Tölvumál - 01.11.1987, Page 12
tölvum og PRIME kerfi háskólans í Salford.
Eins og geta má nærri er megináhersla i náminu lögð á
aðferðir upplýsingatækninnar fremur en tölvunarfræði i
hefðbundnum skilningi. Samsetning nemendahópsins er einnig
talsvert önnur en venja er. Aðeins um 25% hafa tekið
svonefnt A stig i stærðfræði ("advanced level") í fram-
haldsskóla, stór hópur kemur af sviði hugvisinda og þeir
Salford menn telja i þessu sambandi ástæðu til þess að
nefna það að um þriðjungur nema er konur!
Segja má að námið sé fimmskipt og eru fyrirlestrar ekki
nema litill hluti þess. E.t.v. lýsir það nokkuð afstöðu
forstöðumanna þess til þess hvernig nám eigi sér best stað
að þeir segja orðrétt: "We do not lecture about user
software but about the use of it." Skipting námsins er i
skemmstu máli sem hér segir:
1. Kjarna háskólanámsins eru gerð skil i tveimur daglegum
fyrirlestrum.
2. Hálfum degi i viku hverri er varið i málstofu þar sem
kynnt eru ýmis atriði sem siðar verða athuguð nánar og
tengjast samstarfsaðilunum. Þeir sjá gjarnan um þennan
þátt og má nefna dæmi um slíka málstofu þar sem
bankamálefni og upplýsingatækni voru til umfjöllunar.
3. Þar sem tölvubúnaðurinn gefur góðan kost á einstaklings-
námi er viða um það að ræða og þá án kennslu. Sem dæmi
um þætti eru PC-DOS, WordPerfect GEM, Lotus 1-2-3 og
fjórðu kynslóðar tölvumál.
4. Stutt hnitmiðuð námskeið eru reglulega i náminu þar sem
t.d. er fjallað um atriði stjórnunarlegs eðlis, um
samskiptatækni o.fl.
5. Fimmti hluti námsins er fólginn i verkefnum þar sem
hópar vinna saman að verkefnalausnum. Þátttakendur eru
komnir mislangt i náminu og ráðgjafi ("tutor") samræmir
skipan og vinnuálag. Á þennan hátt er reynt að likja
eftir þeim aðstæðum sem nemarnir munu starfa við að námi
loknu. Tölvum nemenda er komið fyrir i vinnuherbergjum
þessara hópa en aðgangur er að þeim hvenær sólarhrings
sem er með lykilkorti.
Heimildir:
Turnbull J.: One Workstation per Student in IT Education,
The Information Technology Institute, University of Sal-
ford, UK.
Anna Kristjánsdóttir
12