Tölvumál - 01.04.1989, Blaðsíða 16
Jóhann Gunnarsson
Fjármálaráðuneytiö
Arnarhvoli
101 Reykjavik
Fyrir um hálfri öld, er Einar J.
Skúlason hóf verslunarrekstur
í Reykjavík, voru hvorki tölvur né
rafdrifnar rit- eða reiknivélar á
boðstólum. Styrjaldarástandið á
meginlandi Evrópu varð sífellt al-
varlegra og skipasamgöngur til ís-
lands því erfiðar. Fjárhagur ís-
lenskra heimila var bágur sem og
efnahagur landsins í heild. Það
þurfti því mikla áræðni og fram-
sýni til að stofna og reka fyrirtæki
f þá daga.
eð framsýnina að leiðarljósi
hefur fyrirtækið Einar J.
Skúlason siglt í gegnum surt og
sætt, kreppur sem breytingar. En
þrátt fyrir ótrúlega örar tækni-
breytingar og mikla framþróun á
verslunarsviðinu er einn þáttur í
starfsemi fyrirtækisins sem ekki
hefur breyst. Sá þáttur hefur verið
einn lykilþátturinn í velgengni
fyrirtækisins gegnum tfðina,
nefnilega vönduð og góð þjónusta.
gj inar J. Skúlason hf. býður ein-
l£ ungis fyrsta flokks vörur og
jDjónustu sem þróast hefur í sam-
skiptum við ánægða viðskiptavini
í hálfa öld. Meira en 60 sérþjálfað-
ir starfsmenn leitast við að þjóna
sem best hinum fjölmörgu við-
skiptavinum fyrirtækisins. Ef þú
þarft á tölvum, skrifstofutækjum,
hugbúnaði, kerfisþróun eða
rekstrarvörum að Iialda, er Einar
J. Skúlason hf. fyrirtæki sem þú
getur lagt traust þitt á. Einkunnar-
orð okkar eru: Tækni og þjónusta
í þína þágu!
Hjá Einari J. Skúlasyni hf. fást öll tæki og rekstrarvörur til nútíma skrifstofuhalds s.s.
tölvur, jaöartæki, hugbúnaöui ritvélar, reiknivélar, Ijósritunarvélar og búöarkassar.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33