Vísir - 20.06.1962, Page 8

Vísir - 20.06.1962, Page 8
8 Miðvikudagur 20. júní 1962. r Otgefandi Blaðautgatan VISIR R.itstjórar: Herstein: Pálsson Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri Axel rhorstemsson Fréttastjóri Þorsteinn Ö Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónui á mánuði. I lausasölu 3 kr. eint. - Slm: 1166C (5 llnur). Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.i. Kommúnistar á undanhaldi Það er auðséð á Þjóðviljanum þessa dagana, að þungar áhyggjur hvíla á forustumönnum íslenzka kommúnista. Úrslit bæjar- og sveitarstjórnarkosning- anna sýndu svo ekki verður um villzt, að mjög er tek- ið að halla undan fæti hjá Moskvu-flokknum og ýms- ir, sem áður hafa fylgt honum að málum, eru nú bún- ir að átta sig á því, að hann berst hvorki fyrir íslenzk- um hagsmunum né þeim hugsjónum, sem vestrænar lýðræðisþjóðir hafa í heiðri. Kommúnistum hefur ótrúlega lengi tekizt að blekkja nokkum hluta þjóðarinnar með því, að þeir væru að berjast fyrir hagsmunum verkafólks, og ann- arra láglaunastétta í þjóðfélaginu. En nú virðist sem skemmdarverk þeirra gegn viðreisnarstefnunni hafi opnað augu margra, sem áður trúðu áróðri þeirra, fyrir þeirri staðreynd, að þeir eru viljalaus verkfæri í höndum erlends valds, sem leynt og ljóst vinnur að því, að rífa niður þjóðskipulag lýðræðisins og hneppa sem flestar þjóðir heimsins í þá þrældómsfjötra, sem fólkið fyrir austan járntjaldið stynur undir og fær ekki losað sig úr um ófyrirsjáanlega framtíð. Það hefur lengi verið vitað ,a^ kommúnistaflokk- urinn á íslandi nyti fjárhagslegs stuðnings frá yfir- boðurum sínum í austurvegi. Þjóðviljinn hefur auð- vitað neitað þessu og kallað það „íhaldslygi“ og öðr- um álíka nöfnum; en nú hefur verið sannað með óyggj- andi gögnum, að þessi svokallaði „íslenzki“ sósíalista- flokkur er rekinn fyrir austrænt fé og hefur undan- farið fengið hvorki meira né minna en 180 þús. austur- þýzk mörk eða um 2 millj. ísl. kr. á ári gegnum komm- únistaflokkinn í Austur-Þýzkalandi. Þessu hefur Þjóðviljinn ekki treyst sér til að mót- mæla, enda hægt að leggja gögnin á borðið hvenær, sem þess gerist þörf. Og það er líka sannað, að hve- nær sem íslenzka kommúnista skortir fé til starfsemi sinnar, þarf Einar Olgeirsson ekki annað en skrifa til Austur-Þýzkalands, og peningarnir koma samstundis og beiðnin berst þangað austur. / stjórn Framsóknar Þessi staðreynd hefur nægt til þess, að ýmsir, sem fylgdu kommúnistum, hafa nú snúið við þeim baki. Þetta vita engir betur en kommúnistaforingj- arnir sjálfir, o^ þess vegna var það, að þeir reyndu sem víðast í kosningunum í vor, að ná samkomulagi um framboðslista svokallaðra „vinstri manna“. Með því ætluðu þeir að reyna að fela fylgistapið, og í góðri samvinnu við forustumenn Framsóknarflokksins tókst þeim það sums staðar. Stuðningur Framsóknar við konpnúnista bæði í kosningunum og á eftir er hin versta hentistefna og ábyrgðarleysi, sem átt hefur sér stað í íslenzkum fcstjómmálum fyrr og síðar. V'lSIR Marilyn Monroe og franski leikarinn Yves Montand. MARIL YN REKIN Marilyn Monroe, ein fræg- asta og eftirsóttasta kvik- myndaleikkona heims, hefur verið rekin úr starfi. Þessi djarfa ákvörðun Fox-kvik- myndafélagsins hefur vakið mikið umtal og vakið athygli á einu mesta vandamáli kvik- myndafélaganna, sem er viður- eignin við duttlungafullar stjömur, er hefur kostað félög- in offjár. Ástæðan fyrir þvi að Mari- lyn var rekin var skróp og skeytingarleysi. Það var kom- inn tími til að taka f taumana, því að þegar mál þetta er at- hugað kemur það f ljós, að framkoma hennar sem og fleiri leikara hefur verið ósæmileg. Hafa þeir þótzt mega hegða sér eins og þeim sjálfum þókn- aðist í skjóli frægðar sinnar og ekkert tekið tillit til hundraða annarra starfsmanna, sem eiga að vinna með þeim, né heldur hags kvikmyndafélaganna, sem eiga þó mörg í fjárhagslegum erfiðleikum. ★ Hinn frægi leikari Spencer Tracy, sem nú er nýlega lát- inn, sagði einu sinni: Leikari er maður, sem getur lært utan- bókar erfiðar og langar setn- ingar. En regla Spencers virðist ekki giida lengur. Á síðustu tveimur til þremur árum hafa kvik- myndaleikarar orðið svo vold- ugir og fyllzt slíku stór- mennskubrjálæði, að