Tölvumál - 01.02.1989, Blaðsíða 24

Tölvumál - 01.02.1989, Blaðsíða 24
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS Hallveigarstíg 1 - Pósthólf 681 - 121 Reykjavík póstfax 25380 - sími 27577 Til félaga í Skýrslutœknifélagi íslands: Eins og félagsmenn vita þá er Skýrslutœknifélag íslands helstu samtök aöiln í upplýsingaiðnaði hér á landi. Markmið okkar er að hvetja til skynsamlegrar og hagkvœmrar notkunar á tölvum með því að auka þekkingu á tölvumálum og upplýsingatækni. Fundir, ráðstefnur og námskeið eru haldin í þeim tilgangi. Þá miðlum við upplýsingum til félaga og fjölmiðla með TÖLVUMÁLUM, fréttabréfi félagsins. Styrkur okkar felst í félögum okkar og því fleiri sem við erum því öflugra er starf okkar. Félagsgjöld árið 1989 eru: Fyrirtœki og stofnanir greiða kr. 7.600 fyrir fyrsta félagsmann, kr. 3.800 fyrir annan og kr. 1.900 fyrir hvern félagsmann umfram tvo. Miðlið fréttabréfinu til starfsfélaga og hvetjið þá sem áhuga hafa á upplýsingatœkni til þess að gerast félagar. Nóg er að hringja í skrifstofu félagsins - sími 27577 - þar er tekið á móti skráningu nýrra félaga. St jórnin.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.