkað hann enn
meira.
Mörg framleiðslufyrirtæki hafa af þessum sökum
ekki náð endum saman nema að framleiðslutæki væru
i notkun mikinn hluta sólarhrings. Þetta vandamál
þekkjum við reyndar vel úr islenskum sjávar-
útvegi.
Með notkun upplýsingatækni og nýjum sjálfvirkum
tækjum, róbótum, hefur ýmsum fyrirtækjum tekist
að snúa þróuninni við. Hröð upplýsingamiðlum og
sveigjanleg framleiðslutækni hafa opnað mönnum
leið til að lækka framleiðslukostnað. Á þennan
hátt hafa þeir menn sem móta stefnu fyrirtækjanna
náð árangri, sem tekur þvi langt fram, sem unnt
hefði verið að ná með þau sjónarmið að leiðar-
ljósi, sem vörðuðu veginn fram að lokum áttunda
áratugarins.
Sem dæmi um hvað hér er átt við má taka dæmi af
bandariskri verksmiðju, sem framleiðir ræsa i
fólksbila. Hún var allvel vélvædd áður en
framleiðsluháttum var breytt með nýtisku
upplýsingatækni og róbótum. Lausakostnaður nam
7% af framleiðslukostnaði. Eftir að fram-
leiðslukerfi verksmiðjunnar hafði verið breytt og
nýjar aðferðir notaðar lækkaði framleiðslu-
kostnaðurinn hins vegar um 35%, þ.e. fimmfalt
meira en nam lausakostnaðinum. Það sem meira er
um vert er þó ef til vill að eftir breytinguna
var fastakostnaðurinn einungis helmingur þess sem
hann var áður.
Ný tækni kallar á breyttar starfsaðferðir. Sú
upplýsingatækni sem við höfum i höndum okkar er
þegar farin að breyta sjónarmiðum manna varðandi
stjórnun og rekstur. Til þess að nýta hana sem
best þarf hins vegar að fara aðrar leiðir en menn
hafa mest fetað hér á landi. -si.
18