Tölvumál - 01.11.1987, Side 14
á að vera. Einfaldasta stigið er síeftirlit með diskum sem flytur gögn
af svæðum sem eru að skemmast á öruggan stað, en það ýtarlegasta
er samkeyrsla tveggja tveggja netmiðstöðva þannig að bili önnur
taki hin sjálfvirkt við án hiks.
Síðastu hindruninni, fyrir notkun netkerfis sem fjölnotenda-
umhverfi, var rutt úr vegi hjá Novell með TTS (Transaction Track-
ing System) kerfinu sem er viðbót á SFT-NetWare. TTS er hug-
búnaður sem fylgist með færslum sem fara milli miðstöðvar og
útstöðva. Þetta eftirlit tryggir að breytingar geta aldrei færst að hluta
eingöngu þótt bilun komi upp í miðri færslu. Þegar netið er ræst
eftir bilun er skoðað í þær skrár sem voru í notkun og borið saman
við þær færslur sem voru í gangi þá stundina. Sjáist að færslu hafi
ekki verið lokið eru allar skrár sem hlut áttu að máli settar á það stig
sem þær voru áður en byrjað var á færslunni. Þetta er óháð því
hversu mörgum skrám ein færsla breytir, færslan fer annaðhvort öll
eða fellur niður.
Nýlega var gerð könnun á vegum fyrirtækjanna California
Software Products og Novell sem gaf sérstaklega athyglisverðar
niðurstöður.
Útbúin voru forritakerfi fyrir minitölvu (IBM S/36) og Novell
286B netmiðstöð til að fá samanburð á afköstum þessara ólíku kerfa.
Settur var upp hugbúnaður fyrir sölu- og pantanakerfi á bæði
tölvukerfin skrifaður í forritunarmálinu RPG. RPG hefur hingað til
verið ráðandi sem forritunarmál IBM S/3x tölvanna og má segja að
heimavöllur þeirra sé tekin í prófunina. IBM S/36 tölvan (módel
5362) var með 120mb á tveimur diskum, 512kb minni, ekkert
„Cache“ minni. Notaðar voru 7 útstöðvar módel 5291. Stýrikerfi var
Rel. 4.0.
Novell netmiðstöðin var með RPG þýðanda frá CSP og voru 5
PC tölvur og 2 AT tölvur í hlutverki útstöðva. Notaðir voru tveir
256mb diskar og hafði miðstöðin 2mb minni.
Með sölu- og pantanakerfinu, sem telst vera umfangsmikið á
íslenskan mælikvarða, var reynt eftir mætti að líkja eftir raun-
verulegri vinnslu. Hugbúnaðinum sem notaður var í prófuninni var
breytt þannig að mannlegir þættir voru teknir burt. Hér er aðallega
átt við innslátt gagna. Keyrðar voru út mjög margar sölunótur, ásamt
því að stofna nýja viðskiptamenn og vörunúmer í prufukeyrslunni
sem stóð í tíu mínútur. Lýsing á öllum þáttum þessarar prófunar er í
skýrslu frá Novell sem birt var í júní 1987: LAN and Minicomputer
Report.
- 14 -