Vísir - 20.06.1962, Page 13

Vísir - 20.06.1962, Page 13
Þriðjudagur 19. júní 1962. V'SIR 13 1937 -K BOKMENNTAFELAGID MAL OG MENNING -j< 1962 4 FMÆLISÚTGÁ FA í haust í viðhafnarbúningi — Tólf bækur eftir ÞJÓÐKUNNA 'ISLLNZKA HÖFUNDA Að því tilefni að bókmenntfélagið Mál og menning varð 25 ára 17. júní í ár hefur stjórn félagsins og félagsráð ákveðið að stofna til afmælisútgáfu og hefur fengið til samstarfs nokkra helztu rit- höfunda og skáld þjóóarinnar sem leggja til í þessa útgáfu ný frumsamin verk. Stjórnin vill að á út- gáfu þessari sé myndarbragur, að það fari saman fjölbreytileg verk eftir góða höfunda og vönduð bókagerð, svo að útgáfan verið félaginu til sóma og allir sem að hana fá í hendur hafi ánægju af að eiga hana og varðveita. Allar bækurnar verða eftir íslenzka höfunda og verður leitað aðstoðar fremstu bókagerðar- og listamanna til að gera á þær kápur og sjá um útlit þeirra. Bækurnar sem Mál og menning hefur verið svo heppin að fá í afmælisútgáfuna eru þessar — (tólfta bókin verður ákveðin síðar): Þórbergur Halldór Einar Jóhannes Kiijan Gunnar Þórbergur Þórðarson: Minningar úr Unuhúsi. Skrásettar eftir Stefáni frá Hvítadal. Unuhús var annað heimili margra íslenzkra skálda og lista manna áratugum saman. Um þetta merkilega hús hafa margir íslenzkir rithöfundar skrifað, en einkum um þá „akademíu og veizlu“ sem þar stóð á þriðja og fjórða áratug aldarinnar. Minn- ingar þær sem Þorbergur Þórð- arson skráði eftir Stefáni frá Hvítadal 1923 má hinsvegar segja að fjalli um forsögu þessa skáldahúss, því þar er greint frá íbúum þess á árunum fyrir 1910. Jón Helgason: Tuttugu erlend kvæði, þýdd og stæld. Af undirtektum þeim að dæma sem Jón Helgason hlaut þegar hann las úr þessum ljóða- þýðingum í vor, er óhætt að fullyrða að Tuttugu erlend kvæði verði á sina vísu annar eins bókvenntaviðburður og fyrsta útgáfa frumsaminna Ijóða Jóns fyrir tuttugu og þremur árum. Meðal margra dýrgripa þessarar bókar er sérstök á- stæða til að benda á fjögur af frægustu kvæðum Francois Vill- ons, sem verða nú í fyrsta skipti aðgengileg íslenzkum al- menningi. Halldór Kiljan Laxness: / Prjónastofan Sólin. Nýtt leikrit. Halldóir Kiljan hefur nú hvílt sig um stund frá sagnagerð, en Rannveig Sverrir ryður sér kappsfullur nýja braut í leikritasmíð, og þar er ekki síður haft á honum vakandi auga. Strompleikurinn olli miklu umróti 1 hugum leikhússgesta. Prjónastofan Sóiin er flóknara leikrit, öldin £ grfmubúningi, heimsviðburðir í hnotskurn, ragnarök gerast og líða hjá. Þessa leikrits er beðið með nýrri eftirvæntjngu. Gunnar Benediktsson: Srkiftamál uppgjafa- prests. 