Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 31

Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 31
Desember 1990 OSI profiles). Þessi snið hafa verið brotin niður í íjögur hlutasnið: T-snið (Transport), A- snið (Application), F-snið (Format) og C-snið (Character). í flestum löndum er það EDI byggt á OSI þjónustu, sem sýnir hvað mestan vöxt. OSI og forritun Til þess að nýta möguleika OSI nets, þarf að vera hægt að forrita á sem einfaldastan hátt notkun á þeim möguleikum sem OSI býður upp á. Stærstu framleiðendur OSI búnaðar hafa gert sér grein fyrir þessu og bjóða nú upp á forritasöfn, APIs (Application Programming Interfaces) sem kalla má á úr venjulegum forritum. Segja má að nú sé slíkt forritasafn til fýrir alla þætti OSI þjónustu. Pessi forritasöfn þurfa að sjálfsögðu að vera á stöðluðu formi. Stofnuð hefúr verið nefnd vegna notkunar á X.400. Nefhdin kallast API-Association og kallast forritastaðallinn API-A X.400 API. Aðaláherslan er lögð á EDI samskipti og ODA (Office Document Architecture). Samtök sem kallast MAP/TOP User group hafa skilgreint notkun á forritasöfnum fyrir FTAM og MMS (FTAM API og MMS-I API). Einnig hafa CCITT og X/ Open gefíð frá sér API staðla OSI stefnir hratt í átt aukinnar virkni og er algjörlega óháður tölvuframleiðendum. Fleiri og fleiri fyrirtæki byggja framtíðarstefnu sína í tölvumálum á OSI staðlinum. fyrir neðri lög OSI módelsins (transport level) sem aðallega er notaður af þeim sem eru að færa eldri forrit yfir í OSI umhverfið. Nú nýlega hefur komið fram X.500 API staðall og einnig staðall fyrir netstjórnun, CMIS/ CMIP. Brátt líður að því svipuð forritasöfn komi fyrir OSITP og VT. Flestir framleiðendur OSI búnaðar bjóða einnig upp á einhver hjálparkerfi með því OSI grunnkerfí sem keypt er. OSI prófanir Ýmsir áhugahópar hafa verið stofnaðir víða um heim, til að tryggja og prófa staðla og búnað sem seldur er undir OSI staðlinum. í Bandaríkjunum sér COS (Corporation for Open Systems) um prófanir, í Evrópu er það SPAG (Standards Promotion Agency) og í Japan INTAP. Nokkrir framleiðendur OSI búnaðar hafa síðan verið valdir af þessum hópum sem viðurkenndar prófunarmið- stöðvar (Test Centers) og eru þeir helstu Bull HN Information Systems Inc. og Hewlett-Packard Company. Aðrir framleiðendur hafa lengi stundað eigin prófanir með því að tengjast viðurkenndum OSI netkerfum, svo sem OSInet, EurOSInet og OSIcom. Einnig hefur samspil OSI nær- og fjærnets (LAN/WAN) nú nýlega verið sýnt á sýningum víða um heim. OSI framleiðendur Framleiðendur OSI búnaðar verða stöðugt fleiri. Ef marka má spá Gartner Group, verður hlutfall OSI og TCP/IP á heims- markaðnum, sem í upphafi árs 1990 var 2% OSI á móti 98% TCP/IP, orðið 30/70 ílok ársins 1991 og 80/20, OSI í vil í lok ársins 1994. Eitt af þeim fyrirtækjum sem telja má leiðandi í framleiðslu OSI búnaðar er Hewlett-Packard. Fyrirtækið hefur stundað OSI rannsóknir í rúm 7 ár og hafið framleiðslu á nær öllum þeim búnaði sem lýst er í grein þessari. 31 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.