Vísir - 20.06.1962, Side 4

Vísir - 20.06.1962, Side 4
4 Miðvikudagur 20. júní 1962. ....................... V / SIR Sjálfstæðisfundur s V-HúnvatnssýzSu Sjálfstísðisfélag Vestur-Hún- vetninga hélt fund á Hvammstanga þann 15. júní s.l. Formaður félagsins Benedikt Guðmundsson, Staðarbakka, setti fundinn og stjórnaði honum. Fund- arritari var kjörinn Guðjón Jósefs- son, Ásbjarnarstöðum. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdarstjóri Sjálfstæðis- flokksins, flutti erindi um skipu- lagsmál flokksins, og ræddi sér- staklega um flokksstarfið í Norð- urlandskjördæmi vestra. Á fundinum fór fram kosning fulltrúa í fulltrúaráð og kjördæm- isráð. Marilyit — Framh. af bls. 8. Auðvitað eru fleiri ástæður fyrir erfiðleikum kvikmyndafé- laganna. Eyðslan og kostnaður- inn er ótrúlega mikill. Eitt fé- lagið eyddi t. d. 100 milljónum króna í kvikmyndaréttindi, sem það notar síðan ekki. Og leikstjórar geta eins og leikar- ar gert mistök. En aðalsökin liggur hjá fá- einum heimsfrægum leikurum, sem beita valdi sínu ábyrgðar- laust. Þeir hegða sér eins og dónar og þeir eru svo skamm- sýnir að þeir sjá ekki að þeir eru að drepa gæsina, sem verpti gulleggjum fyrir þá. Séra Gunnar Gíslason, alþingis- maður, ræddi stjórnmálaviðhorfið og voru að erindi hans loknu al- mennar umræður og tóku eftkfar- andi fundarmenn þátt í þeim: Guð- jón Jósefsson, Ásbjarnarstöðum, Gunnlaugur Auðunn, Bakka, Sig- urður Tryggvason, Hvammstanga, Benedikt Guðmundsson, Staðar- bakka, Loftur Jósefsson, Ásmund- arstöðum og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Stjórn Sjálfstæðisfélags Vestur- Húnvetninga skipa: Benedikt Guð- mundsson, Stakarbakka, formað- ur, Óskar Levý, Ósum, Jóhannes Guðmundsson, Auðunnarstöðum, Sigurður Tryggvason, Hvamms- tanga og Þórarinn Þorvaldsson, Þorvaldsstöðum. Landsamband Framh. aí 10. síðu. stofnun Landssambandsins, Tómas Vigfússon, húsasmíðam., um Iðnlánasjóð, Björgvin Fred- reksen, vélavirkjam., um Iðnað- armálastofnun íslands, Óskar Hallgrlmsson, rafvirkji, um þróun skipulegrar iðnfræðslu á íslandi, Guðmundur H. Guð- mundsson, húsgagnasmíðam., um Iðnaðarbanka íslands h.f., Þór Sandholt, skólastj., um Skólamál iðnaðarmanna og Sveinbjörn Jónsson, forstj., um Iðnminjasafn. Ekkerf vantar á hamingjuna — Framh. aí 9. sfðu. — Hvað ætlarðu nú að fara að gera? — Ég veit það ekki enn. Þetta er ósköp leiðinlegur tími eftir að prófin eru búin. Mér finnst prófin skemmtilegasti tími ársins. Annars er ég að leita mér að vinnu núna. Ef ein ^ivern vantar vinnukraft er ég ennþá leus. Sérstakt hamingjuár Foreldrar þessara miklu námsmanna eru Helgi Þorláks son, skólastjóri í Vogaskóla, og kona hans, Gunnþóra Krist- mundsdóttir. Helgi hefur und- anfarin þrjú ár verið skóla- stjóri við Vogaskólann, en var