Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 12
Desember 1990 Hraðpakkanet Einar Haukur Reynis, Pósti og sfma Á næsta áratug munu tölvunotendur verða vitni að miklum breytingum í heimi víðneta, nánast byltingu sem gæti gjörbreytt notkun tölva við gagna- flutning lengri leiðir. I upp- siglingu eru ný kerfi sem munu verða hraðvirkari, áreiðanlegri og bjóða upp á fjölbreyttari notkunarmöguleika en þekkjast f dag. Slíkháhraðanet, eðabreið- bandskerfí, eru nú þegar farin að lfta dagsins ljós. Vinna við stöðlun og prófanir er í fullum gangi og talið er að um miðjan næsta áratug (1995) verði slík kerfi komin í víðtæka notkun. Margt stuðlar að þróun þeirra. í fyrsta lagi þá hefur tölvunotkun og tölvueign aukist stórlega á undanförnum árum; ein- menningstölvur eru til að mynda sífellt að verða afkastameiri og hraðvirkari. Tengd þróun tölvanna er notkun staðarneta til að samtengja slíkar tölvur. Net þessi leyfa gagnaflutning á milli tölvanna á miklum hraða og notendur vilja viðhalda þeim hraða þegar gögn eru send um víðnet. í öðru lagi hefur mikil þróun átt sér stað í stafrænum fj arskiptu m. Símkerfi munu tengjast stafrænt til notenda með ISDN (Integrated Services Digital Network) sím- kerfum. Iframhaldi afþvíverða þróuð breiðbands ISDN kerfi. Með slfkum kerfum verður unnt að senda tal, myndir og gögn á milli fjarlægra staða á örskammri stundu. Ónnur kerfi fyrir háhraða- tengingar eru FDDI (Fiber Distributed Data Interface), FDDI-II, MAN (Metropolitan Area Network) og þróuð útgáfa af pakkasendingum er kallast á ensku Fast Packet Switching. Kerfi þessi bjóða tengingar á hraða sem er mun meiri en þekkist á víðnetum í dag, eða á bilinu 45 til 150 Mbit/sek og þaðan af meira. í seinasta 1 agi ber að minnast á þá öru þróun sem er í ljósleiðaratækni þar sem bandbreidd virðist nánast óþrjótandi og það er ljós- leiðaranum að þakka að slík breiðbandskerfi geta komist á laggirnar. Mynd 1 Af framansögðu er ljóst að af nógu efni er að taka en í grein þessari mun verða litið nánar á eitt atriðið sem er Fast Packet Switching, sem mun kallast hraðpakkanet hér eftirleiðis. Tækni pakkaneta Frá því fyrstu staðlarnir yfir pakkanet litu dagsins ljós árið 1976 hafa þau verið tekin í notkun um allan heim og meira og minna samtengdámillilanda. Almenna gagnaflutningsnetið er til að mynda tengt nú til um 30 landa. Staðlarnir hafa verið endurskoðaðir og betrumbættir í áranna rás. Fyrst 1980, síðan 1984 og seinast 1988. Notendum bjóðast núna fjölbreyttir tengimöguleikar inn á pakkanet fyrir einfaldan eða fullkomnari búnað. Af þessum tengistöðlum er X.25 hvað þekktastur en framleiðendur netstöðvanna bjóða einnig upp á tengingar fyrir búnað utan staðla. Að auki er núnatil mikið úrval af vél- og hugbúnaði til að tengjast slíkum netum, sérstaklega er áberandi þróun í búnaði til tengingar á staðarnetum inn á pakkanet. Afkastageta netstöðv- anna er einnig að aukast og þær ráða orðið við miklu meiri gagnaumferð en fyrir nokkrum árum. Þegar afkastageta stöðvanna er orðin svona mikil fara að opnast möguleikar á að senda auk tölvugagna bæði tal, kyrr- og hreyfimyndir. En til að þetta sé mögulegt þarf að auka verulega hraðann til notenda frá því sem nú er. Við skulum nú líta nánar á hvernig pakkanet eru uppbyggð tæknilega í dag. Flagg Vistfang Greinastýring Númer sýndarrásar Pakkastýring Gögn FCS villuleit Flagg --------------------------------------------► -4------------ HDLC höfuð X.25 höfuð HDLC hali Gagnasending á stigum 2 og 3 í X.25 Flagg Númer sýndarrásar Gögn FCS villuleit Flagg FPS gagnasending 1 2 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.