Vísir - 01.08.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
52. árg. — Miðvikudagur 1. ágúst 1962. — 179 tbl.
■MM—lllllllliyi—■UI^IWWWWWIW——WWW—WWM
Samningarnir í Brussel:
Aðeins
eining
forðar
hruni
MIKIL AHKIFA AFSTODU
OKKAR ISLFNDINCA
Ummæli viðskiptamálaráðherra í morgun
Þeir samningar sem
þessa dagana standa yf-
ir í Brussel milli Bret-
lands, Danmerkur og
Efnahagsbandalagsins
hafa mikil áhrif á af-
stöðu okkar íslendinga
til bandalagsins, sagði
Gylfi Þ. Gíslason við-
skiptamálaráðherra,
þegar Vísir átti tal við
hann í morgun.
Við Islendingar hljótum að
vona, sagði ráðherrann, að
samningarnir milli Bretlands
og EBE leiði til jákvæðrar
niðurstöðu. Ávailt hefir verið
gert ráð fyrir því að ef Bretar
fá inngöngu í Efnahagsbanda
lagið, þá verði Danir teknir I
það líka. Það væri Islending-
um tvímælalaust mikiu heppi
Iegra að sem fiest ríki Vestur
Evrópu sameinist í Efnahags
bandalaginu en að álfan sé
klofin í tvær viðskiptaheildir,
Efnahagsbandalagið og Frí-
verzlunarsvæði sjöveldanna
(EFTA). Þær heildir hafa að
ýmsu leyti mjög ólíka hags-
muni, sem leiða mundu til ým
iss konar átaka á viðskipta-
sviðinu, sagði ráðherrann
enn fremur.
— Áiítið þér þá að samn-
ingar muni nást í Brussel
þessa dagana?
— Ég er þeirrar skoðunar,
sagði ráðherrann, að samning
amir muni ekki stranda, held
ur muni nást samkomulag
sem báðir aðilar geta við un-
að.
Leiðtogar Serkja safnast nú sam-
an í Algeirsborg og virðist svo
sem menn ætli að bregðast vel við
áskorunum Ben Khedda um að
halda þar fund til þess að jafna
deilumálin. — Ben Bella er sagður
væntanlegur þangað á morgun frá
Oran.
Það er talið hafa bætt horfurnar
mikið, að Boudiaf varaforsætis-
ráðherra var sleppt úr haldi í gær,
en hermenn Ben Bella höfðu hand-
tekið hann í heimabæ hans. Var
honum sleppt fyrir eindregin til-
mæli Ben Khedda.
Mikið er talið undir leiðtog-
um Serkja í Kabiliufjöllum'
komið — leiðtogar á hersvæð-
um landsins þar hafa vaxandi
Framh. á 5. síðu.
Samningar í deilu
kjötiðnaðarmanna
☆
Félag kjötiðnaðarmanna sam-
þykkti I gær á fundi sínum sam-
komulag það, sem náðist i fyrri-
nótt á fundi samninganefndar
þeirra og atvinnurekenda i kjöt-
iðnaðinum.
Var það og staðfest af atvinnu-
rekendum og því afstýrt verkfalli
kjötiðnaðarmanna, sem boðað
hafði verið frá og með deginum
í dag að telja.
Samningar náðust um allveru-
legar kjarabætur og samið á svip-
uðum grundvelli og við ýmsar
aðrar stéttir.
\
Trésmiðadeilan.
Allt sat við það sama í morgun,
í trésmiðadeilunni, er Vísir spurð-
ist fyrir urn hana, og ekki verið
boðaður fundur.
í sólskininu í gær hittum við
þessa hafmeyju vestur á Sel-
tjarnarnesi. Hún heitir Sigur-
veig Lúðvíksdóttir og átti fri
úr vinnunni. Hún segist ekki
gera sérlega mikið að því að
fara í sólbað, en er þó ekki
hrifin af því að þurfa að vera
inni þegar veðrið er gott. Við
fengum að taka þessa mynd
með því skilyrði að segja ekki
hvar hún væri tekin, því að þá
má telja víst að staðurinn
myndi yfirfyllast samstundis.
Það eru myndir af fleiri stúlk-
um í Myndsjá á þriðju síðu,
fyrir þá, sem áhuga hafa á
slíku. — Ljósm. Vísis, I. M.
Afgreiðsla flugvéla áKefla-
víkurflugvelli tefst ekkert
Afgreiðslu flugvéla á
Keflavíkurflugvelli er hald
ið uppi eftir sem áður þótt
flugumsjónarmenn legðu
niður vinnu um miðnætti.
Um miðnætti kom hóp-
ur starfsmanna Loftleiða
úr Reykjavík suður á
Keflavíkurflugvöll og tók
við störfum, þegar hinir
Iögðu þau niður. En Loft-
leiðir hafa sem kunnugt er
tekið við rekstri Keflavík-
urflugvallar.
ENGAR TAFIR.
Um nóttina komu þrjár útlend-
ar flugvélar til millilendingar á
Keflavíkurflugvelli og voru þær
allar afgreiddar eins og ekkert
hefði í skorizt. Fyrst kom flugvél
bandaríska flugfélagsins Saturn
Airways af gerðinrii DC-6B með
80 farþega. Síðan kom Stratocruis-
er flugvél frá hernum og loks stór
finnsk farþegaflugvél. Urðu flug-
vélarnar hvorki fyrir töfum né ó-
þægindum af þessari deilu.
14 HÆTTA STARFI.
Menn þeir, sem lögðu niður störf
eru 14 talsins, 5 fiugumsjónar-
menn, 4 farþegaafgreiðslumenn og
5 verkstjórar. Vísir átti stutt tal
við einn þeirra 1 morgun, Pál Jóns-
son flugumsjónarmann. Hann1
sagði að þeir hefðu iagt niður
vinnu vegna deilu við Loftleiðir,
sem hefði tekið við rekstrinum.
Framh. á bls. 5.