Vísir - 07.05.1962, Síða 5
Mánudagur 7. maí 1962.
VISIR
5
Nú keppa ÞjóSverjw á salt-
fískmarkaði Suðurlanda
Eins og kunnugt er, hafa úthafs-
togararnir þýzku á seinni árum
stundað auknar veiðar í salt. Það
var fyrir 5 árum, sem þessar veiðar
og útflutningur Þjóðverja á salt-
fiski hófst, og var gufutogarinn
Claus Möller fyrstur til að taka
þær upp, en það var árið 1953. Hér
var um tilraun að ræða, þar sem
Þjóðverjar höfðu af engri reynslu
að státa á þessu framleiðslusviði.
Aðrar þjóðir, t. d. Bretar og
Færeyingar, höfðu lengi fengizt við
þessa framleiðslu, en framleiðsla
saltfisks í fiskveiðilöndunum er
einnig talsverð, en magnið er að
sjálfsögðu mikið komið undir fisk-
veiðimöguleikunum. Þýðing salt-
fiskframleiðslu fyrir Þjóðverja er
enn meira áberandi fyrir þær sakir,
að sumarmánuðirnir hafa i raun-
inni alltaf verið vandræðatími fyrir
fiskveiðarnar þýzku, og ein afleið-
ing þess er, að nauðsynlegt hefur
reynzt að finna annað verkefni
f^rir úthafstogarana yfir sumar-
mánuðina. Þess vegna komu salt-
fiskveiðarnar sem lausn á þessu
vandamáli á réttu augnabliki.
Mikilvægt skilyrði fyrir velheppn
uðum saltfiskútflutningi er að fram
leiðsla fyrsta flokks vöru, sem full-
nægir alþjóðlegum kröfum. Hinir
hefðbundnu saltfiskkaupendur,
Ítalía, Portúgal, Spánn og einnig
Frakkland — gerðu miklar kröfur
Komnirheim —
Framh it 1 siðu
áttu þar viðræður við fulltrúa
frönsku stjórnarinnar á mið-
vikudag í fyrri viku. Síðan var
flogið til Römaborgar og áttu
þeir viðræður við fulltrúa
ítölsku stjórnarinnar frá föstu-
degi til mánudags.
Loks komu þeir til Parísar 'aft
ur og áttu á fimmtudag í síðustu
viku viðræður; við Efnahagssam-
vinnustofnunina í París. um
tækniaðstoð við ísland.
Fyrsía skipið —
Framh. af 16. síðu
þó stöðugum breytingum undirorp-
ið, þa. sem þeir eru alltaf að fá
síld. Skipin sem flytja síldina eru
sérstaklega útbúin til að geta losað
síldina beini úr bátunum. Hafa þau
til þess sé.’staka krabba Þriðja
flutningaskipið leggui af stað frá
Noregi í dag og eftir 1—2 daga
leggja önnur tvö af stað.
Leiðrétting
Þau mistök urðu i texta með
myndsjánni á laugardagi.-.n, að nið-
ur féll nafn formanns Nemendasam
bands Verzlunarskólans, Sigurbjörn
Þorbjörnssonar. Þá var misritað
nafn konu sk 'astjórans, en hún
heitir Lea Eggertsdóttir, og föður-
nafn Elínar Maríusdóttur. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á
þessu.
um vörugæði. Það er því skiljan-
Iegt, að fyrstu sölusamningar Þjóð-
verja höfðu að geyma ákvæði um
að Færeyingar yrðu að annast flatn
ingu fisksins. Urðu þýzkir útgerð-
armenn að ráða Færeyinga til
verksins.
En nú er svo komið, að þýzku
sjómennirnir hafa lært til þessa
verks og þar að auki eru nokkur
skip útbúin Baaders-flatningsvél-
um. Fiskurinn, sem flattur er í vél-
unum hefur Ííkað vel, og stendur
nú ekki að baki þeim, sem flattur
er með höndunum. En ennþá eru
Færeyingar ráðnir á skipin.
