Tölvumál - 01.11.1987, Side 30
hugann aftur að þeim nettengingarmöguleikum, sem þar kunna
að vera nýtanlegir.
En dreifð vinnsla sækir á, og fyrirsjáanlegt er, að hún
verði mun algengari í náinni framtið, eftir þvi sem tækni
fleygir fram og verð vélbúnaðar lækkar. Taldi Bjarni, að
velflest fyrirtæki hér muni i framtíðinni byggja vinnslu
sína á dreifðum einingum. Stofnanir á borð við SKÝRR munu
þó ekki á nokkurn hátt glata gildi sínu, þótt hlutverk
þeirra verði óhjákvæmilega breytt. Sala á þjónustu mun að
líkindum skipta þverrandi máli; meginhlutverk verður
varðveisla miðlægra gagna og netstjórnun. Spáði Bjarni því,
að áður en langt um liði, mundi SKÝRR ekki aðeins verða
allsherjar gagnasafnsvörður landsmanna, heldur muni
fyrirtækið þar á ofan stjórna stærsta tölvuneti norðan
Alpafjalla. Flest önnur vinnsla verður þá dreifð, "komin út
á mörkina".
Margir urðu til að leggja fram spurningar, er Bjarni lauk
erindi sinu, en ekki gefst rými til að rekja þær hér.
Siðasta erindið flutti gestur ráðstefnunnar, Tor Olav
Steine frá Norsk Data, en það fyrirtæki hefur undanfarið
gert ýmsar forvitnilegar tilraunir á sviði dreifðrar
gagnavinnslu. "SAMTENGD OG SAMHÆFÐ TÖLVUKERFI" var nafn
erindis hans, sem flutt var á ensku. Fór Steine almennum
orðum um það, hve torvelt væri að ná báðum markmiðum i
senn, dreifðri vinnslu og samhæfingu búnaðar, og nefndi til
gamalkunnug ljón, sem þá hafa einatt orðið á vegi manna.
Hann rakti i erindinu ýmsan þann vanda, sem leysa þarf við
gagnavinnslu, og atriði, sem torvelda hana, hvort sem um er
að ræða dreifða vinnslu eða ekki; sundurleitan uppruna
tölvubúnaðar hvers konar, hægan sendingarhraða um síma-
linur, kostnað við sendingar, vandann, sem þvi er samfara
að spá fyrir um þróun dreifðra kerfa, óþægindi við endur-
skipulagningu kerfa og ófátt fleira í svipuðum dúr, án þess
þó að fjalla um lausnir slíkra vandkvæða eða greina að
nokkru marki frá leiðum til lausna eða greina frá aðferðum
fyrirtækis sins við skipulagningu dreifðrar vinnslu eða
samhæfingu búnaðar. Erindið var e.t.v. nokkuð á svig við
önnur meginumfjöllunarefni ráðstefnunnar, flutt i léttum
dúr og ekki siður fallið til að skemmta en fræða.
Jón R. Gunnarsson.
30