Vísir - 21.03.1962, Blaðsíða 13

Vísir - 21.03.1962, Blaðsíða 13
Miðvikudagurinn 21. marz 1962 VISIR T3 * 80. dagur ársins. Næturlæknir er í slysavarðstof- unni, sími 15030. Næturvörður er í Reykjavíkur- Apóteki, vikuna 18.— 25. marz. Holts- og Garðsapótek eru opin alla virka daga frá kl. 9 — 7 síðd. og á laugardögum kl. 9 — 4 síðd. og á sunnudögum kl. 1—4 síðd. Útvarpið 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Leit in að loftsteininum" eftir Bern- hard Stokke, III. (Sigurður Gunn- * Leikfélag Reykjavíkur hefir sýnt leikritið ' „Hvað er sann- Ieikur?“ eftir Priestley við góða aðsókn á annan mánuð, en nú fer hver að verða síðastur að sjá leikinn, því að aðeins tvær sýningar eru eftir, næstsíðasta sýning f kvöld. Myndin að of- an sýnir atriði úr leiknum, og eru leikendurnir, taldir frá vinstri: Guðrún Ásmundsdóttir, Guðmundur Pálsson, Sigríður Hagalín og Helgá Bachmann. arsson þýðir og les). 20.00 Varn- i aðarorð: Haraldur Árnason ráðu- í nautur talar um meðferð búvéla. 20.05 Létt lög: Egerlander músik- antarnir syngja og leika. 20.20 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Eyrbyggja saga, XIV. (Helgi Hjörv ar rithöfundur). b) íslenzk tónlist: Lög eftir Bjarna Böðvársson. c) Dr. Símon Jóh. Ágústsson próf. flytur frásöguþátt um gamalt úti- legumannabæli, Þórðarhelli á Ströndum. d) Sigurbjörn Stefáns- sonj flytur vísnaþátt. e) Jóhannes úr Kötlum les úr þjóðsögum Jóns Árnasonar. 21.45 íslenzkt mál (Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.). 22.20 Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá, VIII. lestur (Haf- liði Jónsson garðyrkjustjóri). 22. 40 Næturhljómleikar: Kammer- hljómsveit útvarpsins í Strassburg leikur. Stjórnandi: Marius Brianc- on. 23.35 Dagskrárlok. Hjónaefní Sfðastliðinn laugardag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Guðrún Jóhannsdóttir, Eyðvík, Grímsnesi, og Leifur Þorleifsson, Lindargötu 60, bifreiðarstjóri SVR. Ýmislegt | Styrktarfélag vangefinna. Konur . í Styrktarfélagi vangefinna halda j fund þriðjudaginn 20. marz kl. 8.30 : í Tjarnargötu 26. Bazar og kaffisala 25. marz. Kon- ur, sem ætla að gefa hluti á baz- arinn, afhendi þá á fundinum. Stjórnin. Kvenfélag Neskirkju heldur fund fimmtudaginn 22. marz f félags- heimilinu. Kaffi verður veitt, og éru konur beðnar að fjölmenna. Kvenfélag Laugarnessóknar býð- ur öldruðu fólki í Laugarnessókn til kaffidrykkju í Laugarnesskóla kl. 3 næstkomandi sunnudag. Stjómin. Föstumessur Langholtsprestakali. — Föstu- messa í safnaðarheimilinu við Sól- heima kl. 8,30 í kvöld. Sr. Árelíus Níelsson. Neskirkja. — Föstumessa kl. 8, 30. Sr. Jón Thorarensen. Hallgrfmskirkja. — Föstumessa kl. 8,30. Sr. Sigurjón Þ. Árnason. Laugarneskirkja. — Föstumessa kl. 8,30. Sr. Garðar Svavarsson. Dómkirkjan. Föstumessa í kvöld kl. 8,30. Sr. Jón Auðuns. Fríkirkjan: Föstumessa í kvöld kl. 8,30. Sr. Þorsteinn Björnsson. Söfnin Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er opið þriðjud., /immtud. og sunnu daga frá kl. 1,30 — 4 e.h. UMFERÐIN um Laugaveginn innanverðan um hádegisbilið, er alveg gífurleg, og mun enn eiga eftir að vaxa stórkostlega með vaxandi byggð og athafna- lífi í hinu nýja viðskipta- og iðnaðarhverfi við Suðurlands- brautina og ofan við hana í Múlanum. Umferðarljósin á gatnamót- um Nóatúns og Laugavegar hafa bætt mikið úr, en svo þungur er bílastraumurinn að þau ein duga hvergi nærri. Um daginn fylgdist ég með þessu litla stund. Undan bíla- lest á leið inn Laugaveg fór létt bifhjól lögreglunnar nr. 10 og lögregluþjónninn á hjólinu stjórnaði umferðinni af hjól- inu, með tilliti til umferðarljós- anna. Tókst þetta svo vel, að allt gekk eins og í sögu og aldrei hljóp neinn hnútur á um- ferðina. — Hann fylgdi lest- inni út úr mestu þrengslunum, sneri þá aftur til baka og ók niður Laugaveginn og liðkaði til í umferðinni, svo hún varð viðstöðulaus. íísif Það er vissulega skemmti- legt að sjá góða lögreglumenn að störfum eins og þennan á bifhjóli nr. 10 og rétt að þess sé getið þegar vel er gert eins og hins að hafa í frammi gagn- rýni þegar hægt er með vel- vilja og rökum að halda henni uppi. f4xt En víkjum aftur að umferð- inni. Það er augljóst að nauð- synlegt er fyrir Reykjavíkur- lögregluna að leggja í auknum RIP KIRBY EfflrJO^!RpRENTIOE, og FRED DICKENSON 1) - Hvernig var bazarinn, herra? - Hræðilegur, Desmond. Tútú og Múmú Amour hnakk- rifust um mig. En nú er því öllu lokið . . 2) Eða það heldur Kirby. — Svo að hann er Rip Kir- Sy. Ég skal ná honum bara 1 þess að ná mér niðri á Múmú. . 3) — Tútú verður brjáluð, þegar hún heyrir um trúlofun okkar Rips . . . pMikið getur hún Fríða veriði , andstyggileg. Hún býður mérj H þessa veizlu, aðeins vegnai Iþess, að hún veit að ég getj ekki afþakkað boðið. mæli áherzlu á eflingu á véla- deildjna. Aukinn bilakostur Ieiðir eðlilega til þess að lög- reglan verður að vera tilbúin til að mæta þeim örðugleikum sem það hefur í för með sér á mjóum götum borgarinnar og ekki verður það gert á neinn hátt betur en að hafa bifhjóla og bíladeildir. Þessi hetn . skóáburður fast I verzlunum okfcar Mor^Sr foSlegir fízkulSfir AOabtned 8. Langwegi 20. Snorrabcsot 88.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.