Til þess að jiá hinum réttu gæð-
um vörunnar, þarf líka rétta teg-
MILLI klukkan tíu og tólf á laug-
ardagsmorguninn var stolið mán-
aðargömlum hvolpi hjá Carl Carl-
sen minkabana við Rauðavatn.
Er þetta þriðji hvolpurinn, sem
stolið er frá honum síðan um jól,
og hefir enginn þeirra fundizt aftur.
Svo sem ýmsum er kunnugt, hef-
ir Carlsen komið sér upp stóru
hundaræktarbúi við Rauðavatn, og
er það rekið að nokkru í sambandi
og samráði við Búnaðarfélag ís-
lands og veiðistjóra, því að hund-
arnir eru allir af veiðihundaltynjum
og notaðir við að finna og vinna
mink og ref. Eru hundar hans því
dýrir og þess vegna nokkur freist-
ing fyrir menn, sem kunna ekki
Innbrof og
bjófnaðir
í fyrrakvöld eða fyrrinótt var
kvenveski stolið í Vetrargarðinum
hér í bænum, en í því voru um 700
kr. i peningum.
Stúlkan, sem veskið átti, gerði
lögreglunni strax aðvart. Féll
grunur á 17 ára gamlan pilt og
var hann handtekinn og settur í
geymslu yfir nóttina. í gærmorgun
j'.taði hann á sig stuldinn við yfir-
heyrslu.
í fyrrinótt kærði gestur á Hótel
ík yfir því að stolið hafi verið
frá sér tveimur flöskum af brenni-
víni og rafmagnsrakvél af Philips
g~rð. Kvað hann þetta hafa horfið
úr herbergi sínu og fékk lögreglan
málið til meðferðar.
Úr mannlausu húsi, sem Geir
bóndi í Eskihlíð á við Reykjanes-
braut hafði verið stolið handlaug
og klósettskál. Þá hafði innbrot
verið framið í bækistöð Sölufélags
garoyrkjumanna, sem er þar
skammt frá og loks var Kært yfir
innbroti í Selásbúð a Selás er þar
var stolið einhverju af sælgæti og
tóbaki og auk þess mikið verið
rótað og tætt, sennilega m.a. í leit
að peningum, hverjir ekki voru til
staðar.
und salts og umstöflun fisksins
verður að vera rétt framkvæmd.
Hefur þýzki saltfiskurinn nú unnið
sér gott orð, og það er aðeins fyrir
hin miklu gæði vörunnar, sem
heppnast hefur að auka framleiðsl-
una: 1956: 259 lestir, 1957: 2.990
lestir, 1958: 5.256 lestir, 1959: 3.081
lest, 1960: 5.262 lestir og 1961: 10
—12.000 lestir.
Þær þjóðir, sem eru hefðbundnir
framlþiðendur saltfisks, gáfu lítinn
gaum að hinni þýzku framleiðslu
í byrjun. í ár hefur átt sér stað
breyting á þessu. Á ítalska mark-
aðinum hefur orðið vart við fyrstu
samkeppnisáhrifin af þessari fram-
leiðslu. (Skv. Ægi)
alveg að greina á milli „mitt“ og
„þitt“ að krækja sér í einn, þegar
Carlsen verður að bregða sér frá
og eftirlit er ekki með hundunum.
Það eru tilmæli Carlsens, að þeir,
sem verðá varir við lágfættan hvolp
sem skyndilega hefir komið í vörzlu
manns, að þeir láti hann vita um
símastöðina í Selási eða lögregluna.
Hvolpurinn er kolsvartur og hrokk
inhærður með örlítinn hvítan blett
á bringu.
JtljfiKJpringa -
‘ Fraittft’ 'jr.'l siöu
urinn og’ læsti eldurinn sig ekki
aðeins í vörubifreiðina, sem var
af Austin-gerð, heldur og í aðra
bifreið, sendiferðabíl af Garant-
gerð, sem stóð við hliðina. Urðu
nokkrar skemmdir á báðum, en
þó mun meiri á þeirri, sem
sprengingin varð í.
