Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 15
Desember 1 990 Pappírslaus viðskipti Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR EDl-þjónusta Skýrr og ísnets Til þess að hægt sé að bjóða EDI-þjónustu þarf tvennt: EDl-stjóra (EDI- "server ") og flutningsleiðir jyrir EDI-skjöl Hér á eftir verður fyrst fjallað um flutningsleiðir og síðan um EDI-stjóra. Virðisaukanet Hvað flutningsleiðum viðkemur er auðvitað æskilegast að notfæra sér þær leiðir sem þegar eru fyrir hendi, ef mögulegt er. Hér koma ýmsar leiðir til greina. Má þar fyrst nefna talsímanetið og gagnanetið og síðan þau virðisaukanet (VAN) sem til eru í landinu, eins og sjálft Skýrr- iietið með yfír 3000 skráða notendur, RB-netið, Flugleiða- netið, net ísnets og gagnahólfaþjónusta P&S. Auk þess hefur IBM á íslandi nýlega kynnt alþjóðanet IBM. Þessi net eru velflest tengd saman eins og fram kemur á mynd 1. Virðisaukaþjónustuna, sem um er að ræða og netin bjóða, má flokka í tvo grófa flokka, sfvinnslu eða beinlínuvinnslu og tölvupóst. Með sívinnslu eða beinlínuvinnslu er átt við aðgang að gögnum og úrvinnslu þeirra á einhvern hátt. Tölvupóstur er hinsvegar þjónusta ætluð til að senda boð milli aðila og tímabundin varðveisla boðanna sem send eru. Miðað við þessa grófu flokkun bjóða öll virðis- aukanetin báða flokkana nema gagnahólfaþjónusta P&S sem býður aðeins tölvupóst, eins og einnig kemur fram í mynd 1. Út frá þessu er eðlilegt fyrir Skýrr að líta sérstaklega til flutnings- leiðarinnar gagnahólfaþjónusta P&S, sem er sérhæfð til flutnings á boðum og þar með skjölum, auk Skýrr-netsins sjálfs og ísnets sem er náinn samstarfsaðili Skýrr. Þetta eru þær flutningsleiðir sem Skýrr hafa einbeitt sér að, auk talsímanetsins. EDI-stjórinn og hlutverk hans Hlutverk EDI-stjórans (EDI- "server") er að taka á móti EDI- skjölum sem berast eftir viðkomandi flutningsleið, stað- festa móttökuna, þýða skjölin og koma þeim áleiðis til þess viðfangs (application) semþau eru ætluð. Ef um Edifact-skjöl er að ræða, verður að þýða skjölin af Edifact- forminu yfir á það skráarform sem viðfangið ræður við, t.d. flata skrá samkvæmt ákveðinni skráarlýsingu. Sem dæmi má nefna að ef um tollskýrslu á Edifact-formi er að ræða, þáþarf að þýða hana yfir á það skráarform sem tollakerfið býst við og hentar því. IBM TölvuDÓstur Tölvuvinnsla 1 5 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.