1 þessari bók eru elztu fyrir- lestrar og ritgerðir Gunnars Benediktssonar, frá þeim árum þegar orðið var of þröngt um hann innan kirkjunnar og hann hóf boðskap sinn um réttlæti í þjóðfélaginu. Margir minnast þess umróts sem þessar ritgerð- ir ollu á sínum tíma, en þær hafa ekki birzt áður í bóka- formi. Bókin er helguð sjötugs- afmæli höfundar. Jóhannes úr Kötlum: Ný Ijóðabók. Síðasta ljóðabók Jóhannesar úr Kötlum, Sjödægra, flutti með sér algera endurnýjungu á ljóða stíl hans. Með þessari bók brýt- ur skáldið enn nýtt land, og er þó skeleggur og óhlífinn sem jafnan fyrr. Halldór Stefánsson: Blakkar rúnir. Smásögur. Eftir að hafa gefið út 2 skáld sögur á undanförnum árum kem ur Halldór Stefánsson nú aftur að sérgrein sinni, smásagnagerð inni. í bókinni eru tíu sögur. Stefán Jónsson: Vegurinn að brúnni. Skáldsaga. Þessi nýja skáldsaga Stefáns Jónssonar er mikið verk, sem höfundur hefur unnið að síðustu árin. 1 sögu tveggja bræðra sem vaxa upp eftir fyrri heimsstyrj- öldina, eru ofnir þættir úr ör- lögum þeirrar kynslóðar sem lifði þroskaár sin á krepputím- unum. Einar Olgeirsson: Vort land er í dögun. Útdráttur úr ritgerðum. Björn Þorsteinsson annast út gáfuna. Inngangur eftir Sverri Kristjánsson. Enginn á frjórri hugmyndir en Einar Olgeirsson um framtíðar- þjóðfélag íslendinga. í þessari bók birtist kjarninn úr ritgerð- um hans um framkvæmd sósíal isma og lýðræðis, nýsköpun íslenzks þjóðfélags og um þjóð- frelsisbaráttu íslendinga. Bókin re gefin út að tilefni sextugs af mælis höfundar. Sverrir Kristjánsson: Ræður og riss. Fáir íslenzkir ritgerðahöfundar hafa kunnað betur að ydda orð sín og senda skeyti sín beint í mark, og fáir standa jafn föst- um fótum í jarðvegi húmanískra arfleifðar sem hann. Þar er þv£ Jón ekki vonum fyrr að gefið er út úrval greina hans um menn og málefni, pólitfsk og bókmenntir sfðustu tuttugu ára. Rannveig Tómasdóttir: Andlit Asíu. Ferðasaga. í þessari bók bregður hinn viðförli höfundur upp myndum frá Indlandi, Nepal, Ceylon, Kambodia, Tailandi, Uzbekistan og Kazakstan, hefur lagt leið sfna um frumskóga, eyðimerkur og upp að rótum Himalaya. Barbara Á. Árnason skreytir bókina f austurlenzkum stfl. Elztu hetjukvæði Eddu. Með inngangl og skýringum eftir JÓN HELGASON. Færra en skyldi hefur verið ritað um eddukvæði handa ís- Ienzkum almenningi. Jón próf- essor Helgason er kunnur að djúpstæðri þekkingu á fornum skáldskap og engu síður að sér- stökum hæfileikum til að miðla lesendum af hénni. Ákveðið hefur verið að afmælisútgáfan verði f aðeins 500 eintökum og seljast allar tólf bækurnar f einu lagi. Af þessum 500 eintökum afmælisútgáfunn- ar verða 100 eintök í sérstaklega vönduðum búningi, tölusett og árituð af höfundum, og ætluð vandfýsnum bókamönnum og bóka- söfnurum. Hin 400 eintök afmælisútgáfunnar verða seld innbundin í góðan shirting, allar tólf bækurnar á kr. 2.400.— eða 200 kr. bókin að meðaltali. Þær fást líka heftar á r. 2.000,— og ib. f skinn á kr. 2.700,— Safnað verður kaupendum fram til 1. sept. n. k. Hér verður um að ræða einstaka sögulegu útgáfu á bókum eftir þjóðkunna höfunda. Væntanlegir áskrifendur hafi samband við bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18. Sfmi 15055 og skrifstofu félagsins sama stað sími 22973. Stefán

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.