Tölvumál - 01.11.1987, Page 16
RÁÐSTEFNA UM REKSTUR TÖLVUDEILDA
Hinn 10. september síðastliðinn efndi Skýrslutæknifélag
íslands til ráðstefnu um breytt viðhorf i rekstri tölvu-
deilda i ráðstefnusal Holiday Inn i Reykjavik. í tilkynn-
ingu var umfjöllunarefni ráðstefnunnar fellt undir orðin
"Rekstur tölvudeilda - breytt viðhorf" og spurning látin
fylgja: "Eru að verða verulegar breytingar i rekstri
tölvudeilda?".
Það kom i ljós, að ófáum var forvitni i þessu viðfangsefni;
ráðstefnan var fjölsótt, um 130 manns alls, og komust þó
færri að en vildu. Ástæður þess má skilja; bæði befur
tölvubúnaður breyst verulega að samsetningu og eðli
undanfarin ár og eins hefur hitt. frést, að ýmis íslensk
stórfyrirtæki stefni nú að gagngerri endurskipulagningu
tölvudeilda sinna. Um slika endurskipulagningu var fjallað
á ráðstefnunni, og jafnframt voru gerð rækileg skil
eiginleikum dreifðrar og miðlægrar gagnavinnslu i tveimur
fyrirlestrum af fimm, sem þarna voru haldnir.
1. MIÐLÆG EÐA DREIFÐ GÖGN
Þetta var heiti fyrsta fyrirlestrarins. Dr. Jón Þór Þór-
hallsson, forstjóri SKÝRR, flutti. Mál sitt miðaði hann
öðru fremur við hagnýtingu upplýsinga hjá einkafyrirtækjum
og við stjórnsýslu og hóf umræðuna á að draga upp tvö
almenn likön af umfangi og innbyrðis venslum upplýsinga
eins og þær horfa við i rekstri einkafyrirtækj a og i
stj órnsýslu:
A) Einkafvrirtæki. B) StiórnsÝsla.
A. . . . 3) Stefnumörkun n ..... 4) Stefnumörkun
.... 2) Eftirlit /-\ .... 3) Eftirlit
... 1) Afgreiðsla /-----\ ... 2) Afgreiðsla
(/....* .. 1) Grunnupplýsingar)
Tvennt má lesa úr þessari pýramidaskipan (svon. likan
Antonis); upplýsingamagn minnkar eftir þvi sem ofar dregur
i pýramidann, og upplýsingar i hverju lagi hans byggja á
þvi, sem neðar er. Jón bar likönin þvi næst saman við
islenskar aðstæður. Að þvi er einkafyrirtækin varðar, taldi
hann neðsta lag likansins i skaplegu horfi, næsta þrep,
16