Drengurinn, sem kveikti í
benzíninu, slapp með öllu ó-
meiddur, en félagi hans sem
stóð hjá honum, sviðnaði eitt-
hvað. Munaði engu að þarna
hlytist af stórslys.
Á laugardagsmorgun kviknaði
í geymsluskúr, sem er áfastur
við húsi' nr. 1 við Óðínsgötu.
Þarna var allmikill eldur þegar
slökkviliðið kom á vettvang, og
hann þá þegar Iæst sig inn í
klæðingu á íbúðarhúsinu sjálfu.
Urðu slökkviliðsmennirnir að
rífa nokkuð af klæðningunríi til
að komast fyrir eldsupptökin.
Brunatjón mun hafa orðið tals-
vert.
í gær var slökkviliðið kvatt
tvívegis á "ettvang. í annað
skiptið að Hverfisgötu 84, þar
hafði kviknað í bílskúr út frá
logsuðutækjum, en skemmdir
ekki orðið tilfinnanlegar. f hitt
skiptið hafði slökkviliðið verið
beðið um aðstoð ið Hö.'ðaborg
65. Þar var 'jó ekki um eld að
ræða, heldur hafði- bakarofn
verið skilinn eftír í sambandi
með einhverjum mat eða matar-
leyfum, og síðan ofhitnað. Lagði
allmikla ’ -ælu út frá ofninum.
Heiðursfélagi
R. K. í.
ÍStjórn Rauða Kross íslands
hefur kjörið fyrrverandi for-
i mann sinn, Þorstein Scheving
/ Thorsteinsson lyfsala, heiðurs-
t félaga R.K.Í. og var honum ný-
í lega afhent heiðursskjal af því
í tilefni.
4 Þorsteinn Scheving Thor-
I steinsson hefur setið í stjóm
' Rauða Kross fslands frá upp-,
hafi, eða frá 1924, og verið for-
maður hans frá 1947 og þar til
i hann lét af stjórnarstörfum í1
| september s.l. Enginn maður hef 1
ur unnið eins mikið fyrir Rauða {
Kross íslands og mótað starf-;
semi félagsins eins og hann. ,
Á myndinni sést Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson með
I heiðursskjalið.
I 1
Arekstur
Harður árekstur varð um miðjan
dag á laugardaginn á mótum Löngu
hlíðar og Háteigsvegar.
Það var ekki nóg með það að
farartækin skemmdust, heldur
meiddist ökumaður annarar bifreið-
arinnar svo og farþegi hans. öku-
maðurinn, Guðjón Jónsson Gufú-
læk 18 skarst í andliti, en farþeginn
Gísli R. Sigurðsson Birkihlíð meidd
ist á handlegg. Þeir voru báðir
fluttir í Slysavarðstofuna.
Fiuoresentpípur
40 Watta
Warm vvhite, de luxe.
G. Marteinsson h.f.
Umboðs- og heildverzlun
Bankastræti 10. Simi 15896
VARMA
EINANGRUN
Sendum heim.
P Þorgnmsson & Co.
BORGARTUNl 7
SIMI 22235
STÚLKUR - ATVINNA
stúlkur helst vanar saumaskap óskas+ strax Upplýsingar í dag og
aæstu daga frá kl. 5 til 7 e. h. (e’tki f síma).
Klcðqerlin i'dkkp
Aðalstræti 16 (uppi)
1—2 duglegir
Trésmiðir óskast
þurfa ekki að hafa réttindi. Uppl. eftir kl. 8
á kvöldin. — Sími 16349.
Kaupmenn — Kaupfélög
TIL SÖLU
Reykf síldarflök
(Boned kippers).
Sæfarútgerð ISifnarfjorðar
Símar: 50107 og 50929.
!
Carlsens-hvolpi
stolið á laugardag
\