Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 27

Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 27
Desember 1990 Við skulum láta einn starfsmann American Airlines Inc. hafa lokaorðið þar sem hann lýsir tilgangi með nærnetstengingum þeirra. "Við stefnum að því að skapa starfsumhverfi þar sem allir starfsmenn hafi tafarlausan aðgang, að hvaða upplýsingum sem þurfa þykir til að ífamkvæma verk sín á sem hagkvæmastan hátt." w Tölvunet Islenskrar getspár Björn S. Björnsson, íslensk getspá Þegar íslensk getspá tók til starfa fyrir rétt fjórum árum hafði verið unnið mikið starf vegna undirbúnings starfseminnar. Athugaðar voru beinlínutengd kerfi frá mörgum framleiðendum en úr varð að kaupa kerfi frá bandaríska fyrirtækinu GTECH. ísland var fyrsta landið í Evrópu til að nota beinlínutengt sölukerfi frá GTECH, Danir eru að koma sér upp beinlínutengdu sölukerfi frá GTECH og innan tveggja ára ætla Norðmenn að tölvuvæðast, en ekki er enn ljóst við hvaða fyrirtæki þeir munu skipta. Tölvunetið Tölvunet íslenskrar getspár er eitt stærsta, ef ekki það stærsta, einkatölvunet hér á landi. Kerfið samanstendur af 182 útstöðvum sem tengjast móðurtölvunni með 22 burðarlínum. Á hverri burðarlfnu er hægt að koma fyrir 30 útstöðvum en íslensk getspá notar aldrei meira en 15 útstöðvar fyrir hverja burðarlínu. Samskipti milli kerfis og útstöðvar fara fram með aðferð sem kölluð er "polling". Hægt er að stjórna tíðni "polling" milli kerfisins og einstakra útstöðva fyrirvaralaust. Tíðni samskiptanna ákvarðast af virkni hverrar útstöðvar fyri sig. Tölvukerfið Tölvukerfið er þrefalt, tvö aðalkerfi og eitt varakerfi, og tekur nýtt kerfi sjálfkrafa við ef bilunar verður vart. Þegar lottómiði er keyptur sendir viðkomandi útstöð upplýsingar til kerfisins sem skráir þær samstundis í öllum þremur kerfunum þannig að gulltryggt er að upplýsingar glatist ekki. Ef einhver burðarlína dettur út gefur kerfið sjálfvirka aðvörun innan 30 sekúndna. I samskipta- einingunni eru ýmis mælitæki sem auvelda greiningu vandamála sem upp kunna að koma. Það er fyrirtæki Wallcom Ind. sem framleiðir samskptaeiningu þá sem íslensk getspá notar og er samskonar búnaður notaður hjá fyrirtækjum, sem reka lottó, um allan heim. Það er GTECH sem hannar og þróar allan hugbúnað og eru þeir lang stærstir í heiminum á þessu sviði. Þeir Þegar lottómiði er keyptur sendir viðkomandi útstöð upplýsingar til kerfisins sem skráir þær samstundis í öllum þremur kerfunum þannig að gulltryggt er að upplýsingar glatist ekki. hafa sett upp samskonar kerfi mjög víða, en kerfin eru þó ólík. Sumstaðar eru ekki notaðar fasttengdar línur eins og hér, og er það að töluverðu leyti háð 27 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.