Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 26

Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 26
Desember 1 990 starfsmaður haft allt að 9 lotur uppi samtímis við aðaltölvuna. Þegar X.25 tengingin verður tekin upp þá mun sá möguleiki opnast að þeir geti haft 2 til 3 lotur við AS/400 vélina 2 til 3 lotur við X.400, 2 til 3 lotur við nærnet á Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Áður en nærnetið var tekið upp var tengingin við AS/400 vélina í gegnum kontrolbox, þá var ekki hægt að hafa nema takmarkaðan fjölda véla tengdan í einu. Með gátt þá er hægt að hafa allt að 254 einmenningstölvur tengdar í einu. Ekki hægt að ná meiri hraða en 9600 b með gátt er hægt að ná allt að 128,000 b ef gæði línunnar leyfa. Toyota-dæmið Þriðja og síðasta dæmið okkar er um það hvernig hægt er að nýta millitölvu sem tengd er við eitt nærnet með brú yfir í annað nærneta. í þessu tilviki þá þarf að veita V.Æ.S., vélaverkstæðinu sem staðsett er að Fosshálsi 1, aðgang að IBM/36 tölvu Toyota umboðsins ÍKópavogi. Nærnet hefur verið notað hjá Toyota í 4 ár og er það á Ethernet kortum og keyrt eftir staðli IEEE 802.5 Nýlega hefur verið settur upp OS/2 Lan Manager til að taka við því aukna álagi sem er á netinu. IBM S/36 er tengd inn á nærnetið í gegnum SDLC íjar- vinnslulínu sem getur veitt allt að 254 notendum aðgang að IBM S/36. Hefði átt að tengja V.Æ.S. inn eftir venjulegum leiðum hefði þurftaðbætaviðsamskiptalínu í IBM S/36 og setja síðan upp fast samband við notandann. Með því að setja upp brú frá nærneti því sem er til staðar hjá Toyota að Nýbýlavegi 8 í gegnum X.25 og yfir f nærnet hjá V.Æ.S. að Fosshálsi 1, þá geta notendur hjá V.Æ.S. nýtt sér IBM S/36 Þessi þrjú dæmi eiga það öll sameiginlegt að nýta sér frábæran samleik fjögurra eininga. Einmenningstölvurnar, nærnets, gáttar og X.25. eins og um beina tengingu væri að ræða. Einnig geta notendur á hvoru nærneti um sig skiptst á tölvupósti og öðrum upplýsingum sem eru á nærnetunum. Með tengingu eins og þessari er hægt að nýta X.25 tenginguna mun vlðar en aðeins á milli Toyota og V.Æ.S. Hvor aðili um sig getur á sama tfma haft samskipti við aðrar tölvur. Þar má t.d. nefna tengingu fyrir Toyota við Skýrr, Eimskip, X.400 og ýmsa tölvubanka svo eitthvað sé nefnt. Sama á við V.Æ.S. starfsmenn þeirra geta, á saman tíma, verið að senda eða sækja telex í gegnum gagnabanka eða X.400. Með þessum hætti er hægt að samnýta auðlindir sem liggja á hvoru neti fyrir sig. Bæði gögn, forrit tölvupóst og fjarvinnslu- tengingu í öðrum yfir í hitt nærnetið. Þessi þrjú dæmi eiga það öll sameiginlegt að nýta sér ffábæran samleik fjögurra eininga. Einmenningstölvunar, nærnets, gáttar og X.25. Öll þessi atriði eru þekkt innan tölvuheimsins. Tengingar á milli þeirra eru einnig orðnar þekktar í tölvuheiminum. Því er aftur á móti ekki að leyna að það krefst töluverðar natni og nákvæmi að tengja þessa heima saman. Eimskipafélag lslands PósthÚ88træti 2 Mynd 2 26 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.