Tölvumál - 01.11.1987, Side 18
Hér er þrepskiptingin þreföld, en fjórða þrepið er brátt
væntanlegt vegna stóraukinnar einkatölvuvæðingar hins
opinbera. í þeim efnum taldi Jón, að vel hefði tekist til í
heildina, og leiddi siðan talið enn að þvi, hver áhrif
þetta kynni að hafa á starfsemi SKÝRR. Fjórða þrepið, sem
hann minntist á, yrðu nærnet, staðsett milli einmennings-
tölva og "minitölva" i likaninu hér að ofan. Aðrir aðilar
gætu þá sótt i gögn SKÝRR um gáttir á þvi þrepi. Þannig
yrði SKÝRR framar öðru birgðageymsla upplýsinga, ósmá að
vexti og sem flestum aðgengileg. Jón rakti i lokin nokkur
þau verkefni, sem þessi staða gerir brýnt að leysa, jafnt
tæknileg sem stjórnunarleg.
Að þvi er tæknihliðina varðar, þarf að tryggja,
að sókn í gögn verði sem auðveldust og þægilegust,
að aðgangur að gögnum verði staðlaður eftir mætti,
að hægt verði að nýta tölvupóst (nú þegar hægt við
SKÝRR) ,
að lausn finnist á öllum stöðlunarvandkvæðum.
Og stjórnun stofnunar á borð við þá, sem SKÝRR stefnir i að
verða, felur a.m.k. i sér,
að öll stjórnun gagnameðferðar verði sem best skipulögð,
að komið verði í sem best horf þeim atriðum, sem
tilgreind voru efst i likönum þeim, sem fyrirlesari
setti fram i upphafi máls sins.
2. NÝ VIÐHORF í TÖLVUMÁLUM FLUGFÉLAGA
Jakob Sigurðsson, forstöðumaður tölvudeildar Flugleiða
flutti næsta erindi. Hjá flugfélögum er nú ráðgerð veruleg
endurskipulagning tölvudeilda, einkum á öllu þvi, er varðar
starfsemi út á við, þjónustu við farþega, bókanir o.þ.u.l.
Það verk er skammt á veg komið; Jakob taldi, að innan
tveggja ára mætti þó vænta, að það kæmist i gagnið. Vék
hann siðan máli sínu að aðdraganda og forsögu þessa starfs.
Upphaf málsins rakti hann til þess, er bandarisk fyrirtæki
hófu að setja skráningarkerfi fyrir ferðaskrifstofur á
markað i Evrópu. Ýmsar ferðaskrifstofur urðu til að kaupa
slik kerfi, en brátt kom i ljós, að kerfin voru um margt
ólik innbyrðis og jafnframt ólik evrópskum kerfum. Eins
bætist við, að slík kerfi eru vestan hafs sett á markað af
flugfélögum eða fyrirtækjum, sem selja þjónustu sína
einstökum flugfélögum, andstætt þvi, sem tiðkað hefur verið
18