Tölvumál - 01.11.1987, Page 23
innan þriggja ára verði tölvurekstur fyrirtækisins orðinn
mun kostnaðarminni, ef þessi leið er valin.
Fyrir valinu urðu tölvur af gerðinni S/38, og réðst valið
ekki sist af hagkvæmni samræmingar við þann tölvukost, sem
margir samstarfsaðilar SÍS hafa þegar valið sér, þ.e. S/36-
kerfi. Við tölvudeild SÍS starfa nú um 28 manns, en
samhliða breytingunum verður fækkað i 3 - 5 menn i þeirri
deild og henni ætlað að annast yfirstjórn, samninga og
samræmingu. Aðrir starfsmenn munu flytjast til tölvudeild-
anna nýju. Áætlað er, að þessi umbreyting muni taka tvö ár.
SÍS er sem stendur að skoða hugbúnað, greina þarfir sinar i
þessum efnum og fer að engu óðslega; til útboðs vegna
hugbúnaðarkaupa kemur um næstu áramót; á útmánuðum 1988
verður ákvörðun væntanlega tekin og siðan hafist handa við
uppsetningu i april næstkomandi.
4. DREIFÐ VINNSLA EÐA MIÐLÆG
Þetta var heiti fyrirlestrar Bjarna Júliussonar, fram-
kvæmdastjóra Tölvumynda hf., og skaraðist umfjöllun hans að
nokkru við efni fyrirlestrar Jóns Þ. Þórhallssonar; hér
voru þó höfð önnur tök á viðfangsefninu og umfjöllunin
almennari. Þegar velja skal milli miðlægrar vinnslu eða
dreifðrar, þarf i mörg horn að lita, og rakti Bjarni helstu
atriði, sem þá er vert að taka mið af. Við ákvörðun um það,
hvort keypt skuli ein stór tölva og miðlæg vinnsla stunduð,
eða þá nokkrar smærri og miðað við dreifða vinnslu, er
stjórnanda allnokkur vandi á höndum. Hvað mælir með hvorum
kostinum um sig og hvað gegn? Hlutfall milli kostnaðar við
dreifða vinnslu og miðlæga hefur breyst verulega á síðustu
árum, og mið þarf að taka af þvi, en ekki siður þó af eðli
gagna þeirra, sem vinna skal við og eðli fyrirtækja þeirra,
sem vinnsluna stunda. Og fleira kemur til.
Bjarni tók fyrst til umfjöllunar hugtökin dreifð vinnsla og
miðlæg, en þar hefur á stundum nokkuð vantað á, að skil-
greiningar væru nægilega skýrar. Miðlæg vinnsla, þ.e. að
miðað sé við eina öfluga vél, sem bæði varðveitir og vinnur
úr öllum gögnum, hefur um langa hrið verið ráðandi. Aðili
sá, er tölvuna rekur, getur hins vegar verið dreifður
landfræðilega og tengst þá miðtölvunni um skjái.
Skilgreiningar á dreifðri vinnslu taldi Bjarni, að hefðu
verið nokkuð á reiki. Jafnan er þó sá skilningur lagður i,
23