þeir gera allt annað en að læra hlut- verk sfn. Það getur verið að þeir hafi reynslu og laun þeirra eru tal- in f stjarnfræðilegum upphæð- um, en samt hegða þeir sér eins og lélegir amatörar. Kvenleikararnir fara inn og út hvenær sem þeim sýnist, eru hvað eftir annað í veikinda- fríum, skera setningar í hlut- verkum sínum niður eins og þejm sjálfum sýnist og heimta laun sem gætu fyllt heila banka. Og karlleikararnir eru haldn ir stórmennskuæði, þeir vilja sjálfir stjórna leiknum, skrifa kvikmyndahandritið fyrir sjálfa sig og velja samleikarana. ★ Þetta hefur náð svo langt, að Lollobrigida heimtar sjálf að hafa úrslitavald um kvikmynda Í.VWWAWWVWWW handritin, Marlon Brando neit- ar samstarfi við alla leikstjóra nema sjálfan sig og Dean Mar- tin stekkur burt úr kvikmynd af því að hann neitar að leika á móti nokkurri annarri leik- konu en Marilyn Monroe. Auðvitað hafa leikarar alltaf verið kenjóttir. En í gamla daga urðu þeir að hlíta viss- ^um reglum varðandi persónu- Iega framkomu. Greta Garbo var ákaflega mislynd, — en kom það nokkru sinni fyrir að hún mætti ekki á sviðinu? Kom það nokkurn tíma fyrir að Gary Cooper stykki burt frá kálfkláraðri kvikmynd? Var Grace Kelly nokkurn tíma ótilbúin, óstund- vís eða óviss á hlutverki sfnu? Nei, slíkt kom aldrei fyrir, enda hefðu þau þá fengið orð í eyra. ★ Á gullöld kvikmyndanna var kvikmyndaverunum stjórnað af ^ðurlegum stórmennum eins og Louis Mayer og Darryl Zanuck, sem voru oft harðir í horn að taka og veittu fyrir- tækjunum örugga forustu. Þeir voru raunverulegir stjórnendur 'og kunnu að méð- höndla skapmikla leikara. Þeir völdu sjálfir í hlutverkin, af- hentu þeim handritin og þá var hagnaður af kvikmyndunum. Nú eru þessir föðurlegu stjórnendur horfnir og leikar- arnir hafa tekið við stjórnar- taumunum. Þeir ákveða sjálfir laun sín og taka sinn hluta af ágóðanum ef hann er einhver, en ekki af tapinu. Þeir eyða svo löngum tfma í að annast „viðskiptahliðina“, að þeir hafa ekki tíma til að leika. ★ Þegar Marilyn-hneykslið varð sagði einn af stjórnendum kvöi myndaversins: — Við höfum látið sjúklingana á geðveikra- spítalanum taka við stjórn hans og þeir hafa lagt hann í rústir. Sagan af uþptöku þessarar "• kvikmyndar, „Something has got to give“, er ófögur. “» 1 sjö vikna kvikmyndaupif- “I töku kom Marilyn aðeins fimm daga til starfa. Og jafnvel í *« þau fáu skipti sem hún kom, % kunni hún ekkert f hlutverki I* sínu. *I Nú er hætt við töku kvik- Ij myndarinnar og hundruð starfs *• manna kvikmyndafélagsins eru >[ atvinnulausir. *• * í Eða tökum kvikmyndina ■. Kleopatra, sem Fox-félagið hef- I* ur einnig unnið að. Kostnaður- \ inn við upptöku hennar nemur >| nú 1 milljarð króna og það er *• sagt að laun Elisabeth Taylor "I nemi 70 milljónum króna. !* Waltei Wanger, sem stjórnar þessu fyrirtæki, segir, að þeir hafi orðið að taka Elisabeth í *■ hlutverkið, því að það nægi ■! ekki að fá fagran líkama í þetta !* hlutverk, Kleopatra hafi fyrst “= og fremst verið skörp og mennt «J uð kona, sem fór með mikil J> völd. En það er svo fátt um *! góðar , leikkonur í hópi kvik- !j myndadísa, að fáar aðrar en J. Elisabeth komu til greina. >J Þrátt fyrir það eru 70 mill- !■ jón króna laun brjálæðisleg “I upphæð. Engin stjarna er svo mikils virði. J. Það sést bezt af reikningum Fox-félagsins, að stjörnudýrk- 1“ unin er komin út í öfgar, j! Félagið tapaði um milljarð «J króna á síðasta ári. Og það J> er kaldhæðnislegt, að sá rekst- «! ur félagsins, sem gengur bezt, J* er olfuvinnsla á landi þess í í Hollywood, en olíulindir fund- «J ust þar í jörðu fyrir nokkrum J« árum. Nam hagnaðurinn af olíu >J vinnslunni um 20 milljón krón- J* um á s.l. ári. "I ★ •: Nú þegar Monroe-kvikmynd- J. in hefur verið lögð á hilluna «J ríkir vonleysi og atvinnuleysi J* í hinum tómu leikskálum Fox- j! félagsins. Fyrir þremur árum «J var verið að vinna þar sam- J« tímis að töku sjö kvikmynda *J og 2 þúsund manns störfuðu !" við kvikmyndaverið. Nú eru J« Ieiksviðin auð. Kadillak-bflun- «J um hefur verið ekið á brott J» af bílastæðunum og búnings- «J herbergin eru tóm. I* Framh. á 4. síðu. *! i ii V i M ,11« n ■ i i i 'mW, m* W.WW

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.