Tölvumál - 01.10.1988, Síða 7

Tölvumál - 01.10.1988, Síða 7
Þrátt fyrir þessa gagnrýni voru flestir sammála um að framtíðin væri síður en svo svört. Tæknikunnáttuna og hugvitið skorti ekki, og með því að laga verkskipulag og vinna skipulega að markaðsmálum, þá væru tækifærin næg. Markaður fyrir hugbúnað vex mjög hratt í ná- grannalöndum okkar. Á vissum sviðum eins og fiskvinnslu, erum við þegar komin vel á veg með útflutning á hugbúnaði, sem felldur er inn í fiskvogir. Fram komu ábendingar um að greinin þyrfti að efla sam- takamátt sinn, ekki síst hvað útflutning varðar. Einnig þyrfti að auka mjög rannsóknir og þróunarstarf á sviði hugbúnaðarfræða og hagnýtingar tölva. Ráðstefnuna sóttu 85 manns. Tóku fundarmenn mikinn þátt í efni ráðstefnunnar með fjölmörgum fyrirspurnum til framsögumanna og líflegum umræðum um efnið. Þótti mönnum ráðstefnan takast vel og markmið hennar hafa náðst, þ.e. að varpa ljósi á stöðu og horfur hug- búnaðariðnaðar á íslandi. -pj. Frá ráöstefnu Skýrslutœknifélags íslands, "Hugbúnaöariönaöur á íslandi, staöa og horfur", haldin á Hótel Sögu, 26. október 1988. 7 TOLVUMAL

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.