Tölvumál - 01.12.1986, Blaðsíða 21
SUÐUR KÓREA OG FORMÓSA
Undanfarin ár hefur söluverð einmenningstölva
stöðugt farið lækkandi. Hefur lækkunin numið um
30% á ári, ef reiknað er i dollurum. Á siðast-
liðnu ári hefur verðlækkunin verið óvanalega
mikil. Söluverð nú i haust var orðið helmingur af
þvi, sem var fyrir ári. Ástæður þessarar þróunar
siðustu mánaða eru stóraukið framboð ódýrra
einmenningstölva frá Austur Asiu, sem keppa við
IBM PC einmenningstölvuna.
Samkeppnin hefur komið illa við marga bandariska
og evrópska tölvuframleiðendur, þeirra á meðal
IBM. Blái risinn hefur þegar tapað hlutdeild i
einmenningstölvumarkaðinum og flest bendir til að
honum muni reynast afar erfitt að endurheimta
fyrri stöðu.
Formósa og Suður Kórea
í maihefti TÖLVUMÁLA var fjallað um sókn Asiubúa
inn á einmenningstölvumarkaðinn i grein sem
nefndist "Asiubúar sækja að IBM". í henni var
fjallað um að riki Austur Asiu verða sifellt
betur i stakk búin að keppa við bandarisk og
evrópsk fyrirtæki. Þegar litið er til þróunar
tveggja siðustu ára, kemur i ljós, að tvö ríki í
þessum heimshluta hafa styrkt stöðu sina á
tölvumarkaðinum, svo undrun sætir. Formósa og
Suður Kórea hafa stóraukið útflutning sinn á
tölvum á siðustu árum. Árið 1985 seldu þessi tvö
lönd tölvutæki fyrir 95% hærri fjárhæð en árið
áður. Á fyrstu mánuðum yfirstandandi árs jókst
útflutningur þeirra enn meira eða um 169%. Á
sama tima hefur til dæmis hlutur Japana á
Bandarikjamarkaði minnkað.
Fyrirtæki á Formósu hafa þegar aflað sér umtals-
verðrar tækniþekkingar. Á sjöunda áratugnum
framleiddu þau hluti i tölvur, sem undirverktakar
bandariskra tölvuframleiðenda.
19