áður yfirkennari við Austur- bæjarskólann. — Þetta eru miklir ham- ingjudagar hjá ykkur hjónum? Helgi brosir og segir: — Þetta eru ekki aðeins I ham- ingjudagar, heldur er þetta sér stakt hamingjuár. Við eigum fimm syni og í febrúar eign- uðumst við fyrstu dótturina'.' Næst var ferming þriðja sonar- ins. 10. júni var svo fertugsaf- mæli frúarinnar. Þá kom eink- unn Þorsteins í landsprófinu, stúdentspróf Þorkels og síðast trúlofun hans. Á næstunni eig um við hjónin svo 20 ára brúð kaupsafmæli. — Er ekki skemmtilegt að vera að fá fyrstu tengdadóttur- ina? i/ -— Við erum mjög ánægð með hana. Ég kynntist henni fyrst þegar hún var i gagn- fræðaskóla. Hún hefur alltaf verið mjög prúð og elskuleg og er auk þess bráðdugleg námsmanneskja. Eins og Þor- kell sagði kvöldið sem hann trúlofaðist henni, er alls ekki víst að hann hefði orðið hæst- ur ef hún hefði haldið áfram í menntaskóla. Þegar þau voru í gagnfræðaskóla, skiptust þau á um að vera hæst. — Hvaða skýringu kunnið þið á þessum námsafrekum son anna? Frúin verður fyrir svörum: — Ekki er það af því að þeir séu reknir áfram. Ég man ekki eftir að hafa þurft að minna þá á að læra. Helgi bætir við: — Ég hef gert mér það að reglu að hjálpa þeim aldrei heima, nema þeir biðji sérstak lega um það. Ég álít miklu heppilegra að þeir leiti til sinna eigin kennara. Þeir eiga mikið kennurum sínum að þakka, enda hafa þeir báðir verið sér- lega heppnir með kennara. Þessi góði styrkur sem Þorkelí fær, er ekki síst að þakka þeim góðu meðmælum, sem kennar- . ar og rektor gáfu honum. Þetta er ekki lítils virði. Að lckum segir frúin: — Mér er ekkert um þetta. Þeir hafa ekki gott af því að vera gerðir of mikil glansnúmer. Síldarstúlkur Nokkrar stúlkur vantar til síldarsöltunar á Seyðisfirði í sumar. — Uppl. á skrifstofu % BALDURS GUÐMUNDSSONAR Vesturgötu 5 — Sími 16021. I Einasta fullkomna planslípivélin hérlendis VÉLAVERKSTÆÐI Þ. JÓNSSON & CO, GLA UMBÆR HÁDEGISVERÐUR Á HÁLFTÍMA 1 Framreiddur kl. 12.00—15.00. - Hér fer á eftir matseðill vikunnar: H|1 Miðvikudagur 20-6 ‘62 Púrrusúpa og Kryddsoðinn bauti m/grænm. kr. 40 eða Soðinn fiskfl. m/Caberos kr. 30 eða Omelett m/tómötum kr. 30 Fimmtudagur 21-6 ‘62 Tómatsúpa og Soðið lambakjöt m/pipar- rótarsos kr. 40 eða St. fiskflök m/sitrónu kr. 30 eða Omelett m/sveppum kr. 30 Föstudagur 22-6 ‘82 Gulertusúpa og Soðið saltkjöt m/gulrófum kr. 40 eða St. fiskfl. m/agúrkum kr. 30 eða ■ Omelett m/skinka kr. 30 Laugardagur 23-6 ‘62 Mjólkursúpa °g soðinn saltf m/smjöri kr. 30 eða Bixematur m/eggi kr. 30 eða Hakkað buff m/lauk kr. 30 ATH.: Þjónustugjald og söluskattur er innifalið í verðiiiu. EFTIRMIÐDAGSKAFFI FRAMREITT FRÁ KL. 3-6. \í GLA UMBÆR FRÍKIRKJUVEGI 7 SÍMI 22643 og 19330

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.